Leita í fréttum mbl.is

Sveiflur í olíuverði núna. Litum fram á veginn

Það er svo margt sem bendir til þess að í framtíðinni mun olíuverð og líka orka almennt verða  töluvert dýrara. Þá á ég við á næstu 5-20 árum.  Við alla áætlanagerð, held ég að viturlegt sé að gera ráð fyrir þessu, amk sem skyr möguleiki.

Áætlanagerð og stefnumótun hins opinbera, fyrirtækja og einstaklinga ættu að taka þessu með í reikningnum.  Til dæmis þegar fólk velur hvort það búi þannig að hjólreiðar, göngu eða almenningssamgöngur séu góður valkostur, eða kýs að búa útí sveit.   

Fyrir nokkrum árum síðan spáði ég hér á þessu bloggi að bensínverð mundi fara yfir 150 kallinn, en fáir trúðu því þá.  Auðvitað hefur gengi krónunnar haft sitt að segja, en hráolíuverð í dollurum náði líka nýjum hæðum nýlega.


mbl.is Eldsneytisverð hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Alveg óskiljanlegt að við hér á þessu skeri spáum ekki meira í aðra orkugjafa sem eru til staðar hér. Og svo er þetta með almenningssamgöngum og möguleika til að nota reiðhjól sem samgöngutæki ennþá algjörlega ófullnægjandi. Eru olíufyrirtækin með svona mikil völd?

Úrsúla Jünemann, 1.3.2011 kl. 14:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband