Leita í fréttum mbl.is

En hjólreiðamenn lifa 10 árum lengur ?

Sumir hafa lengi haldið því fram að hjólreiðamenn lifi 10 árum lengur en þeir sem hreyfa sér lítið og í staðin aka um á bil. 

Til dæmis í greininni "Why commute by bicycle" 

Þannig að ef þetta er rétt eða nærri því rétt,  er málið miklu frekar að  hvetja til hjólreiða en til þess að fólk næli sér í Nóbelsverðalun.  Það er líka spurning um hvað sé raunhæfast að geta áorkað, að hreyfa sér 30 mín á dag, eða ná sér í  nóbelsverðlaun...


Nú hef ég reyndar ekki fundið út á hverju þessar fullyrðingar um að hjólreiðamenn lifa 10 árum lengur byggja, en það eru til fjöldi rannsókna sem virðist vera af góðum gæðum, sem benda sterkelega til þess að dánarlíkur séu minni hjá hjólreiðamönnum.

Kíkið á

 

Andersen og félagar voru aðp fylgjast með hátt í 30.000 manns yfir 14 ár og fundu að þeir sem hjóluðu 5 daga í vikuna að öllu jöfnu, svona 20-40 mínútur á dag, hefðu 30% minni líkur á að deyja á tímabílinu en þeim sem gerðu það ekki.  Líka á milli fólks sem sem stunduðu íþróttir eða fóru reglulega  "í ræktina"  hafði "daglegar"  hjólreiðar þessi griðarlegi jákvæði áhrif.

Kjartan Sælensminde sem vitnað er í í "CBA of Cycling"  fann það út að menn sem byrja að hjóla  til vinnu eða skóla spara samfélaginu samtals um 300.000 ISK á ári, og var það varlega áætlað.  

Svona  í lokin, bara til að hafa það á hreinu :  Að sjálfsögðu mæli ég með að þjálfa bæði heila og vöðva...    :-)

 


mbl.is Nóbelsverðlaunahafar langlífari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikt Bjarnason

Nú eiga Ástralar í ástarævintýri við hjólið, m.a. vegna hækkandi olíuverðs (og sjálfsagt hentugs veðurfars). Nánar um það hér.

Reyndar segja menn ákveðna hættu vera fólgna í  að hjóla á opnum vegum sem gæti vegið upp á móti auknum lífslíkum.

Vandinn hérna er auðvitað veðurfarið en það þýðir bara að við verðum að hjóla eins og vitleysingar í 6 mánuði og keyra hina 6. 

Benedikt Bjarnason, 26.1.2007 kl. 14:56

2 Smámynd: Morten Lange

Jafnvel með hefbundnum Íslenskum útivistarfatnaði má hæglega hjóla allt árið. Reyndar þá mæli ég með húfum með "Windstopper"   eða álíka.  Þeir eru þunnir og henta líka vel undir hjálm.   Fáeinir dagar lenda fólk í að rokið sé of mikið, nema menn sé heppnir og búa og ferðast  þar sem mikið er um skjól. Svo getur snjór og hált yfirborð verið til vandræði 1-3 mánuði ef maður er ekki með nagladekk. Sumir hjóla reyndar allt árið án nagladekkja en fara þá _mjög_ varlega.   Ljós þurfa  að vera á hjólinu  8-10   mánuði ársins ef maður hjólar að kvöldi til, annars aðeins styttra.

Sumir velja að ganga þegar þeir treysta sér ekki til að hjóla, nú eða nota strætó eða þiggja far með t.d. samstarfsmönum.  Erlendis er að verða ansi algengt að nota reiðhjól hluta leiðarinnar.

Annars gaman að heyra af þessu ástarævintýri
Svipaða fregnir hafa heyrst viða að, frá BNA og Vestur-Evrópu.

Morten Lange, 26.1.2007 kl. 16:35

3 Smámynd: Morten Lange

Já það er hætta fólgin í því að hjóla en samkvæmt rannsókninni sem ég benti á má eiginlega segja að hættulegri sé að hjola ekki, svo ekki sé minnst á hversu hættulegt það sé að við sem samfélag stuðlum ekki að  jafnræði þeirra sem hjóla og ganga til samgangna á við þá sem aka bíl.

Morten Lange, 4.2.2007 kl. 14:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband