Leita í fréttum mbl.is

Opinn heimild til að setja íþyngjandi reglugerð á okkur öll !

Þessi heimild til handa ráðherra að setja hverskyns reglugerð fer þvert á móti sú almenna stefna sem var lagt upp með við endurskoðun lagana að gera þá nútímalegri.

Nútímalegri löggjöf  ætti meðal annars að þýða byggt á góðum grunni, og samtal þar sem sátt ekki ríkir.  Nútímaleg löggjöf ætti líka að þýða samræming við önnur markmið. Í þessum tilgangi var bætt við markmiðsgrein í frumvarpinu að umferðarlögum, meðal annars um umhverfisvernd.  

Að leggja mjög  svo íþyngjandi reglur á mjúkum, grænum og heilbrigðum samgöngum gengur þvert á þessum markmiðum.  Eða í það minnsta mætti vænta að sérlega sterkar kröfur verða gerðar um vönduð vinnubrögð þegar kemur að lang-grænustu og heilbrigðasti samgöngumátanna.  

En annað var upp á teningnum. Það er ekki fjarri lagi að segja að athugasemdir og ítarlega rökstuðning Landssamtaka hjólreiðamanna hafi verið gjörsamlega hunsaðar. Og starfsmenn ráðuneytisins báru fyrir sér tímaskort !  Nútímaleg löggjöf byggða á tímaskorti á þeim sviðum þar sem sérstaklega varlega ætti að fara ?   Þetta er hneisa. 

Mæli með grein Pawels Bartoszek :

http://visir.is/i-labbitur-med-hjalm-/article/2011110229404

Í Morgunblaðinu í dag var líka grein sem vakti athygli á því að þessi heimild varðandu að setja íþyngjandi reglur á gangandi og hjólreiðamenn er fullkómlega opinn og óskilgreint, og ekki sett neinar hömlur. 

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar meðal annars :

~~~~~ 

Ekki liggur nákvæmlega fyrir hvaða kröfur um öryggis- og verndarbúnað eigi að gera til hjólreiðafólks í nýjum umferðarlögum, en í frumvarpi er m.a. kveðið á um heimild innanríkisráðherra til þess „að setja ákvæði í reglugerð um öryggis- og verndarbúnað hjólreiðamanna og annarra óvarinna vegfarenda“.

~~~~~~ 

Ég vil gjarnan fá athugasemdir, við þessu, en athugasemdir um að "hjálmurinn  bjargaði mér" hefur jafn litla þýðingu fyrir löggjöf  og sögur manna af  fólkii sem hefur lífað lengi þrátt fyrir reykingar. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alfarið á móti því að settar séu sé íþyngjandi reglugerðir varðandi hjólreiðafólk. Við fáum meira öryggi fyrir hjólreiðafólk með því að fjölga þeim sem hjóla.

Guðni Helgason (IP-tala skráð) 28.2.2011 kl. 16:42

2 Smámynd: Morten Lange

Nákvæmlega, Guðni !  :-) 

Morten Lange, 28.2.2011 kl. 18:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband