Leita í fréttum mbl.is

Mannfornir í umferðinni

Fyrir hálftíma síðan birtist sjöundi fyrirsögnin á vef mbl.is um umferðarslys í dag, sýnist mér. Og ekki hefur verið fáar fregnir af umferðarslysum um helgina.

Mér þótti fróðlegt að vita hvort umferðarslys fái alltaf jafn mikill forgang, eða hvort mbl.is er að reyna að fá menn til að hugsa sín gang í umferðinni.  Mér finnst nokkuð skýrt að þörfin séu brýn. Bílum  ætti ekki að meðhöndla sem leikföng, eða á neinn hátt meðhöndla eins og auglýsingar hvetja til... nánast.

Hér eru fyrirsagnirnar :

  • Vesturlandsvegur lokaður vegna umferðarslyss
  • Lögreglubíll valt á leið í útkal
  • Ferðamaður missti stjórn á bíl sínum
  • Ungur maður slasaðist í vélhjólaslysi
  • Harður árekstur á Kjalvegi
  • Lýst eftir vitnum að umferðaróhappi
  • Sekt og ökuleyfissvipting fyrir að aka undir áhrifum áfengis á stolinni bifreið

Fyrirsögnin sem ég notaði er stolið úr Speglinum á Rás 1. Þeir voru með umferðarslysin og aðgerðaleysið tengt þeim sem þema laust fyrir jól í fyrra.

Það mætti allveg senda það efni aftur og taka upp þráðinn.


mbl.is Vesturlandsvegur lokaður vegna umferðarslyss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Veistu ég hef verið að velta þessu fyrir mér með tilliti til helgarinnar ..það að bílar séu ekki leikföng.. það er þó akkúrat sá punktur sem ansi margar bílaauglýsingar ganga út á "dótabíll fjölskyldunnar og æi skjótast upp á fjöll eftir ísmolum þvílík hallærisheit!!!!" Ekki hefur verið lítið rætt að undanförnu um umferðarslys ungmenna og það er gott!! Þeim finnst þau sjálf ódauðleg, því miður, en hvers vegna? Það er okkur sjálfum að kenna!
Mig langar að benda á að okkur finnst öllum alveg sjálfsagt, það fyrirkomulag sem viðgengst í flugnámi þ.e.a.s. að eftir ákveðinn tímafjölda með kennara, máttu taka Solopróf og þvínæst eftir að ákveðnum fjölda flugtíma er náð.. þá fyrst máttu taka farþega! Þetta finnst mér miklu sniðugra og skynsamlegra fyrirkomulag heldur en það sem nú er í gildi, manni krossbregður þegar nánast, daginn eftir 16 ára afmælisdaginn, þau eru komin af stað í æfingaakstur!! Ég meina auðvitað vantar alveg heildstæða sýn á allt það sem viðkemur þessum krökkum. Hækkun sjálfræðisaldurs upp í 18 ár var að mínu mati skynsamleg aðgerð en þá hefði alveg mátt hækka bílprófið upp í 18 og æfingaaksturinn í 17 ár og leyfa þeim fyrst að taka farþega þegar þau eru búin að vera án óhappa í 1 ár! Og mér finnst fúlt til þess að vita að meiraprófsréttindi sé eitthvað sem maður getur orðið sér út um við 18 ára aldur.. veistu það er einfaldlega einum of eða geðjast þér að tilhugsuninni um að mæta einum 18 ára á trailer ja skulum segja á eða í nágrenni Öxnadalsheiðar ..við skulum segja í haust og vetur ha? !! Hvað verður næst .. skotvopnin niður í 18 ára líka? Ég get orðið svo reiður þegar ég hugsa um að þessi grey mega vart vinna ..eitthvað e.s.b kjaftæði eða álíka en þau eru orðinn markhópur lánastofnanna og annarra fyrir löngu.. við lækkum kosningaaldurinn niður í 18 af því að það hentar okkur en það er hrópandi mótsögn, finnst mér, við hvernig annars á að meðhöndla þennann hóp.. þau fá enga aðlögun þau verða fullorðin 18 ára (þá á ég við að til dæmis læra það að vinna sér inn fyrir hlutunum.og bera ábyrgð á að mæta í vinnu og herðast aðeins!..því auðvitað læra þau það sem fyrir þeim er haft kaup alls á lánum! Þau verða að eiga allt strax, eins og sumir fullorðnir! )og sumir fullorðnir vilja meira að segja vera með svo mikinn.. fyrirgefið, ég meina það!!!.. aumingjaskap!!! að þeir vilja gefa þessum greyjum séns á að versla sér áfengi 18 ára.. nú ætla ég að hætta enda orðinn svo reiður að það rýkur út úr eyrunum á mér! Hugsum út í þetta! Norðangarri

Ólinga Björnsdóttir (IP-tala skráð) 4.7.2006 kl. 13:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband