Leita í fréttum mbl.is

Margt gott. Sakna ákvæði um rökræður

Það er virkilega margt gott, og sumt sem er of afturhaldssamt  í drögunum að nýrri stjórnarskrá. 

En núna langar mig að benda á atriði sem ég spurði  Noam Chomsky  að þegar haldin var fjarfundur með honum í fyrra :  Væri ekki hyggilegt að stjórnarskrábinda að ákvarðandir skulu byggja á bestu þekkingu og á rökræðum ?

Fyrir suma er kannski móðgun að setja svoleiðis í stjórnarskrá, en mér sýnist vera full þörf á því.  

Og _ef_ tímarnir framundan verða uppfullir af glundroði og dómsdagsstemningi  og að það færist í aukanna að fólk treysta stjórnmálamenn og vísindamenn mun minna en áður, þá er virkilega þörf á svoleiðis ákvæði.  Ef fulltrúar okkar á Alþingi koma fram sem yfirvegaðir og skynsamir ætti tiltrú á gangsemi þeirra og heiðarleika jafnframt að aukast   

Það þarf að að brýna á það að rök og haldbær þekking þurfi að liggja til grundvallar, sérstaklega  í löggjöfinni. Rök, haldbær þekking, að sjálfsögðu  ásamt almannahagsmunum og virðingu fyrir hagi minnihlutahópa.

 (Smá viðbót  + leiðrétting kl. 23 ) 


mbl.is Drög að nýrri stjórnarskrá lögð fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vendetta

Nei, það gengur ekki. Í stjórnarskránni eiga ekki að vera nein ákvæði með afstæðu eða túlkanlegu orðalagi. Það sem þú ert að stinga upp á á heima í öðrum stjórnsýslulögum en stjórnarskránni. Og það er rík þörf á því að breyta vinnureglum fyrir Alþingi.

En það er ekki nóg, að það standi í þessum vinnureglum, það sem þú skrifar, því að ef alþingismenn fara ekkert eftir því (fá sjálfir að túlka, hvað sé gott og bezt), þá mun ekkert batna. Og virðing fyrir alþingismönnum mun aldrei rísa upp yfir núllstigið.

Stjórnarskráin á ekki að vera skjal, sem er háð breytingum nema að mjög litlu leyti. Að mínu áliti ætti að færa stjórnarskrána aftur til fyrra horfs (eins og hún var fyrir breytingarnar 1995), en þó með einstaka, mikilvægum breytingum. Þetta hef ég skrifað um í fyrri færslu.

Vendetta, 19.7.2011 kl. 12:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband