Leita í fréttum mbl.is

Frekari upplýsingar um tildrög slyssins ?

Vona  að allt sé í lagi með hjólreiðamanninn, og óska ég honum góðs bata.

Það væri kostur ef hægt væri að fá að frekari upplýsingar um tildrög slyssins, hraði, sjónlínur, yfirborð vegs, áverkar og ummerki á ökutæki (bíl og reiðhjól) og búnaði (t.d. hjálminn )

Að öðrum kostum er í raun ekki hægt að læra neitt af slysunum.

Zilch, zip, Nada.

Ólíkt því sem fullyrt er (nánast vélrænt)  í fréttinni. 

Þegar maður spyr lögguna bera þeir fyrir sér persónuvernd, sem er kannski, mögulega eitthvað til í. 

En ég hef nákvæmlega engan áhuga á persónugreinilegum upplýsingum. Bara aldur og kyn. Jú og stundum skiptir máli að vita hvort ætla mætti að viðkomandi væri vanur hjólreiðamaður, og í þokkalegu formi.  Ef það væri ekki of nærgöngult sömuleiðis með bílstjórann og hjá báðum hvort grunur væri á þreytu, efna eða áfengisáhrif.

Það væri alveg hægt að gangast undir trúnaðaryfirlýsingu, og lofa að ekki birta gögnin, nema etv sem hluti af tölfræði.

Um daginn slasaðist konu alvarlega á reiðhjóli, og manni skilst að Rannsóknarnefnd umferðarslysa hafi í fyrsta skiptið athugað með reiðhjólaslys. Hefðu átt að gera það oftar, og líka leita til manna til að ræða getgátur og spurninga við.  Þó að RNU-menn hjóla sjálfir þá er ég viss um að stjórnamenn LHM (LHM.is)  og fólk sem við erum í tengsl við hefðu getað víkkað sjóndeildarhringnum í rannsókninni. 


mbl.is Ekið á hjólreiðamann á Vífilsstaðavegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elías Halldór Ágústsson

Hvaða alvarlega reiðhjólaslys varð um daginn?

Elías Halldór Ágústsson, 2.6.2010 kl. 15:47

2 Smámynd: Morten Lange

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/05/17/haldid_sofandi_eftir_reidhjolaslys/

Ekki er vitað um  líðan hennar.  Moggin virðist hafa misst áhugann ?

En hver niðurstaðan verður í hugum margra sem sinna umferðaröryggi er nokkur skýr,   þó að gögn í málinu verða af skornum skammti : Nú þarf að herða róðrinum og sannfæra fleiri um að nota hjálma.

Kannksi var yfirborðið/umhverfið lélegt, kannski voru bremsurnar í ólagi eða annað að hjólinu. Kannski var einhver annar sem gerði eitthvað að sér, og stakk af, kannski var hraðinn of mikill, eða hjólað of nálægt vegarkanti ?   Kannski var hjólreiðamaðurinn ekki nógu árvekinn.   En svoleiðis hlutir eru alt of flókin skilaboð að koma á framfæri, og erfið að "sanna" virðist vera :  þessar hlutir sem snúa að tildrög slysa.  Og mundu sumir geta komið  í  veg fyrir slysin ef þau væru í lagi.  Þannig verði  (sennilega)  aftur veðjað á einni "allsherjar"  "lausn/ráðlegging" eftir  athugun RNU.

Morten Lange, 2.6.2010 kl. 18:29

3 identicon

Konunni sem um ræðir er enn haldið sofandi. Læknar eru bjartsýnir um að hún muni koma ósködduð út úr þessu.

Ragnheiður (IP-tala skráð) 3.6.2010 kl. 01:59

4 identicon

Sveinbjörn Þormar setti þetta á blogg hjá Kára Harðar. Leifi mér að koma því hér inn;

Þetta slys varð með þeim hætti að 3 menn hjóluðu samsíða eftir veginum, bílinn mætti þeim í nokkuð krappri beygju þar sem ekki sást vel yfir veginn, bílstjórinn ók ekki á miklum hraða og hægði nokkuð ferðina er hann sá 2 þessara hjólreiðakappa koma, sá þriðji sást illa eða ekki í þessum aðstæðum.

Þarna er spurningin hvort bílstjórinn ók á hann eða hvort maðurinn hjólaði á bílinn.

Ég held það megi fullyrða að þetta slys hefði ekki orðið ef þeir hefðu hjólað í röð hver á eftir öðrum þar sem bílar geta mæst á þessum vegi þegar báðir víkja aðeins.

Sveinbjörn Þormar (IP-tala skráð) 3.6.2010 kl. 00:42

Kjartan (IP-tala skráð) 3.6.2010 kl. 14:19

5 Smámynd: Morten Lange

Takk kærlega fyrir þessar upplýsingar, Ragnheiður og Kjartan/Sveinbjörn !

Mjög gott að heyra að læknar séu bjartsýnir um að konan  nái fullan bata. 

Hvað varðar hitt slysið, þá hlýtur að vera gagnlegt að vita svona hluti, um tildrög slysa. Ef frásögnin er lituð upplifun bílstjórans, væri sennilega gagnlegt að fá líka lýsingu hjólreiðamannanna og/eða vitni ef eitthvert. 

Opinber gögn sem eru aðgengileg um slys/árekstrar, og sér í lagi á gangandi og hjólandi, eru af skornum skammti. Það hlýtur að vera hægt að mæta persónuverndarkröfur og samt skrá og gera aðgengileg fyrir aðila eins og Landssamtök hjólreiðamanna upplýsingar um tildrög og afleiðing slysa. (?)

Morten Lange, 4.6.2010 kl. 00:50

6 Smámynd: Morten Lange

Ekið á hjólreiðamann í dag, samkvæmt Vísi :

http://www.visir.is/article/2010152897106

"

Vísir, 14. jún. 2010 18:19

Ekið á hjólreiðamann

Frá vettvangi í dag. Ekið var á hjólreiðarmann. Ekki  er viðta um ástand hans.
Frá vettvangi í dag. Ekið var á hjólreiðarmann. Ekki er viðta um ástand hans.

Ekið var á hjólreiðamann í Jakaseli á milli fimm og sex í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni flutti sjúkrabíll hjólreiðamanninn á spítala. Ekki er vitað um ástand hans.

Lögreglan rannsakar vettvanginn."

Vonandi er hann ekki mikið slasaður, og óska ég honum góðs bata. Fyrir hjólreiðamanninn hlýtur líka að skipta sköpum að lögreglan skoðar málið með augum hjólreiðamannsins, og af þekkingu um hjólreiðar. 

Manni sýnist frá myndinni að þetta hafi gerst þannig að bílstjórinn ekki hafi gáð að umferð eftir stígnum, eða misreiknað hraða hjólreiðamannsins, og ekið á hjólreiðamanninn þar sem stígurinn þverar götu. 

Menn halda að hættulegt sé að hjóla eftir götum, og öruggt að hjóla eftir stígum, en margt bendir til þess að oft getur þetta verið öfugt farið. Það vantar vitundavakning á meðal bílstjóra, hjólreiðamanna og umferðaryfirvalda um Samgönguhjólreiðar / Hjólafærni. 

Morten Lange, 14.6.2010 kl. 19:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband