Leita í fréttum mbl.is

Happdrættismiða fyrir viðkvæmum og mengunarlitlum

Það hlýtur að ver hægt að finna leið til þess að hvetja þá til dáða sem menga minna með einhverskonar hvata.  Og það er skelfilegt hversu máttlítill borgin tel sig vera gagnvart þeim sem brjóta á rétti íbúa til heilnæms lofts.  Borgin þorir ekki einu sinni að hafa orð á því að gott væri, sérstaklega þegar vetrarstillir eru, ef færri mundu nota bíla þessa daga, og  ef þeir sem aka mundu geta ekið hægar.  Þegar ekið er hægar dregur úr mengun úr púströrunum og dregur úr önnur svifryksmengun, svo sem tengd slit á götum, að rykið þyrlist upp.

Til að gera það skýrt hvar ábyrgðin liggur og sýna að borgin meti að sumir aka ekki um á bílum, væri hægt að gefa út happdrættismiða til vegfarenda sem ferðast með öðrum hætti.  Og þá ætti  að bjóða þeim sem mest verða fyrir barðinu á svifrykinu, sem tengist útblæstri og vegryki, happdrættismiða líka. Hægt væri að leyfa fólki sem eru  á lyfseðilskyldum lyfjum skrá sig  í happdrættinu.  Hvers konar vinningar urðu, hversu margir, og hversu oft yrði dregið er svo útfærsluatriði.  En maður gerir ráð fyrir að ekki yrði bíll í vinning. Hvorki á nagladekkjum eður ei, með púströri eður ei :-) 


mbl.is Svifryk yfir mörkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Var það ekki Gísli Marteinn sem ekki vildi draga úr umferð stórra jeppa í miðborginni?

Bergljót Aðalsteinsdóttir (IP-tala skráð) 15.12.2009 kl. 23:18

2 Smámynd: Hjóla-Hrönn

Það væri nú eftir Íslendingum að verðlauna með bíl eða mótorhjóli ;)

Svona eins og ég gerði eitt árið, búin að vera svo assgoti dugleg að hjóla í vinnuna, storma á fjöll og missa nokkur kíló.  Verðlaunaði dugnaðinn hjá sjálfri mér með risastórum konfektskassa um jólin...  Ekki gáfulegt.

Hjóla-Hrönn, 16.12.2009 kl. 09:26

3 Smámynd: Árni Davíðsson

Ég er ferlega á móti happdrættum en þetta gæti verið góð leið að ná til spilafíklana.

Árni Davíðsson, 16.12.2009 kl. 10:45

4 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Góð hugmynd, þetta með að verlauna þau sem menga minna. Hvort happdrættismiðar séu góð lausn veit ég ekki. Mér finnst afleitt hvað strætisvagnamiðar kosta mikið. Á meðan það er ódýrara að ferðast einn í bíl þá er strætó bara ekki spennandi. Frjálst í strætó og bann á stórum bensínhákum innst í Reykjavík væri alveg tímabært. Og bann á nagladekkjum.

Úrsúla Jünemann, 16.12.2009 kl. 11:21

5 Smámynd: Jón Rúnar Ipsen

Menn standa í misgáfulegum aðgerðum til þess að sporna við Bílum stðreyndinn er bara sú að  Strætó er alls ekki hægt að nota til að komast í vinnu nema maður vinni í miðbæ Reykjavíkur . Úr Grafarholti tekur það mig Yfir klukkutíma að komast í miðbæ Hafnarfjarðar Ferð sem tekur ekki nema 20 mín í einkabíl 

 Marteinslaug 06:51Gengið 200 metra
 Biskupsgata 06:54Leið 18
 Hlemmur (bið 8 mínútur)07:27Leið 1
 Suðurbæjarlaug 08:10Gengið 370 metra
Til:Hvaleyrarbraut 08:16

er þetta ásættanlegt ??

Jón Rúnar Ipsen, 16.12.2009 kl. 11:37

6 Smámynd: Árni Davíðsson

Sæll Jón. Það má reyna að komast hraðar með því að skipta oftar en það er auðvitað óþægilegra þannig. Það gæti líka þurft að biðja bílstjórann í 6 að hafa samband við 2 fyrir Kringluna. Þetta ætti að ganga á þessum tíma dags en gengur sennilega frekar erfiðlega í kringum 8 leytið þegar umferð er sem mest.

Marteinslaug         06:51    Gengið 200 metra
Biskupsgata          06:54    Leið 18
Ártún(bið 1 mín.)   07:06     Leið  6
Kringlan  bið 1 min 07:11    Leið  2
Hamraborg            07:20     Leið  1
Suðurbæjarlaug     07:40    Gengið 370 metra
Til: Hvaleyrarbraut 07:46

Þetta er samt tæpur klukkutími í þessa ferð þótt hún taki um hálftíma skemmri tíma en skv. leiðavísi strætó á netinu. Það væri auðvitað til bóta að hafa leið eftir Reykjanesbraut úr Ártúni svipað og 1 eftir Hafnarfjarðarvegi. Það er samt ólíklegt að farþegafjöldi yrði nægur til að halda úti þeirri leið.

Í samanburði við ýmsar borgir á norðurlöndum telst þetta þó sennilega ekki slæmur tími, 1 klst milli úthverfa í gagnstæðum endum borgarinnar. En það er kannski ekki mikil huggun.

Árni Davíðsson, 16.12.2009 kl. 12:42

7 Smámynd: Morten Lange

Sæll Jón,

Kannski er búið að offjarfesta í akvegum fyrst þetta sé svona snöggt á einkabíl ?   ;-)  

Þú ferð kannski mótstreymis, þannig að það er mögulega hluti af skýringunni.  

Þetta með offjárfesting er ekki grín. Bráðabirgðaútreikningar á bloggi Árna ( og annarra t.d 1, 2)  benda til þess að verið sé að niðurgreiða akvegi og bensíni. Og með niðurgreiðslur fylgja offjárfestingar. 

En það er engin hér að segja að valkostinn vil bílinn sé augljós í öllum tilvikum. Það sem menn eru að stefna að er ekki 0% umferðar á einkabílum, heldur kannski að lækka í 60% úr um  80%.  Í hjólaborginni Kaupmannahöfn, eru 37% ferða til vinnu og skóla á reiðhjóli og meira en helminginn ef allar ferðar eru taldar ( Samkvæmt viðtal við Danskan kunnáttumann sem ég heyrði ). 

Það væri gaman að heyra hvaða aðgerðir þú eigir við sem eru misgáfulegar.  Man ekki eftir neitt af þessu tagi hér á landi.   Ég held reyndar að  aðgerðir sem "sporna við notkun bíla" sé ekki leiðin að fara. Heldur þarf að miða við að bílar fá ekki aukið rými miðað við núna, því nóg er það nú samt.  Nokkrar akreinar mættu taka undir almenningssamgöngur og hjólreiðar.  Og þarnæst kemur að notendur bíla eiga að bera byrðar sem í þessari notkun felist, en ekki velta yfir á samgöngumáta sem bílar eru í samkeppni við.  Bílastæði eru rándýr og því ætu notendur að borga, í stað þess að velta kostnaðinn og ónæðið  yfir á allan almenning.

Mengun er komin upp fyrir mörkum, og þess vegna þarf að gera ráðstafanir til að draga úr menguninni, ekki "leysa"  með því að biðja veikt fólk að hafa hægt um sér, eins og ég bendi á í færslunni. 

Morten Lange, 16.12.2009 kl. 13:41

8 Smámynd: Morten Lange

Takk fyrir innlitin og athugasemdir.

Kannski er happdrættismiða sem verðlaun ekki besta lausnin.  Aðrar tillögur ?  Inneign á útsvari / skattalækkun ?  

Morten Lange, 16.12.2009 kl. 13:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband