Leita í fréttum mbl.is

Hjólum úti - mun heilbrigðara á allan máta

Þessi frétt mbl.is um tölvuleiki tengda við þrekhjól fyrir börn hafa gefið mörgum tilefni til að legga orð í belg.

Mín fyrsti viðbrögð er að eithvað hljóti að vera að hjá okkur þegar þetta er boðið sem lausn. Börnin eru ekki úti að leika sér lengur, og við fullorðnum erum að gera sífelt erfiðara fyrir þá.  Í mörgum skólum er ekki leyft að hjóla til skólans. Foreldrar aka börnin sín, út af tímaleysi og vegna þess að þeir eru hræddir um að börnin verða fyri bíl við skólann eða a leiðinni í tómstundir ! 

Ég er sammála  Katrínu varðandi að hollusta og hreyfing sé aðalmálið.  Einhæft og stöðugt tal sem túlkast í þeirri átt að allir þurfa að vera mjóir  og að vera aðeins yfir meðal- eða staðalþyngd sé skelfilegt. Rangt mataræði og lítill eða röng hreyfing eru hins vegar skelfilegar  þegar þetta grípur um sig eins og faraldur. Þessi faraldur, sem kallast offitufaraldurinn, drepur að sögn 300.000 bandaríkjamanna fyrir aldur fram, en bílslýsin sem eru mjög skæð þarlendis drepa 40.000 manns árlega.

Nýleg sýndi rannsókn birt í British Medical Journal fram á að einstaklingar sem voru talin þjáíst af offitu  sem voru gerða  að hreyfa sér  mátulega  og daglega, urðu heilbrigðari.  Kemur ekki á óvart, en aðalariðið var að heilbrigði  þeirra batnaði marktækt, þó að BMI stuðulinn breyttist ekki mikið.  Man ekki allveg hvort miðjumál var líka athugað.  En að sjálfsögðu skiptir fitinn máli, og sérstaklega þegar fólk er orðið eins feitt og maður sér á myndum frá BNA. 

En er ekki málið það að umhverfi barnanna (og okkar fullorðinna) sé allt of lítið hvetjandi fyrir hreyfingu ?   Börnin eru í miklu minna mæli úti að leika sér miðað við þegar við ólumst upp, eða jafnvel bara fyrir 10-15 árum.  Foreldrar hafa áhyggjur af ymsum hættum "þarna úti", að mestu með röngu.  Látum börnin hjóla úti og gerum umhverfið þannig að það sé hvetjandi. Lækkum hámarkshraða bíla í 30km/klst, nema á fáum stofnæðum.  Og notum hreyfingu , til dæmis á reiðhjólum, sem hluti af kennslunni.  Hugmyndir  um svoleiðis aðferðir má lesa um á umferd.is - Reiðhjól og fjölgreindir .

En svo snýst þetta líka um fyrirmyndir. Við ættum ekki að leggja þetta vandamál bara á herðar  krakka, heldur sýna að við fullorðna fólkið gerum það sem við viljum að krakkarnir gera. WHO og margir aðrir hafa sagt að hver og einn fullorðinn þarf að hreyfa sér hóflega 30 mínútur á dag. Krakkar þurfa amk klukkustund, að mig minnir.

Hreyfum við okkur 30 mínútur á dag ?  Jafnvel þo talin séu með skúringar, að laba upp tröppur og garðvinna ?

Að hjóla til vinnu eða í öðrum erindum er frábær leið til þess að tryggja sér  hóflega hreyfingu samofin daglegu lífi.  Ekki allir geta þetta, en mun fleiri en gera það.  Rannsóknir hafa leitt líkur á því að hjólreiðar séu meðal heilbrigðustu líkamsræktin sem völ er á og þeir sem hjóla daglea lífa lengur og lífa heilbrigðari lífi. Sjá rannsóknir Lars Bo Andersen, og samstarfsmanna frá árinu 2000, "All cause mortality ... cycling to work.."

 


mbl.is „Gáfnahjól“ til höfuðs offitu barna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Halló! það er nú stundum ekki alveg hægt að senda börnin sín út, sérstaklega þegar fólk býr í stórborgum (NY, Chicago... ofl.) Svo er nú bara þannig að börn vilja frekar vera inni núna heldur en að vera úti að leika sér eins og í gamla daga!!! Þannig að ég segi að þetta sé töluvert betra framtak heldur en Super mario og aðrir tölvuleikir!!!

Íris (IP-tala skráð) 9.2.2007 kl. 19:40

2 Smámynd: Morten Lange

Jú, það er einmitt það sem þarf að vinna í.  En ég ersammála að þetta framtak sé vel meint og eflaust geti skilað einhverju.  Það er samt sem áður birtingamynd þess að eitthvað sé að, að mínu mati.

Morten Lange, 9.2.2007 kl. 19:52

3 identicon

Það er tekið fram að þetta hjól er fyrir 3-6 ára. Börnum á þessum aldri er ekki óhætt að vera á eigin vegum úti að hjóla og það er hreinlega mælt gegn því að börn yngri en sex ára börn hjóli nálægt umferðargötum - jafnvel þótt þau séu í fylgd með fullorðnum.
Svo er ekki eins og að þetta minnki áhugann á raunverulegum hjólreiðum, ef eitthvað er þá hugsa ég að þetta myndi auka þann áhuga - en ég hugsa að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af því því ég efast um að þetta verði vinsælt.

gummih (IP-tala skráð) 21.2.2007 kl. 09:26

4 Smámynd: Morten Lange

Eitthvað til í þetta hjá þér, sérstaklega að þetta verði sennilega ekki mjög vinsælt.  

En mér  finnst þessi leikföng sem sagt vera birtingarmynd þess hvernig samfélagið er orðið.
Ef 4-6 ára  börnum er ekki óhætt að leika sér úti við húsin þar sem þau búa,  þá er eitthvað meira en lítið að.  

Morten Lange, 21.2.2007 kl. 09:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband