Leita í fréttum mbl.is

Fagnaðarefni fyrir ESB en ekki Ísland ?

Það verður spennandi að sjá hvort Eva Joly komist á Evrópuþingið, eins henni sýnist vera raunin, samkvæmt frétt mbl.is sem er linkað í hér að neðan

Gott fyrir Evrópuþingið og ESB mundi ég halda, fyrir störf gegn spillingu og fyrir skynsamlegri stefnu í umhverfismálum. 

En spurning hvort  hún hafi þá tíma til að aðstoða með rannsókn á svikum og prettum fjárglæframanna  hérlendis ?  Reyndar las maður um daginn að aðrir öflugir aðilar, sem hafa rannsakað fjárglæpi einræðisherra og þess háttar séu komnir inn í rannsóknina, og kannski einmitt fyrir tilstilli Evu.  Þannig að þó að hún hafi etv ekki mikill tími fyrir Ísland er útlítið ekki alsvart varðandi rannsókn. Eitt sem mun hjálpa okkur er að fleiri ríki, þar á meðal BNA minnir mig, séu um þessar mundir að leggja pressu á skattaskjólin. 


mbl.is Eva Joly náði kjöri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Liberal

Hún fær milljón á mánuði fyrir 2ja tíma vinnu.

Auk þess að hafa klúðrað STRAX stórum hluta málanna því hún sagði að þeir sem hún ætlar að rannsaka séu örugglega sekir, og þar með er hún búin að spilla málunum.

Bravó - með aðstoð Egils Helgasonar létum við þessa kellingu féfletta okkur svakalega.

Liberal, 7.6.2009 kl. 21:51

2 Smámynd: Morten Lange

"Liberal"  ( :-) )   :  Hún mun að ölum líkindum ekki standa í rannsókninni sjálf.  Enda búin að segja frá upphafi að hun væri önnum kafin.  Og svo þegar hún tók starfið, var talað um að hún yrði ráðgjafi, og mundi koma á tengsl við sérfræðinga sem höfðu unnið með henni.  Annars held ég að 2ja tíma vinna á mánuði sé  ýkjur hjá þér. Það geti átt við tíminn sem hún er samningsbundinn að vera á fundum eða þess háttar.

Morten Lange, 7.6.2009 kl. 23:34

3 Smámynd: Villi Asgeirsson

Ef hún skilar inn 10 milljóna hagnaði á tveimur tímum, er hún milljónarinnar virði. Veit svo ekkert hvort hún geri það.

Villi Asgeirsson, 8.6.2009 kl. 11:39

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Eva Joly náði inn á þetta Evrópuþing. Vonandi veldur hún usla þar.

Jón Valur Jensson, 8.6.2009 kl. 13:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband