Leita í fréttum mbl.is

Fjölga beri hraðamyndavélum

Með hækkun hraðasekta þá virtist  umferðaröryggið hafi batnað, en nú eru sjokkið kannski runnið hjá, og fólk tekur sénsinn aftur. Getur ekki verið að það þurfti að fjölda sjálfvirkum myndavélum ?

Mér fannst þessi grein George Monbiot vera áhugaverð, þó mér finnst flokkapólitíska vinkill vera allt of áberandi hjá honum. 

Tory Boy Racers

 


mbl.is Hraðakstur við Borgarnes
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Steinsson

Öryggi vegfaranda hvort sem er inni í eða utan við bifreiðar hefur batnað fyrst og fremst vegna betri hönnunar farartækja. Það er ekkert hægt að líkja saman því að lenda í árekstri í bíl hönnuðum 2010 eða hönnuðum 1990 svo við tölum nú ekki um ennþá eldri bíla. Þetta gildir líka um gangandi sem verða fyrir farartækjunum, hönnunin í dag miðar að því að valda þeim sem minnstu tjóni, atriði sem oft var lítið spáð í áður. Síðustu árin í nýjustu kynslóðum bifreiða hefur orðið bylting hvað þetta varðar.

Annað sem hefur gjörbreyst er möguleiki mislélegra ökumanna að halda stjórn á bifreiðum við hættulegar aðstæður. Sífellt fleiri bílar koma með búnað sem kemur í veg fyrir eða allavega minnkar hættuna á að ökumaður missi stjórn á bifreiðinni t.d. í hálku eða bleytu.

Góðærið hjálpaði heilmikið í þessum efnum, eldri bílum var skipt út fyrir yngri bíla sem eru öruggari, kannski eitt af því fáa jákvæða við öll ósköpin.

Einar Steinsson, 30.7.2010 kl. 14:05

2 Smámynd: Morten Lange

Takk fyrir þetta, Einar.  Ég held að margt sé til þi þessu sem þú segir. En  kannski eru aðrir þættir samt sem áður mikilvægari að kíkja á núna í núverandi stöðu, og þegar heildin er tekin með í myndinni.

Ég átti fyrst og fremst við þróunin undanfarin 2 ár.  Eitt sem þá kannski bætist við er að umferð hafi minnkað og róast vegna þess að menn finna fyrir því hve bensínið kosti mikið.   ( En er reyndar í mínum huga enn of ódýrt, miðað við skaðinn sem ofnotkun eldsneytis valdi á fjölmörgum sviðum samfélags og lífríki heims) 

Morten Lange, 30.7.2010 kl. 15:18

3 Smámynd: Hjóla-Hrönn

Ég held að það sé engin spurning að hraðamyndavélarnar hafi haft mikil áhrif á umferðarhraðann.  Venjulega þegar ég er úti á þjóðvegum er endalaust tekið fram úr mér, þó að ég reyni að halda mig nokkurn veginn rétt við hámarkshraða.  Þetta sumar hef ég orðið vör við mikla breytingu.  Flestir keyra á skikkanlegum hraða og ég býst fastlega við að þeir örfáu sem tóku fram úr mér nú í vikunni fái fljótlega óvæntan "glaðning" heim í formi sektar.

Hjóla-Hrönn, 30.7.2010 kl. 20:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband