Leita í fréttum mbl.is

Ef keppt í borginni, og miðað við meðalferðir, hefði reiðhjól unnið

Það kemur ekki fram í fréttinni af spasraksturskeppninni hvar var ekið og hversu langa vegalengd.

Mjög hátt hlutfall ferða í Reykjavík eru styttri en 5 km, og ágætis hlutfall ferða styttri en 3 km.

Í þessum ferðum, er reiðhjólið mjög verðug keppinaut.  Oft er ferðatíminn á bíl og reiðhjól svipaður á  3 - 5 km leiðum. Á þeim tíma dags sem flestir eru á ferðinni samtímis, mynda bílarnir litlar umferðarteppur  sem reiðhjólið rennur fímlega fram úr, og kemur reiðhjólið á leiðarenda á undan.

Reiðhjólið er þann faramáta sem eyðir minnstu orku, segja fræðingar. Ganga eyðir meiru.

Þar fyrir utan er viðhald á reiðhjóli og annar rekstur mun ódýrari og mengunin hér um bil enginn.  Ekki er heldur neinn ógnun  af reiðhjólum í umferðinni ólíkt bílunum  (Miðum til dæmis við árlegri tölfræði yfir drepnum og alvarlega slösuðum í umferðinni).   Sumar kostir hafa bílarnir fram yfir reiðhjólið, en kostirnir á hinn vegin sem ég gæti bætt við eru líka fjölmargar.  Eki síst ef við skoðum samfélagsleg áhrif.


mbl.is Yaris eyddi minnstu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Reiðhjólið myndi alltaf vinna....

Því það eyðir engu.

Skil ekki til hvers þú ert að bera þetta saman...

Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 1.6.2011 kl. 00:49

2 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

áhugaverð lesning Morten, en það eru oft þessi veðrabrigði hér sem valda því að við höfum ekki "alist" sérstaklega upp við að ferðast meira á reiðhjólum en raun ber vitni .....

svo er "lífsstíll" að hjóla út og suður ekki fyrir alla ... því má ekki gleyma !

Jón Snæbjörnsson, 1.6.2011 kl. 08:45

3 Smámynd: Árni Davíðsson

Jón.

Þó sá lífstíll að hjóla henti ekki öllum hentar hann sumum og sennilega mun fleirum en stunda hann núna. Það er líka hægt að nota marga mismunandi ferðamáta, hjóla stundum , aka stundum, ganga stundum og taka strætó.

Kannski erum við mörg hver of föst í aðeins einum ferðamáta?

Árni Davíðsson, 1.6.2011 kl. 10:21

4 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

Árni .......

ég geri flest af þessu nema að taka stræto ... hjólreiðar eru eins og við vitum á hraðri upp-leið ..... því þarf að gæta vel að uppbyggingu "hjólreiðastíga" og þá sérstakra hjólreiðastíga eða brauta á almennum fjolnota "stígum" um borg og bæi.

Veðrabrigði koma þó til með að vera áfram óbreitt ....

Jón Snæbjörnsson, 1.6.2011 kl. 10:39

5 identicon

"Bílarnir aka 142 kílómetra sem leið liggur upp Mosfellsdalinn, Grafningin hjá Þingvallarvatni, framhjá Selfossi og Grafning til baka í höfuðborgina.Rétt rúmar tvær klukkustundir tekur að aka keppnisleiðina".

http://fib.is/?FID=2862

Roberta (IP-tala skráð) 1.6.2011 kl. 11:05

6 Smámynd: Morten Lange

Takk allir fyrir athugasemdirnar.

Eg var auðvitað ekki með þessari færslu að stinga upp á að allir mundu hjóla allar sínar ferðir.
Get ekki séð að fólk hafi svarað fréttir af hver vinni kappakstri eða sparakturskeppni með útúrsnúningi um að "það geta ekki allir ekið Ferrari, og enn síður McLaren"  eða "það geta ekki allir ekið Yaris".

Morten Lange, 1.6.2011 kl. 12:09

7 identicon

Jón:

Hér er smá samanburður á veðurfari í Reykjavík og Amsterdam út frá sjónarhóli hjólreiðamanna.

http://hjoladu.wordpress.com/2010/02/08/er-ve%C3%B0urfar-i-reykjavik-ohagst%C3%A6tt-hjolrei%C3%B0um/

Ég get ekki betur séð en að veðrið sé léleg afsökun fyrir letinni.

kv

jens

Jens Gíslason (IP-tala skráð) 1.6.2011 kl. 12:11

8 Smámynd: Morten Lange

En reyndar þá var grein mbl.is flokkuð undir samgöngum. Samt kom ekkert fram um hvernig keppnin líktist samgöngum. Hvaða meðalhraði voru bílarnir á ? Var ekið á háannatíma ?  Var þetta í borgarumferð yfir höfuð ? ( Varla ).  Samt er það í þéttbyli sem lang flestar ferðir eru farnar.

Morten Lange, 1.6.2011 kl. 12:12

9 Smámynd: Morten Lange

Takk Jens :-)

Held reyndar að  hámarksvindhraði í þéttbýli á Höfuðborgarsvæðinu sé meiri og fjöldi klukkustundna með meiri en (segjum) 7 m/s sé meiri en í Amsterdam eða Kaupmannahöfn. 
Á móti gæti ég nefnt að erlendur ferðamaður á reiðhjóli sagðist hafa hjólað fram hjá Esju einn "góiðan veðurdag". Einn vörubill valt í vindinum, en hann komst á milli staða án þess að detta. 

Þá er enginn sem segir að sá sem hjólar þurfi að hjóla alla daga, eða bæði fram og tilbaka alla daga. Hægt að samnýta bílferðir, nota strætó, labba eða aka einkabíl þegar það hentar. 

Morten Lange, 1.6.2011 kl. 12:46

10 Smámynd: Morten Lange

Árni bloggaði líka um greinina og set fram spurninga um keppnina og hvert upplýsingagildi hennar sé : http://arnid.blog.is/blog/arnid/entry/1171058/

Morten Lange, 1.6.2011 kl. 12:48

11 Smámynd: Árni Davíðsson

Það er ágætt hjá þér Jón.

Ég var auðvitað ekki að gefa neitt í skyn persónulega um þig. Meinti þetta bara almennt um almenning. 

Árni Davíðsson, 1.6.2011 kl. 15:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband