Leita í fréttum mbl.is

Lækkun bensínverðs ekki rétta lausnin.

FÍB og margir aðrir hafa óskað eftir að stjórnvöld lækki álögur á bensín, en Pétur Blöndal hefur bent á að það væri rangt að bregðast við verðhækkanir sökum skorts með því að hafa áhrif á verðinu.  

Ég er sammála Pétri í þessu tilviki,  alls ekki viss um verði sammála Pétri varðandi verðmyndun í öðrum málum.   En ég held, eins og margir að olíuverð eigi bara eftir að hækka, ef horft er nokkur ár fram í tíman.  Það er kominn tími til að aðlagast hærra verð, og  fara að lita til sparnaðar  í bensín- og olíueyðslu, eða þá allt aðra kosti í samgöngum.

Ég sé að sjálfsögðu að hækkandi bensínverð er slæmt varðandi visitöluna og allt það. En þá þarf að huga að breytingum sem lagar þau vandamál,  en ekki ýtur undir neyslu á mengandi efni sem skort er á.  Kannski breyta samsetningu visitölu.  Nota tekjur ríkisins til að  hækka skattleysismörk,  fjárfesta í almenningssamgöngur, fjölga ferðum og stefna í hreinna bruna í rútu- og strætóflotanum ( metan, rafgeymar, vetni ?). Og ekki síst  fjarfesta í bættar tengingar  fyrir virkilega sjálfbæra kostinn : Göngu og hjólreiðar.  Marg-marg borgar sér, samkvæmt norrænum rannsóknum, ekki síst vegna þess hversu heilsusamlegt það sé. Hreint ótrúlega heilsusamlegt á okkar tímum þar sem hreyfingarleysi er eitt helstu heilsuvandamál vestrænna þjóða.  Meðallengd á ferð í Reykjavík er 3 km, og þriðjung ferða styttri en kílómeter, segir tölfræði borgarinnar. 

Margir einstaklingar og fjölskyldur mættu eflaust   athuga það að  sameina holla hreyfingu og samgöngur. Spara bæði bensín, tíma og útgjöld til heilsuræktar, og verða hressari. Ef maður kemst að því að þetta ætti vera hægt að prófa, því þetta er nú ekki nema 4-5 km í mesta lagi,  skrá sig í    "Hjólað í vinnuna" sem ágætis byrjun. 

 

 


mbl.is Bensínverð aldrei hærra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband