Leita í fréttum mbl.is

Vélknúin ökutæki orsök 100% banaslysa í umferðinni

Það er kannski ekki fréttnæmt því allir vita það, en oft gleymist þetta samt, þegar horft er til forvarna í umferðinni. Í hvert skipti sem einhver drepist í umferðinni er vélknúið ökutæki aðal-orsakavaldur og það sem segir til um lokaúrslit.

Það er ótrúlega algengt að beint eða óbeint sé verið að klína ábyrgð á gangandi vegfarendum eða aðstæður á slysstað þegar fjallað er um árekstrar gangandi og akandi.  

Að öllu jöfnu er líka minna verið að fjalla um orsök þegar gangandi er keyrður niður, og það er hreinlega eins og gangandi sé minna virði en akandi. 

Á vissan hátt ætti þetta að vera öfugt.  Stór og sterkur bíll drepur varnalausan einstakling sem ekki gerir neinum mein, heldur ýtir undir heilbrigði og umhverfi með sitt val á samgöngumáta. 

"Victim blaming" er þetta stundum kallað á ensku.

Þó að enginn hefur dáið á reiðhjóli í umferðinni undanfarin ár,  þá   er sama munstur mjög skýrt í umfjöllunin þegar bílar keyra niður hjólreiðamenn.  Mest er talað um hvað hjólreiðamaðurinn hafi hugsanlega gert af sér, en ekki sagt frá því hvernig  ökumaðurinn hafi ( í mörgum tilfellum )  klárlega ekið og geyst miðað við aðstæður, verið undir áhrifum áfengis,  fíkniefna eða syfju.  

Þessi stöðugi bjögun á sannleikanum jaðrar við  réttindabrot.  Og  þá er ég kannski að draga úr þessu ef eitthvað.

Í speglinum fyrir nokkru var spurt hvernig við getum látið umferðarmannfornir viðgangast. Þetta er spurning sem við þurfum að spyrja oftar.  En að tala um slysalaus sýn  er  mikill blekking. Og sérstaklega þegar aftur er vegið að fornarlömbin, í þeirri herferð,  þeim girt af og sögð að verja sig, passa sig,  miklu, miklu frekar en að lækka hraða verulega og refsa þeim sem gerast brotlegir í ríkari mæli, gera ökutæki upptæk miklu fyrr, og þess háttar. 


mbl.is Hraðakstur algengast orsök banaslysa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilberg Helgason

Það er alveg merkilegt að Einstaklingurinn verður alltaf fyrir slysinu. Fyrirsagnir eins og

Hjólreiðamaður fyrir bíl
Barn fyrir bíl
Um dagin var það hjólreiðamaður með Ipod fyrir bíl

Þetta er svolítið merkileg ábending hjá þér og alveg hárrétt. Það er aldrei ökumaður í þessum bílum heldur eru bara bílarnir að keyra fólk niður.... Það ætti kannski að benda þeim sem semja þessar fyrirsagðir á þessa skemmtilegu klisju "guns dont kill people, people kill people"

Það má jafnvel yfirfæra hana á að "Bílar keyra ekki á fólk heldur ökumenn"

Vilberg Helgason, 30.6.2008 kl. 15:57

2 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Það eru að sjálfsögðu ekki vélknúin ökutæki sem eru orsök slysa og hafa aldrei orðið, því að það eru ökumennirnir sem taka ákvarðanirnar enn ekki ökutækin.

Það er heldur ekki hraðinn sem einn og sér drepur.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 30.6.2008 kl. 19:12

3 Smámynd: Morten Lange

Afdrifaríkasti ákvörðunin sem ökumaðurinn tekur er að kaupa ökutæki og að fara af stað, þrátt fyrir því að hann viti að ákveðinn hætta er á því að hann mun óvart drepa einhvern, jafnvel þó hann fari eftir hámarkshraða, Því þeir eru of hátt settir.

Við erum að fórna 15-30 líf og að minnstu kosti tíu sinnum fleiri  slasaðir á hverju ári vegna þess að við veljum hættulegasti farkostinn.  Það er munur á að grafa skurð með skóflu, litla gröfu og góðar "mótvægisaðgerðir,  rísagröfu eða með sprengjum. 

En ég er að ýkja pínulítið, og auðvitað þurfum við að horfa til gerðir bílstjóra og hegðun hans, en ekki tala eins og bílinn sé gerandi.

Ég er ekki heldur að segja að bílinn sé ekki góður og nauðsýnlegur, en við erum að ofnota hann og það er nánast eins og við séum háðir bílnum. Við erum ekki sem upplýst samfélag að stjórna ferðinni með rök og framsýni   ...  enn sem komið er. 

Takk báðir fyrir athugasemdirnar. 

Morten Lange, 30.6.2008 kl. 23:04

4 Smámynd: Morten Lange

Heh, svo er ég auðvitað að tala um gerðir ökumanna líka  í færslunni...  :-)

Fyrirsagnir ná sjaldnast  að endurspegla sú  samsetta mynd sem veruleikinn oftast er.

Morten Lange, 30.6.2008 kl. 23:09

5 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Margar fréttir af slysum eru svo sannarlega ekki rétt orðaðar. Fyrir utan því sem þú bendir á er það eitt orðalag sem fer ósköp í taugana á mér: "Bílstjórinn missti stjórn á bílnum sínum". Hvað gerist þegar einhver missir stjórn á ökutækinu? þá ekur hann ekki miðað við aðstæðurnar, hann ekur of hratt, er kærulaus, talar í síma, borðar eða reykir á meðan hann ekur. Við tölum nú ekki um ef hann er undir áhrifum. Á hverju má svona ekki koma fram í fréttunum?

Úrsúla Jünemann, 1.7.2008 kl. 22:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband