Leita í fréttum mbl.is

Veðrið framundan getur sannfært suma

Eftir þetta sumar verða kannski  enn fleiri sem munu sjá að við séum að breyta loftslaginu.   

Ekki síst ef annar stór fellibylur fer á land í BNA. Sjá t.d þess grein : 'Very Active' Hurricane Season Predicted.  

Kannski, ef fólk vaknar í sumar og haust getum við tekið höndum saman og snúið blaðinu við. Koma okkur saman um CO2 skatta , eða jafnvel kvóta. Gera margar litlar breytingar og sumar stærri, á mörgum sviðum sem jafna út / bæta  samkeppisumhverfið fyrir mismunandi orkulindir, samgöngumáta ofl. 

Við munum þá ekki bara minnka likurnar á verstu afleiðingum á loftslagsbreytingunum, heldur líka spara peninga, minnka staðbundinni mengun, styðja við frumkvöðla á orku- og sparnaðarsviði, á sviði almenningssamgangna, hjólreiða  og göngu,  bæta heilsu, minnka halla á utanríkisverslun og margt fleira jákvætt. 

Þá vil ég benda á umfjöllun um "The Great Global Warming Swindle"  sem sumir sem ekki geta trúað  enn að við séum að breyta lofthjupnum, og hnettinum eru hrifnir af :  

Sjá :  

http://en.wikipedia.org/wiki/The_Great_Global_Warming_Swindle

http://www.realclimate.org/index.php/archives/2007/03/swindled/ 


mbl.is Samkomulag náðist um loftslagsskýrslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Leifur Þorsteinsson

Þú ert við sama heigarðshornið. Hvernig væri að þú færir að hugsa.

Þú getur líka byrjað að lesa söguna,saga íslandsbyggðar dugar alveg

sem sönnun fyrir því að þessi mýta um gróðurhúsaáhrif er tómt þvaður

og það vita þeir vísindamenn sem starfa að raunverulegum vísinda

rannsóknum við háskóla og vísindastofnanir. Það dugar ekki að berja

hausnum við stein og taka undir með pólitísku ráði þó það sé á vegum

SÞ því ráðstefna getur aldrei skorið úr því hvað er vísindaleg staðreynd

enda hefur þeim ekki tekist að sanna þessa tilgátu um gróðurhúsaáhrif

sama þótt þeir segi 90%. Náttúran fer sínu fram sama hvað mannskepnan

bröltir og hún verður að taka því og gera ráðstafanir til að minka afleiðing-

arnar. það er svo allt önnur staðreynd að síða litla ísöld leið um1800 hefur

hitastig farið hækkandi og sérlega um miðja síðustu öld (1920-40) síðan

dróg úr hitun en fer hækkandi aftur um 1990. Og það sem er athyglisvert

er að hitastigið hefur algjörlega fylgt virkni sólar (sólblettum) svo ekki þarf

fregar vitnana við.

Það er líka athyglisvert að það varð að semja um málamiðlun til að koma

skýrsluni út sem bendir til þess að ekki sé hú byggð á vísindalegum grunni.

Leifur Þorsteinsson, 8.4.2007 kl. 14:43

2 Smámynd: Morten Lange

Leifur : Það kemur þínum málflutningu illa að saka öðrum um að hugsa ekki.  Þetta dregur athyglina frá rök þínum.  Ég ætla ekki að saka þér um hið sama, þótt ég telji að þú hafir ekki kynnt þér rök IPCC nógu vel, miðað hversu miklum áhuga þú virðist hafa á efninu.

Það er nokkuð ljóst að við náum ekki að sannfæra hvort annað á næstunni um neitt tengd loftslagsbreytinga. Og ekki batnar líkurnar á því að sannfæra nokkurn með því að beita ad hominem "rökum".   

Morten Lange, 8.4.2007 kl. 16:57

3 Smámynd: Leifur Þorsteinsson

Komdu með rök, byggð á fysiskum og kemiskum eiginleikum CO2 og Metan, að

þessar tvær lofttegundir geti orsakað gróðurhúsaáhrif sem um er talað, í konsentration

sem mæld er í tíuþúsundustu hlutum.

Eitt saltu vita að vísindi eru ekki pólitík, þó margir vilji beita þeim sér til framdráttar.

Ég veit vel hvað IPPC er og hvernig slík samtök vinna, pólitísk hrossakaup eru og geta

aldrei orðið vísindi.

Leifur Þorsteinsson, 8.4.2007 kl. 17:27

4 Smámynd: Morten Lange

Takk fyrir svarið, Leifur.  Ég hef því miður ekki tíma núna til að kafa ofan í þessu.  Ef þú vilt fá svar sem fyrst, og þú vilt ræða þessu á íslensku, og helst innan bloggheima, mæli ég með að þú spyrji kurteislea á bloggi  Einars Sveinbjörnssonar.

Önnur möguleiki, til að halda umræðunni og rökin til haga, væri að setja fram rökin í grein um loftslagsbreytingar í Wikipediu (Etv á slóðinni http://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Gróðurhúsaáhhrif ) . Skrýtið að enginn hafi búið til grein á Íslensku þar enn um þetta málefni.

Morten Lange, 8.4.2007 kl. 17:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband