Leita í fréttum mbl.is

Tvær ályktanir frá Félagi um lýðheilsu

Á síðasta aðalfundi Félags um lýðheilsu voru eftirfarandi tvær ályktanir samþykktar og dreift til fjölmiðla:
 

I. Holl skólamáltíð

Aðalfundur Félags um lýðheilsu, haldinn 10. desember 2008, samþykkir eftirfarandi ályktun:

Í þeim efnahagslegu þrengingum sem ríða yfir þjóðina má búast við að kjör margra fjölskyldna verði það kröpp að tekjur dugi vart fyrir nauðþurftum. Við slíkar aðstæður er brýnt sem aldrei fyrr að samfélagið standi vörð um velferð barna. Það má ekki líðast að efnahagsþrengingar verði til þess að börn í okkar samfélagi fá ekki viðunandi viðurværi, nægan og hollan mat. Holl skólamáltíð sem stendur öllum börnum til boða gegnir mikilvægara hlutverki en ella við núverandi aðstæður. Félagið skorar á sveitarstjórnir og skólayfirvöld að búa þannig að börnum að holl máltíð sé í boði í öllum grunnskólum landsins og að tryggt sé að ekkert barn þurfi að fara á mis við skólamáltíð vegna bágra kjara fjölskyldunnar.

 

II. Heilsusamlegri samgöngur

Aðalfundur Félags um lýðheilsu, haldinn 10.desember 2008 í Reykjavík, skorar á yfirvöld að samræma hagræna hvata í lögum og reglugerðum þannig að þeir feli í sér hvatningu til að nýta umhverfisvænar og heilsuvænar samgöngur. Nú eru dæmi um að að bílastæði séu skattfrjáls og niðurgreidd en hlunnindaskattur á styrkjum til að nýta strætisvagna og til kaupa á hjólreiðabúnaði.

 

Þetta er mitt framlag til að dreifa þessu og gjöra kunnugt, því þarna eru skynsamleg skilaboð á ferðinni.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjóla-Hrönn

Styð þetta heilshugar.  Ég býst við að skólamáltíðirnar komist fljótlega á koppinn, eeeen ég yrði mjög hissa ef ég sæi hitt gerast á meðan ég lifi.  Það eru dæmi um að vinnustaðir sem flytjast niður í miðbæ greiði bílastæði fyrir starfsfólkið, en hafni að taka þátt í strætókortum.  Hvað þá að verðlauna þá sem hjóla með þátttöku í búnaði.

Ég legg mitt af mörkum með því að reyna að ala upp vistvæn börn, kenna þeim að nota reiðhjól og strætó til að koma sér á milli staða.

Hjóla-Hrönn, 29.12.2008 kl. 13:20

2 Smámynd: Morten Lange

Takk fyrir innlítið og stuðningin, Hjóla-Hrönn.

Þér finnst að mér sýnist ályktun númer tvö vera óraunhæf við núverandi aðstæður í stjórnmálum ?

En munum að hlutir hafa talsvert breyst undanfarið. Bæði hvað varðar peninga, umhverfismál og lýðheilsu.  Framsýnni viðhorf eru að ryðja sér til rúms.  Ég nefndi þetta mál með skattlagning samgöngustyrkja á opnum fundi í fyrra þar sem Steinunn Valdís Óskarsdóttir var til staðar.  Hún tók þetta upp í blaðagrein og nefndi í ræðu á Alþingi

"Það hljómar mjög einkennilega en er nú því miður þannig að þeir starfsmenn ríkisins sem kjósa t.d. að nota bíla í sinni vinnu — að þau hlunnindi eru skattfrjáls. En notir þú strætó og fáir strætókort, veskú þá þarftu að borga skatt af þeim. "

Steinnun Valdís sagðist í haust í grein í 24 stundum  (PDF, leitið að "hlunnindi")  hafa varpað spurningu um þetta til Fjármálaráðherra.  

Sama gildir hjá öðrum sem fá strætókort,  ( t.d starfsmenn Símans, Mannvits og Fjölbrautar í Ármúla) eða sambærilega upphæð borguð útvegna þess að menn nota ekki bílastæði.  ( T.d. Starfsmenn Mannvits og FÁ )   Alltaf er  þetta er skattlagt sem hlunnindi, á meðan ákveðin upphæð bílastyrkja er skattfrjáls og sömuleiðis gjaldfrjálsu bílastæðin við vinnustaði. 

Stundum er talað um að búa til hagræna hvata til að benda neyslu í umhverfisvænni átt.  Til dæmis gjaldfrjáls bílastæði fyrir rafmagnsbíla og þess háttar.  Þetta er allveg í sömu anda.  Í Kaliforníu eru fyritækjum sem uppfylla viss skilyrði (m.a. staðsetning í þéttbýli og mengun bíla sé vandi ) bönnuð að  hyggla þá sem mæta á bíl til vinnu.

Sjá til dæmis :

Morten Lange, 29.12.2008 kl. 14:44

3 Smámynd: Morten Lange

Hér er önnur krækja með fregnir um að hlutir séu að batna smám saman.

Ride Your Bike to Work | Sustainability In Business [netdirectbusiness.com]
From the page: "A cash bonus could await if you do join the ranks of bike commuters. The Bicycle Commuter Act, which takes effect in 2009, lets companies offer regular bike commuters a "fringe benefit" of $20 a month for cycling expenses, either in cash or through a pretax salary allocation. The amount may be small change, but it's a big sign that car-crazy America now recognizes that commuting is also about the bike"

Og  í Bretlandi hafa þeir lengi haft möguleiki á að vinnuveutandi gefi starfsmönnum stórum hluta í  reiðhjóli.

Morten Lange, 29.12.2008 kl. 15:40

4 Smámynd: Hjóla-Hrönn

Nei, Morten, ég er alls ekki að segja að þetta sé óraunhæft hjá þér.  Bara að stjórnmálamenn og kerfið allt hér á Íslandi er svo seinvirkt, að ég sé ekki fram á róttækar breytingar í málefnum hjólreiðafólks eða strætósamgangna á næstu 20-30 árum, miðað við hvað ég hef séð á síðustu 25 árum sem ég hef búið hér í Reykjavík.  Ég verð græn af öfund þegar ég kem til annara landa sem eru með góðar strætó/lestar og hjólreiðasamgöngur.  Hef hjólað í Kaupmannahöfn og Oslo og það er svo auðvelt og þægilegt.  Lestarkerfið í London er mjög auðvelt.  En síðustu tvö skipti sem ég reyndi að taka strætó í Reykjavík þá endaði ég í kolvitlausu hverfi.  Hér er ekkert í lagi, engar góðar hjólabrautir, strætóleiðir óskiljanlegar og tíðni ferða of lág.  Það er ekki einu sinni gott að keyra hérna, svei mér þá, gatnakerfið er eitthvað svo kjánalega hannað.  En vonandi er ég bara óþarflega svartsýn og hér verði samgöngumálaráðherra með blóm í hnappagatinu eftir vel lukkaða samgönguáætlun eftir 2-3 ár

Hjóla-Hrönn, 29.12.2008 kl. 21:03

5 Smámynd: Morten Lange

Já þá erum við sammála. :-)  

En eitt er visst og það er að ef enginn heldur "nýjar" hugmyndir á lofti verða seint breytingar. Er reyndar að lesa bók núna sem snýst um hvernig (bráðar) breytingar verða (The tipping point).  Höfundurinn  er sjálfsagt að horfa þessu með ákveðnum gleraugum og nær ekki að fanga öllu, en bókin er  áhugaverð.  Talar um þrjár tegundir sem allir eru nauðsýnlegir : sérfræðingar, fólk  sem hefur  sambönd og fólk sem eru góðir að selja hugmyndir.

Morten Lange, 30.12.2008 kl. 00:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband