Leita í fréttum mbl.is

5000 km á ári : lægri bílatrygging ?

Lækkun á bílatrygging  ->  kaupa reiðhjól / uppfæra búnað -> aka minna  og fá meiri lækkun

Þannig ætti þetta að vera.

Því sem þeir sem aka minna eru væntanlega í minni hættu á að valda eða lenda í tjóni. 

Þar að auki ætti þetta reyndar að hafa áhrif á sjúkdómatryggingu líka, því hreyfing í stað hreyfingaleysis, eflir heilsu svo um munar. Rannsóknir sýna að hjólreiðamenn lifa lengur og verða heilbrigðari, með færri veikindadaga ofl. 

Fyrir hluti af peningunum sem fólk sparar, kaupir það reiðhjól eða lætur gera við, eða kaupir nagladekk og ljós  og fatnað til að hjóla í roki og rigningu.

Og svo hjóla og þannig fækka fjölda kílometra sem eru farnar á bílnum. 

Þá ættu tryggingafélög að sjá sóma sinn í að bjóða upp á lækkuð iðgjöld fyrir þá sem keyra lítið, eins og er í boði erlendis :

http://www.freeindex.co.uk/article(low-mileage-car-insurance)_144.htm

http://www.google.com/search?q=insurance+mileage

Annað er í rauninni ákveðin  óréttlæti.  Borgað með þeim sem aka mest, og rukkað af þeim sem aka minna.  Ætti frekar að vera öfugt, ef eitthvað. 


mbl.is Útlit fyrir langþráða lækkun bílatrygginga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 Nú fer hálkan loksins að hverfa af götunum og nú ætla ég að hjóla ,reyndar kom góður kafli í febrúar.'eg keyri reyndar um 15000 km á ári      en það ætti að vera verðflokkar  s.s. innan við , 10 þús km  ,10-15 þús,15-20 þús og svo frv.Svo finnst mér hart að vera á 8 ára bíl en borga hærri iðgjöld vegna þess að bílar eru orðnir  dýrari , ergó ég verð að borga meira út af flottu porche jeppunum ,benzunum og fínu bíla ríka fólksins.Tryggingamenn segja að kostnaður vegna mjög dýrra bíla hafi aukist og kemur það ekki niður á öllum líka þeim sem eru á gömlum bílum.

hordur halldors (IP-tala skráð) 17.3.2009 kl. 14:33

2 identicon

Tek það fram að ég keyri bílinn 15 þús. á ári en hjóla svona 20 km á viku á sumrin.

hordur h (IP-tala skráð) 17.3.2009 kl. 16:48

3 Smámynd: Ingi Björn Sigurðsson

Ég er að vinna hjá fyrirtæki sem er að bjóða upp á tryggingarlausn sem byggir á notendadrifnum tryggingum. Pay as you drive.. með útfærslu möguleika á því að reikna út aksturslag eða Pay how you drive.. Veit ekki hvort lausninn sem við erum að vinna að verði boði hér á landi.

Ingi Björn Sigurðsson, 17.3.2009 kl. 19:18

4 Smámynd: Morten Lange

Sammála því Hörður, að tryggingafélögin ættu að vera með nokkra verðflokka, sem tengjast hversu langt eða mikið  er ekið.  Þetta með hvað maður í raun kaupir og fær varðandi tryggingar er ekki jafn einfalt og þegar maður kaupir  lampa, reiðhjól eða tölvu.

Flott að heyra hvað þú hjólar mikið.  Hversu margar vikur nærð þú, svona að öllu jöfnu ? 

Ég hjóla sennilega um 15 km á viku til vinnu og heim, allt árið, en svo bætist viðað ég hjóla á fundum um allt Höfuðborgarsvæðið allt árið. Fundaferðir og verslunarferðir ná sennilega  6-10 km á viku að meðaltali.  Á sumrin fer maður í  hjólaferðir, til dæmis með fjallahjólaklúbbnum um Höfuðborgarsvæðið nokkur þriðjudagskvöld yfir sumarið. Hver ferð getur verið 20-45 km.  Stöku sinnum fer maður í legra ferðir með eða án gistingu, og svo til dæmis í Bláalónsþrautina 60+ km. Telur ekkert í heildina,  en "sýnir" að ekki sé neitt mál að hjóla aðeins lengra vegalengdir. Í  kvöldferðum ÍFHK eru oftast 9-14 ára krakka með í för. 

Hjóla líklega  um 1500-3000 km á ári,  en ek kannski 600 km, og flyg um tvísvar vegalengdin sem ég hjóla árlega.

Morten Lange, 17.3.2009 kl. 20:48

5 Smámynd: Morten Lange

Áhugavert að heyra, Ingi !  Endilega láttu vita ef þú finnur út eitthvað. morten7an hjá yahoo-com

Morten Lange, 17.3.2009 kl. 20:50

6 identicon

Ég er ósammála að því leiti að nú er ég til dæmis að keyra mjög mikið og það kemur niðrá mér á bensínkostnaði, ég yrði alls ekki sáttur ef ég þyrfti að fara að borga hærri tryggingar í bland við það!

Máni Hafþórsson (IP-tala skráð) 18.3.2009 kl. 03:37

7 Smámynd: Morten Lange

Skil þig Máni.  En þarna ertu að tala um eiginhagsmuni, en ég tel mig tala fyrir almannahagsmuni og jafnræði. (Auk eiginhagsmuna míns hóps, reyndar, en það er ekki það sem skiptir mig mestu máli, né vegur þyngst) 

Ég væri hinsvegar opinn fyrir því að ef einhver þurfi nauð-nauðsýnlega að aka (mikið) væri hægt að veita ökutækjastyrk á þeim grundvelli. Talandi ökutækjastyrki, þá eru þau í dag mikið óréttlæti. Hvers vegna eiga vinnuveitendur  að borga þeim sem aka bíl fremur en komast á milli staða með öðrum hætti. Reykjavíkurborg er að taka upp samgöngustyrki handa starsfmönnum í stað / sem arftaka bílastyrkja. Gott hjá þeim.

Morten Lange, 18.3.2009 kl. 10:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband