Leita í fréttum mbl.is

Sjá menn ekki (olíu)skóginum fyrir trjám ?

Að flytja fréttir af "minnháttar" sveiflur í olíu- og bensínverði virðist vera sumum blaðamönnum eða ritstjórnum mjög hugleikið.

Af hverju ekki hvíla þessa nærsýna fréttaflutningi smá stund og skoða stærri myndina ?  Hvert má ætla að verð á olíu stefni, og af hverju.  Hvaða rök mæla með að það fari kannski um tíma í öfuga átt ? 

Það væri frábært ef blaðamenn og fjölmiðlar mundu upplýsa í aðeins frekari mæli, frekar en að flytja innihaldsrýrar æsifréttir.  

Sjálfum þykir mér einsýnt að til lengri tíma muni olíuverð hækka talsvert, því það er að verða dýrari að ná olíuna úr jörðu og eftirspurnin er að aukast.  Þar að auki eru líkur á að einshvers konar megunarskattur verði sett á olíuna, þegar fram liða stundir.  Því er um að gera finna aðrar orkugjafar en ekki síður að finna leiðir til að minnka orkusóun.  Til dæmis hætta að hafa meira en tonn af stáli meðferðis ef maður ætlar út í sjoppu, eða til vinnu sem er fáum kílómetrum frá heimilinu (eða sem má ná með ágætum almenningssamgöngum eða í samfloti við aðra).

 


mbl.is Olíuverð hækkar vegna fellibyls
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arnór Baldvinsson

Sæll Morten,

Ég er sammála þér um hver olíuverð stefnir.  Það getur aðeins hækkað eftir því sem gengur á olíubyrgðir heimsins og erfiðara reynist að ná olíu úr jörð og sú olía sem næst verður verri til vinnslu.  Framleiðsla á "sweet crude oil" sem var gullolían í miðausturlöndum hefur dregist saman vegna þess að þær lindir sem hafa gefið eru smám saman að þorna upp.  Olíufélögin hafa löngu séð þetta og eru nú að safna í sarpinn til að vinna rannsóknarvinnu á sviði nýrra orkugjafa.  Þau vita sem er að ef þau finna ekki hentuga orkugjafa á næstu tveimur áratugum sem geta tekið við af olíu sem auðflytjanlegir og auðnýtanlegir orkugjafar þá verða olíufyrirtækin, sem reynar hafa öll breyst í orkufyrirtæki, ekki með í samkeppninni við ný tæknifyrirtæki sem eru að hasla sér völl á sviði endurnýtanlegra orkugjafa. 

Kveðja,

Arnór Baldvinsson, 10.11.2009 kl. 06:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband