Leita í fréttum mbl.is

Ykjur og úlfur, úlfur

Þetta er nú dálítið ýkt hjá honum Runólfi.  Og alltaf tekið undir með honum og aldrei spurt neinna gagnrýna spurninga.  Ég get ekki skilið hvernig þetta geti komið niður á þeim verst stöddu. En  Runólfur notast  sennilega við aðra skilgreiningu á hver sé verst staddur en ég.  

Mér finnst pínu ófínt að beita þeim verst stöddu fyrir sér, ef í rauninni sé átt við þeim sem eru á milli 20  og 30   "percentile"  í tekjudreifingunni, en ekki þeim sem eru á neðstu 5%.

Annað er að  FÍB er nánast sífellt að væla yfir bensínverðinu.  Það verður svolítið úlfur, úlfur stemning yfir þessu.  Og svo veit maður að bensín er ein af þessum vörum þar sem ekki er búið að reikna inn fullan kostnað, vegna umhverfisþátta og heilbrigðisþátta.  Bensínið hefði átt að vera ennþá "dýrari".   Kíkið til dæmis á bloggi Stefáns Gíslasonar fyrir smá  útskýringu, eða grafið í mínar bloggfærslur 

Við höfum vanið okkur á allt  of lágu bensínverði, svipað og nýir notendur fá fíkniefnin ódýrt.  Fólk hafa trúað að lagt bensínverð mundi endast og hafa haldið fyrir eyrunum þegar einhver hefur sagt annað. Fjölmiðlar hafa alls ekki staðið sér í stykkinu.  Ef við hefðum skipulagt okkur út frá væntingum um hækkandi bensínverð eða  skilningu á ókostir þess að ofnota bensín og dísil, þá hefðu skellurinn ekki verið jafn mikill núna.  Mun færri hefði verið með stóra eyðslufreka bíla. Fleiri hefðu sleppt því að eignast einkabíl og almenningssamgöngur væru svipað góðar og gerist best á nágrannalöndum.

Að öðru leyti er örugglega eitthvað til í sumu af því sem Runólfur segir.  Sumir munu fá það erfitt og  sárnar mér mest erfiðleika þeirra sem standa að innlenda matvælaframleiðslu.  Það hefði mátt bjóða upp á mótvægisaðgerðir fyrir þá en ekki fyrir pallbíla fyrir hvern sem er.  Hvílík heimska sem sú ráðstöfun xD og xB  var !


mbl.is Bensínið aldrei dýrara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Morten:

Það voru tímar að ég varði hvaða vitleysu sem Sjálfstæðisflokkurinn gerði. Fyrir 2-3 árum hætti ég því og þótt ég sé hægri maður þá leyfi ég mér að vera ósammála "mínum mönnum" þegar samviska mín segir mér það og það er nú ansi oft á þessum síðust og verstu tímum. Undanfarin 1-2 ár er ég t.d. búinn að vera þeim algjörlega ósammála.

Það er þeim sem aðhyllast vinstri stjórnina hollt að minnast þess að ráðamenn eru einungis venjulegt fólk og fólki förlast!

Það besta er að ég held þú segir þetta af sannfæringu.

Ég er með 18 milljóna lán á húsinu mínu, sem einhvern tíma kostaði 37-38 milljónir. Við þessar skattahækkanir, hækkaði það lán um 80-90.000 kr! Það hækkar afborganirnar og minnkar mínar ráðstöfunartekjur. Ég bara ósköp venjulegur launamaður, sem tók ósköp venjulegt bílalán á myntkörfuláni eins og tugir þúsunda Íslendinga og það var tæpar 3 milljónir en er nú í tæpum 6 milljónum. Bíllinn er kannski í 3-4 milljónum og dugar fyrir 1/2 láninu og þar að auki óseljanlegur. Maður er í þeirri aðstöðu að maður getur ekkert gert, hvorki selt húsið eða bílinn. Manni líður eins og einhverjum sem er stillt upp við vegg og bíður eftir því að verða skotinn.

Ég á heima í Reykjanesbæ, en vinnustaður minn var færður til Reykjavíkur. Ég er því neyddur til að aka á milli, því ég losna ekki við húsið mitt og get því ekki flutt í nágrenni við minn núverandi vinnustað! 

Það sem þarf að gera er svo ótal, ótal margt en það sem á að setja í algjöran forgang er að lækka verðbólguna og afnema verðtrygginguna.

Og svona - by the way - það eru ekki alltaf þeir sem eru lægstir í tekjustiganum sem hafa það verst í dag, heldur þeir sem skulda og hafa misst vel launaða vinnu eða þeir sem hafa lækkað mikið í launum eða þeir sem tóku erlend íbúðarlán o.s.frv. Sem betur hef ég enn vinnuna og þótt laun mín hafi lækkað hef ég ekki enn verið skorinn niður við trog!

Það er eins og ráðamenn - núverandi og fyrrverandi - átti sig ekki á hvað hefur gerst! 

Guðbjörn Guðbjörnsson, 30.5.2009 kl. 10:03

2 Smámynd: Morten Lange

Takk kærlega fyrir innlitið og góðar athugasemdir, Guðbjörn.

Ég er ekki að segja að útfærslan á þessu hafi verið gallalaus.  Ég er ekki heldur í "með stjórninni" liðinu. 

En mér fannst umræðan um þessar breytingar samt mjög, mjög einhliða.  Ég er ekki í neinni aðstöðu til að leysa fjarhagsvanda fólks eða gefa ráð eða koma með lausnir. En ef eldsneytisverð hefði verið eðlilegt ( stöðugt yfir verðið sem þð er núna, eða helst hærra ) , þá hefðu verið til vel nýtsamlegir  almeningssamgöngur á milli Reykjanesbæjar og Reykjavíkur á viðráðanlegu verði.  ( Að ég tel .

Það getur líka verið að menn sem allir fara þessa sömu leið (meir og minna )  geti samnýtt bíla og sparað töluvert í rekstrarkostnaði.

Tek að lokum undir að ráðamenn, sem er venjulegt fólk, virðist ansi oft  fjarlægast fólkinu þegar það kemst til valda.

Morten Lange, 30.5.2009 kl. 11:52

3 Smámynd: Einar Þór Strand

Morten, það er bara þannig að stjórnmálamenn allra flokka eru því miður bæði glæpamenn og fífl og í kringum þá stendur hópur af rökkum sem ver þá hvað sem það kostar í von um bita af borðum þeirra. 

Þessi aðgerð eykur tekjur ríkissjóðs um rúman 5 milljarða nettó og sennilega ekkert þegar öll kurl eru komin til grafar, þetta er nánast sama upphæð og verið er til listamannalauna á ári.  Ég spyr er það réttlætanlegt að ríkið haldi mönnum þannig uppi á fullum launum en þeir fái svo afraksturinn í sinn vasa og eru 1600 mánaðarlaun ekki allavega heldur vel í lagt hjá ekki stærri þjóð en okkar en þetta slagar hátt í 1% fólks á vinnumarkaði.  En jafnframt færir þessi aðgerð verulega peninga frá öllum þeim sem skulda íbúðarlán og önnur verðtryggðlán vegna hækkaðrar vísitölu og afborgunar sem síðan þýðir minni neyslu og síðan fækkun atvinnutækifæra og svo framvegis.

Það er einfaldlega komið nóg af þessari stjórn Samspillingarinnar og Vinstri Gráðugra.

Einar Þór Strand, 30.5.2009 kl. 21:40

4 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Jarðefnaeldsneytið er mjög takmörkuð gæði. Það er hins vegar mjög mikilvægt til að sinna tiltekinni örkuþörf langt fram í tímann, þar sem annarra úrræða er ekki að vænta eða eru alla vega ekki í augsýn. Á því verði, sem það fæst nú um stundir, er það of ódýrt og leiðir það til sóunar. Ég tel t.d. að það sé afar ónáttúrulegt að ég, meðalskussinn, geti farið um hnöttinn endilangan nánast hvenær sem mér dettur í hug. En þannig er því farið og svo mörgu öðru.

Þetta hlýtur að breytast um okkar daga.

Sigurbjörn Sveinsson, 3.6.2009 kl. 22:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband