Leita í fréttum mbl.is

Réttindi/Aumingja hjólreiðamenn 2

Leiðrétting : LHM hafa ekki hvatt fólk til að sleppa hjálmana. Er Einar Magnús hjá Umferðarstofu annað hvort heimskur eða vondur maður ? Sennilega hvorugt ?

En af hverju sagði hann þá þetta í morgunútvarpi Rásar 2, og af hverju ekki koma beint fram með hverjum hann sé að ásaka?  Af hverju þykist hann ekki þekkja til þess að fjölmargar vísindaskýrslur  mæla gegn ofuráherslu á hjálmum, og styrka málstað LHM  ?

Og af hverju kusu dagsskrárgerðarmenn ekki að nefna einu orði í upprífjuninni  í lok þáttar að búið var að hringja inn og mótmæla ósannindi Einars ? 

~~~

Kannski vegna þess að hjólreiðamenn séu minnimáttar. Kannski vegna þess að það hefur aldrei kostað neitt að níðast á hjólreiðamenn og samtök þeirra ?   Já, aumingja hjólreiðamenn. 

( Sjá fyrsta færsla í þessari röð  til að skilja etv betur þessa framsetningu, að tala um hjólreiðamenn sem aumingjar.

http://mortenl.blog.is/blog/mortenl/entry/1088412/ )


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Morten Lange

Lími inn texta sem ég skrifaði annarsstaðar o g skýrir etv málið eitthvað :

Í morgunútvarpi Rásar 2 í dag (27.ágúst 2010) var fjallað um að færra börn nota hjálma núorðið.

Einar skellti skuldina á tískuna og ónafngreiða aðila sem hann sagði hefðu tala gegn hjálmanotkun. Hann átti greinilega við Landssamtök hjólreiðamanna og aðila innan fjallahjólaklúbbsins, og "auðvitað" með því að skrumskæla málflutning þeirra.


Ég hringdi inn og einhver á fréttastofu skrifaði niður leiðrétting mína,
en þó 30 mín var eftir af þættinum, og líka upprifjun í lokin þá var er
ekki minnst á leiðréttinguna.  ( Ég spurði hvort konan væri með
símanúmerinu hjá mér og hún las upp rétt númer. )

Ég sagði við fréttamanninn (vonandi var hún það) :
1. Einar hefur greinilega átt við Landssamtök hjólreiðamanna
2. LHM hefur ekki hvatt fólki til að hætta að nota hjálm, ólíkt því sem
hann sagði
3. LHM hefur  bent á ýkjur í málflutningi Umferðarstofu og annarra  hvað varðar hættu af hjólreiðum og gagnsemi hjálma.
4. Hún spyr hvort ekki sé gefið að einhver gagn sé af þeim, ég svarði að  að þurfti heilan þátt til að fara inn á þá umræðu, ( Hefði átt að bæta við : umræða um virkni væri ekki punkturinn varðandi að leiðrétta orðum Einars)
5. LHM hefur reynt að ná tali af Rannsóknarnefnd umferðarslysa,
Slysavarnarráð og Umferðarstofu, en þeir hafa ekki viljað ræða málin við  LHM, þrátt fyrir því að LHM  sé að vísa í vísinda-gögn.

Vef LHM : www.LHM.is , Ein af nokkrum greinum um hjálma :

http://www.lhm.is/skyldunotkun-reiehjolahjalma

Morten Lange, 27.8.2010 kl. 12:37

2 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Takk Morten.

Ég held að það sé rétt að nota hjálm við hjólreiðar - almennt séð -  og absalútt ef um viðvaninga er að ræða eða fólk sem stendur í gífurlegum torfæruhjólreiðum, en sjálfur nenni ég ekki að standa í því dags daglega enda hjóla ég ekki nema þetta 300-400 km. á mán. á gangstéttum hérna í Reykjavík og líkurnar á því að ég lendi í banvænum atburðum þar eru eiginlega núll prósent. 

Það eru risavaxnir viðskiptahagsmunir tengdir bílum og olíu og hefur sú viðskiptamafía ekki skirrst við að ljúga upp hin furðulegustu terror hollywoodsjó og stríð til að viðhalda viðskiptunum og vafalaust býr hún líka til þá ímynd að hjólreiðar séu stöðugt lífshættulegar.

Baldur Fjölnisson, 27.8.2010 kl. 19:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband