Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Löggæsla

Umferðarbrot sem stefna líf annarra í hættu eru alvarleg

Það er ótrúlegt hversu mikill linkind hefur verið gagnvart umferðarlagabrotum sem fela í sér háskalega hegðun, og getur skaðað aðra alvarlega.  Þannig séð er rétt að fangelsisdóm sé kveðinn upp fyrir þannig brot.  Til samræmis við önnur brot.

En það er spurning hvort ekki annars konar afplánun væri betra. Meiri líkur á  að manninum batni, og þannig betra fyrir samfélaginu.  Brotamenn ættu sennilega að verða sett til að aðstoða fórnarlömb sem hafa orðið fyrir mönnum með svipuð athæfi.  Stutt í hvert skipti en dreift yfir nokkur ár, kannski.   Þar að auki mæti eflaust nota rafræn vöktun, stofufangelsi og gagnleg verkefni í mun meira mæli 


mbl.is Fangelsi fyrir að valda slysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gagnrýni á hjólreiðabækling lögreglu er lýðskrum

Þessi gagnrýni á því að lögreglan útbúi leiðbeiningabækling fyrir starfsmenn sína, er hneisa og hið hreinasta lýðskrum.  

Já, þarna er óbeint verið að gera grín að skilvirkasti og lang heilbrigðasta og hagkvæmasti ferðamátinn í borgum. Þessi útgjöld sem er nefndur í frétt mbl.is  ( lánað frá gulu pressunni á Bretlandi ?) , þessi útgjöld  verður auðvitað sparað á nokkrum vikum.  Lögregla í borgum er oft skilvirkari á reiðhjólum en á bílum og mótorhjólum. Og útgjöldin tengd hjólin eru minni, og heilsa þeirra lögreglumanna sem nota hjólin mun batna og draga úr veikindadögum þeirra. 

Allir blaðamenn og aðrir sem hafa áhuga geta fundið undirtektir við þessa staðhæfinga mína og það frá mjög ólíkum aðilum, ekki síst hvað varðar kostnaði og heilsuþáttinn.  Hef oft bloggað um þessi rök áður, og vísað í heimildir.


mbl.is Hjólreiðabæklingur gagnrýndur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Löggan ásakar fornarlömb ?

Þangað til virkilega trúverðug rök hafa komið fram mun ég taka fullyrðingar um að hjálmur hafi bjargað einhverju í slysi eins og þessu í frétt  mbl.is og RÚV sem óskhyggja og dapurleg mistök. Þessi umfjöllun leiðir athyglin í burtu frá orsök slysa og ábyrgð bílstjóra og þeirra sem hanna vega eða setja viðmið um hönnun, hraðatakmarkanir og refsimörk og sönnunarbyrði þegar ekið er á fólki. 

Ég geri mér fulla grein fyrir því að mönnum sem hafa sannfærst af hjálmaáróðrinum þyki þetta skrýtinn málflutningur. En takið eftir hvernig ekkert sé fjallað um tildrög slyssins í fréttinni. Líklega fáum við aldrei að vita neitt um það, hvort bílstjórinn var allsgáður og með athyglina við akstrinum eða ók eftir ástæðum.  Hitt er það að eftir langan og strangan lestur og umræður við sumum af helstu sérfræðingum heims varðandi hjólahjálma sýnist mér skýrt að fullyrðingar um virkni hjálma eiga sjaldnast við rök að styðjast.  Að beina umræðu og umfjöllun um árekstrar þar sem ekið er á hjólreiðamönnum yfir á tal um hjálma er þar að auki það sem á ensku kallast "victim blaming". Þeir ásaka fórnarlömbin.

Fyrir þá sem ekki sjá tenginguna : Með því að leggja mikla áherslu á hjálminum, er verið að segja að þannig eigi að "tryggja"  öryggi hjólreiðamanna, ekki með því að draga úr hraða bíla, tryggja að ökumenn hafa hugann við akstrinum. Hefði strákurinn ekki verið með hjálmi,hefði löggan strax bent á það og þar með ásakað hann og etv foreldra drengsins. Sumir mundu segja að þessi hugsunarháttur að ásaka fórnarlömb árekstra,  tengist því að bíllin sé skurðgoð okkar samfélags. Sjálfur veit ég ekki hvort þetta sé svona einfalt.  

Loks vil ég ítreka að ég viti (eðlilega) ekkert um aðstæður og tildrög og er í rauninni ekki hér að blogga um þessa tiltekna ákeyrslu. Þessi tegund af innihaldslausum yfirlýsingum frá lögreglu og vitaverðum skrumskælingi koma nánast við öll tækifæri sem gefast.  Ég vona að allir sem tengjast ákeyrsluna liði betur núna og nái sem bestum bata.


mbl.is Ekið á dreng á hjóli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband