Leita í fréttum mbl.is

Það má hjóla á allar götur, því reiðhjólið er ökutæki

Þetta kemur skýrt fram í annarri grein umferðarlaga :

  • "Reiðhjól: a. Ökutæki, sem knúið er áfram með stig- eða sveifarbúnaði og eigi er eingöngu ætlað til leiks. ....  Ökutæki:Tæki á hjólum, beltum, völtum, meiðum eða öðru, sem ætlað er til aksturs á landi og eigi rennur á spori"

Eftirfarandi úr sjötta grein staðfestir / minnir á (með öðrum greinum) staða reiðhjóls sem ökutæki  :

  • "Eigi má leggja ökutækjum nema á sérstaklega merktum stæðum. Ákvæði þetta gildir eigi um reiðhjól."

Ennfremur, úr 13.grein : 

  • "Ökumaður skal nota akbraut. Bannað er að aka eftir gangstétt eða gangstíg."

Sama skylda til að vera til hægri gildir um öll ökutæki :

  • "Ökumaður skal vera með ökutæki sitt eins langt til hægri og unnt er með tilliti til annarrar umferðar og aðstæðna að öðru leyti."  

Hér má þó benda á að öryggissjónarmið trompi öllu, og það hefur sýnt sér að fyrir bifhjólamenn og reiðhjólamenn dregur úr sýnileiki, sérstaklega fyrir gatnamótum og í gatnamótum að vera staðsettur í hægri jaðri akreinar.   Bifhjólamenn læra að taka ríkjandi stöðu (eigna sér akreinina  á þessum kafla) á gatnamótum, og í Hjólafærninni eru hjólreiðamönnum kennt að gera það líka.  

Og svo úr sérreglum fyrir reiðhjólum í 39.grein:

  • "Hjólreiðamaður skal hjóla hægra megin á akrein þeirri, sem lengst er til hægri. Akreinina við hlið hennar má þó nota til framúraksturs, ef eigi er unnt að fara fram úr hægra megin."
  • "Heimilt er að hjóla á gangstétt og gangstíg, enda valdi það ekki gangandi vegfarendum hættu eða óþægindum. Hjólreiðamaður á gangstétt eða gangstíg skal víkja fyrir gangandi vegfarendum."

 

Það er nógu slæmt að blaðamaður sem skrifar um umferðarmál og hefur talað við Umferðarstofu geti haldið fram hluti sem brjóti í baga við lög, verr er ef lögfræðingur Umferðarstofu komi með fullyrðinga, vísi í lögin og segir rangt til um innihaldi laga.


mbl.is Vespan skal flokkast sem reiðhjól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað sem áliti manna líður um hvort þetta sé eðlilegt eða ekki að, þá er skilgreiningin í umferðarlögum skýr:

"Reiðhjól:
   [a. Ökutæki, sem knúið er áfram með stig- eða sveifarbúnaði og eigi er eingöngu ætlað til leiks.
   b. Vélknúinn hjólastóll, sem eigi er hannaður til hraðari aksturs en 15 km á klst. og verður einungis ekið hraðar með verulegri breytingu.
   c. Lítil vél- eða rafknúin ökutæki, sem hönnuð eru til aksturs á hraða frá 8 km og upp í [25 km á klst.]
4) Undir þessa skilgreiningu fellur m.a. vélknúið hlaupahjól sem búið er stigbretti, er á hjólum og með stöng að framan sem á er stýri. Slíkum farartækjum má ekki aka á akbraut.]5)"

Þarna er ekki eingöngu verið að tala vélknúin hlaupahjól þar sem tekið er fram "m.a vélknúið hlaupahjól", þ.a.l. falla rafmagnshjólin undir þetta.Það er álit okkar hjá Umferðarstofu að þetta þarfnist nánari athugunar og hefur það verið álit okkar í nokkurn tíma. Því miður er raunin hins vegar sú, samkv. skilgreiningunni í umf.lögunum, að það má ekki aka þessum hjólum á akbrautum. Hafið orð mín fyrir því að þetta verður endurskoðað.

Kær kveðja,

Marta Jónsdóttir (IP-tala skráð) 15.7.2010 kl. 11:29

2 Smámynd: Morten Lange

@Marta Jónsdóttir : 

Takk fyrir að  svara hér og taka þátt í umræðunni.  Þarna ertu góð fyrirmynd atkvæðamikilla starfsmanna annarra stofnanna.

Það væri frábært ef þú gætir  snúið þessu dæmi í eitthvað jákvætt og notið tækifærið til að segja skýrt frá og leiðrétti rangfærslunni um reiðhjól.  Hafa samband við blaðamanninn og láta leiðrétta /bæta við fréttinni eða birta nýja frétt.  Ef þessi frétt verði birt í pappírsútgáfunni, er sennilega tækifæri núna nokkrar klukkustundir til að bæta úr misskilningunni um að reiðhjól megi ekki nota á götum.

Það þarf að ítreka við fólk almennt að reiðhjól eru ökutæki, samkvæmt umferðarlögum og hafa meiri rétt á götum en á stígum og gangstéttum.  Árétta í leiðinni að hjólreiðamenn á stígum og gangstéttum séu þarna ávallt á forsendum gangandi. 

Rafmagnsvespur eru fáar, og hreint út sagt ekki eins mikilvæg  og reiðhjólin. 

Aðalmálið með fréttin í mínum huga og í huga flestra sem hafa tekið til máls á blog.is,  var að hún tók undir algengum misskilningu um stöðu reiðhjóla  á götum og vegum.

Morten Lange, 15.7.2010 kl. 11:53

3 Smámynd: Morten Lange

Það er vel við hæfi að benda á að mikill umræða fór fram um þessa frétt á bloggi Sigga Magga í gær :

http://siggimaggi.blog.is/blog/siggimaggi/entry/1077206/

Morten Lange, 16.7.2010 kl. 08:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband