Leita í fréttum mbl.is

Hjólreiðar eru SVAKA hollar, hjálmaráróður vantar stuðning í vísindi

Mikið er þetta einkennileg "frétt".

Ég er að reyna að fylla í eyðurnar...

Einhver vildi huggulega mynd til að gefa blaðinu lít og líf, og einhver annar fékk í hlutverk að semja einhverja litla myndatexta. Var þetta það snjallasti sem viðkomandi gat þrýst út úr sér ?

Líklega ekki, heldur var þetta afgreitt hratt og nánast án hugsun. Hið andstæða við frétt, gubbað upp það sem allir hafa heyrt, og flestir virðist samþykkja.  Og það er svo sem allt í lagi, einhvers konar hvíld frá fréttunum. Umfjöllun um daglegt líf.   En í þessu tilfelli er parturinn um hætturnar byggða á "rangan misskilning". Maður er farinn að velta fyrir sér hvort einhver sér sér hag í að blanda neikvæðni og tortryggni inn í öllu tali um hjólreiðar. 

 

Mæli annars með blogg Árna Davíðssyni tengd þessa frétt. 

http://arnid.blog.is/blog/arnid/entry/1085279/

 

VIÐBÓT eftir fyrstu vistun:  Er búinn að kíkja á pappírsútgáfuna og sé að þetta er einmitt falleg mynd með þessum stutta og lélega texta.  Reyndar þá er tvennt varðandi öryggi sem maður sér strax  þegar myndin er skoðuð í betri upplausn :

  1. Strákrunn er  ekki með hjálminn rétt stilltan.  Ennið á ekki að vera "bert", og hjálmurinn ekki "skakkur".  Rannsókn sem kannaði hvort börn gátu stillt hjálminn, komst að þeirra niðurstöðu að 96% gátu það ekki.  Gott ef þeir fengu ekki líka tækifæri til að fá aðstoð fullorðins manneskja, án þess að niðurstöðurnar batnaði mikið.
  2. Stígurinn er með heildregna línu til að afmarka hvar eigi að hjóla. Þeir feðgar (líklega feðgar), eru ekki að fara eftir þessu.  Og ég er ekki að fetta fingur út í það, heldur hversu vanhugsuð þessi lína sé,  og þá sér í lagi þegar hún er heildregin, og hjólahluturinn af stígnum sé einn metri á breidd, og mjög oft mjórri.  Dugar að sjálfsögðu ekki þegar hjólreiðamenn mætast.  Þessar línur rugla menn í ríminu varðandi hver eigi að vika, menn ruglast í hægri-reglunni. Og gefur  falskt öryggi, á þann hátt að hjólreiðamenn gera ráð fyrir að gangandi sem eru "sín megin" muna halda sér þar, og að óhætt sé að þeysast framúr fólkinu , ef bara maður heldur sér á hjólaræmunni. 

 

þegar maður opnar myndina til að sjá hana stærri sér maður lýsing á myndinni sem er mun eðlilegri, og væntanlega komin frá ljósmyndaranum : "Náttúrunnar notið í Elliðavogi."


mbl.is Hjólreiðar eru holl hreyfing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Morten Lange

Hér er myndatextin einhver sniðugur síðubrotsmaður ( kannski ? ) setti undir myndin og einhver vali út til að birtast á mbl.is sem "frétt" :

öryggi Hjólreiðar eru holl hreyfing en geta verið hættulegar ef menn eru ekki með hjálm á höfði. ...Þessir einbeittu hjólreiðamenn voru til fyrirmyndar þegar þeir nutu náttúrunnar í Elliðavogi.

Morten Lange, 16.8.2010 kl. 00:29

2 Smámynd: Morten Lange

Það hefði að ósekju mátt benda hjæólreiðamenn á að núna þegar dimmar er gott ( og skylda samkvæmt lögum) að hafa ljós að aftan og framan á hjólinu ef hjólað er í myrkri.

Og það getur maður fljótt lent í, sem sagt að hjóla í myrkri,  ef maður ætlar sér að nota reiðhjólið til samgna, til að efla heilsu,  eða enn betra að slá þessar tvær flugur í einu höggi ásamt nokkrum fleirum "flugum".

Morten Lange, 16.8.2010 kl. 00:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband