Leita í fréttum mbl.is

Til hamingju með stórátaki fyrir hjólreiðar !

Mér fannst ótrúlega lítið fjallað um málefninn í umfjöllun mbl.is  frá Landsfundi  Sjálfstæðisflokksins. Fyrirsagnir um frábæran sigur leiðtogana, eins og við værum í Kína.

En fyrir þá sem hafa áhuga á  
- lýðheilsu
- heilsu starfsmanna
- hækkandi útgjöldum í heilbrigðisgeiranum
- umhverfisvernd ( blá, rauð  eða græn)
- umferðaröryggi
- hagkvæmni
- greiðum samgöngum

Til hamingu með eftirfarandi sem Landsfundurinn samþykkti :

"Landsfundur hvetur til þess að stórátak verði gert í að byggja upp hjólreiða- og göngustíga í þéttbýli með heildstæðum hætti í samræmi við ný vegalög og fagnar því frumkvæði samgönguráðherra að líta á slíka vegi sem hluta af þjóðvegakerfinu. Þar sem umferð er minni skal huga að öruggum og góðum vegöxlum fyrir gangandi og hjólandi umferð. "


Þá er fjallað um að efla almenningssamgöngur ( líka í þéttbýli) og að gefa strætó fórgang.
Flott  !

Lesið í samhengi hér :
  http://www.xd.is/xd/skipulag/landsfundur/?ew_4_a_id=276530


Svo er áhugavert að draga línurnar aftur til Landsfundarins  2005, en þá var eftirfarandi samþykkt :

"Til að tryggja megi greiðari umferð gangandi og hjólandi vegfarenda hvetur landsfundur til átaks við gerð göngu- og hjólreiðastíga þar sem það á við, um leið og lagt er til að slík stígagerð meðfram þjóðbrautum verði alfarið á hendi ríkisins líkt og reiðvegir. "

( Frá
http://www.xd.is/xd/leit/skoda_nidurstodur/Default.asp?ew_0_a_id=161908 )




Reyndi að finna út hvort Samfylkingin hafi samþykkt eitthvað í þessa veru um helgina, en fann engar ferskar ályktanir á vef þeirra.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hver er staðan í dag með göngu og hjólreiðastíga meðfram þjóðbrautum að mati ykkar hjólreiðamanna? Nú hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið í aðstöðu til að láta tillögur sínar frá 2005 verða að veruleika.

Sigríður (IP-tala skráð) 23.4.2007 kl. 23:27

2 Smámynd: Morten Lange

Takk fyrir spurninguna, Sígríður. Vona að þú liti inn aftur til að sjá svarið :-)

Meðfram þjóðbrautum hefur harla lítið verið gert á seinni árum, sem við höfum tekið eftir. Stígarnir hafa að miklu leyti verið gerðar til útvistar, og ekki enn á neinum stað með einkenni hjólreiða umfram göngu í huga.

Stórnmálamann virðist sumir hverjir farnir að viðurkenna að það þurfi að hanna út frá hjólreiðum til samgangna ( á 20-40 km hraða) , en ég þekki ekki til að borgin, önnur sveitarfélög, né Vegagerðin séu að afla sér þekkingar á þessu sviði.

Ágætis tækifæri væri að mæta á ráðstefnu um hjólreiðar : Velo-City 2007 12-15 júni í München. ( www.velo-city2007.com )

Morten Lange, 24.4.2007 kl. 13:25

3 identicon

Já mér finnst skrýtið að ekki sé leitað til ykkar hjólreiðamanna með álit og ráðleggingar, ef einhver alvara er á bak við þessi orð stjórnvalda um átak í gerð göngu og hjólreiðastíga.

Sigríður (IP-tala skráð) 26.4.2007 kl. 23:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband