Leita í fréttum mbl.is

Breytt TGV-lest : 574,8km/klst. Venjulegir ferðir á 280 km/klst nettó á milli lestarstöðva

Að þróað sé lest sem svífur á segulviði, er spennandi frétt.  Eins og kemur fram í fréttinni er reyndar nú þegar tl lest sem nýtur þessa tækni.  Það sem vantar að segja frá er að lest sem er "fremur venjuleg hraðlest"  í  samanburð við segulsviflestir,  hafi þegar setthraðamet sem slær  umtalaða segulsviflestina við.

 3.apríl 2007 mætti lesa á vef BBC :

A French high-speed train (TGV) has smashed the world record for a train on conventional rails by a big margin, reaching 574.8km/h (356mph).

Reyndar hefur japönsk Maglev lest farið aðeins hraðar eins og eining kemur fram þarna.  En etv er ekki verið að tala um hámarkshraði í tilraunum, æi grein mbl ? 

Mögulega er átt við hæsta leyfilegi hraði með farþegum á hluti af leið sem er í rekstri  (t.d.  320 km/klst fyrir hluti af TGV í Frakklandi  ), eða kannski er átt við meðalhraði á milli stöðva samkvæmt áætlun lestarinnar í venjulegri rekstri. Hið síðarnefnda er kannski áhugaverðast ?  

Eða eins og stendur í Wikipedia-grein um hraðlestir :

What is more useful is the fastest maximum operating speed (MOR) of ANY segment of any high speed rail line, currently 320 km/h (198.9 mph), a record held by service on part of the TGV Est Line in France. That line has now the fastest scheduled run in the world at 279.4 km/h from Lorraine-TGV to Champagne-Ardennes-TGV (167.66 km in 36 mn) 


mbl.is Ofurlest á 500 km hraða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elías Halldór Ágústsson

Ég gleymi því ekki þegar ég fór frá Brest til Parísar í hraðlest árið 1981. Lestin lagði af stað klukkan 09:00 og mig minnir að hún hafi verið tvo tíma á leiðinni, frekar en einn. Á sekúndunni 09:00:00 lokaðist hurðin og lestin mjakaðist mjúklega af stað. Ég fann aldrei fyrir að ég væri á hreyfingu nema þegar ég leit út um glugga.

Þegar lestin kom á áfangastað hægði hún á sér svo hægt að maður fann varla fyrir því að hún væri að stöðvast. Hún stansaði að lokum og dyrnar opnuðust þegar sekúnduvísirinn á klukkunni á brautarpallinum sýndi að klukkan var 11:00:00.

Þetta var fyrir 26 árum. Maður skyldi ætla að einhverjar framfarið hafi orðið síðan. 

Elías Halldór Ágústsson, 16.1.2008 kl. 12:42

2 Smámynd: Elías Halldór Ágústsson

Leiðinda stafsetningarvillur, grrrr ...

Elías Halldór Ágústsson, 16.1.2008 kl. 12:43

3 Smámynd: Morten Lange

Þetta er svipað og upplífun minni af ferð með TGV frá Lausanne í Sviss til Parísar, á Interrail ferð  1985. Bara hluti af leiðinni var þá á sérstakri TGV-braut.  Munurinn er að beygurnar eru aldrei krappar, og ekki farið mikið upp og niður í landslaginu, allt teinadótið mjög vel hannað, með góðum undirstöðum og þess háttar. Þetta var unun.

Morten Lange, 17.1.2008 kl. 10:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband