Leita í fréttum mbl.is

Aðgerðir og ekki bara gegn nöglum

Í fréttinni er talað um NO2 og samt tala "allir"  um  nagladekkin.  Að sjálfsögðu er löngu kominn tími til að leggja skatt á nagladekk, og mögulega lækka á önnur dekk. 

En þetta snýst ekki bara um nagladekkin.   Það er ekki síður útblásturinn, og   umferðarmagnið  !

Hef áður bloggað um  þetta og farið ofan í rökin um minnstu agnir, hvaða efni sé líklegast til að vera hættulegt og að vandinn sé mjög vel þekkt líka þar sem engin nagladekk eru.  Minni aftur um að WHO hefur fundið að í fjölda borga Evrópu drepur mengun úr bílun fleiri en umferðarslysin.  Samt er mönnum ekki borgið inní bílunum. Mælingar hafa sýnt að bilstjórar anda mengaðri loft en þeir sem ganga og hjóla.  Þetta er rök gegn því forðast mengunin með því að aka bíl  eða sitja inni og skapa vitahring.   Fyrir viðkvæmt fólk getur að sjálfsögðu verið ráðlagt að hafa hægt um sig þegar mengunin er sem verst, en það er samt ekki rétta leiðin. Rétta leiðin væri að banna akstur bíla á jöfnum númerum eða álika eins og tiðkast viða þegar þannig "viðrar".  Mörgum fyndist það langt gengið, en hver virði er heilsa og líf þeirra sem striða með astma og þess háttar eða séu í þann mund að fá astma ?

 

Vil annars benda á frétt af vef Sambands Íslenskar Sveitafélaga :  

15. febrúar 2007
Í dag er sérstakt lausagangsátak í Noregi. Tilgangurinn er að vekja fólk til umhugsunar um hversu skaðlegt það er fyrir umhverfi og heilsu að skilja bíla eftir í gangi. Skólabörn munu fara um og setja áminningarmiða á bíla í lausagangi. Sömuleiðis skrá börnin niður hversu margir og hversu stórir bílar eru í gangi að óþörfu og reikna síðan út hversu mikill koltvísýringur, svifryk og önnur skaðlegi efni koma frá þessum bílum. Börn eru viðkvæmari fyrir mengun frá bílum en fullorðnir. Bæði þola þau minni skammta og eru auk þess styttri í annan endann og anda því að sér meiri útblæstri.
Lesið umfjöllun Grønn Hverdag í fyrradag
 

Annars er greinilegt að sumir norðmenn eru mun framarlegri í sinni hugsun um loftslagsbreytingar en það sem almennt heyrist hér :   Vitnað var í  heilræðið um að minnka umhverfisáhrifum frá "Bil, biff og bolig" í eitt af virtari dagblöðum Noregs, Aftenposten um daginn.

Sjá  http://www.gronnhverdag.no/artikkel.php?artikkelid=2987

 


mbl.is Borgin hirti ekki um mengun við leikskóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dofri Hermannsson

Takk fyrir þetta Morten.

Veistu eitthvað meira um þessar smáagnasíur sem er verið að lögleiða í Evrópu? Hvað ætli þær kosti, er ekki einfaldlega hægt að setja reglugerð um að þetta sé standardbúnaður í bílum?

Kv. Dofri.

Dofri Hermannsson, 16.2.2007 kl. 20:50

2 Smámynd: Sigurður Ásbjörnsson

Ég minni á að samkvæmt reglugerð um varnir gegn loftmengun af völdum hreyfanlegra uppsprettna er bannað að skilja eftir bíl í lausagangi.  Sbr. neðangreint.  Ég hvet ykkur því til þess næst þegar þið gangið fram hjá Stjórnarráðinu eða Ráðherrabústaðnum að gera athugasemdir ef þar er bíll í gangi.

Vélknúin ökutæki. 6. gr. 6.1 Eigendur eða umráðamenn vélknúinna ökutækja skulu sjá til þess að vélbúnaði sé haldið við og hann stilltur á þann hátt að ekki valdi óþarfa reyk- eða sótmyndun. 6.2 Óheimilt er að skilja ökutæki eftir í gangi þegar þau eru yfirgefin. Jafnframt er óheimilt að láta vélar kyrrstæðra ökutækja ganga lengur en í örstutta stund nema sérstaklega standi á. Regla þessi á ekki við um ökutæki lögreglu, slökkviliðs o.þ.h. 6.3 Viðkomandi heilbrigðisnefnd getur krafist þess að eigandi eða umráðamaður vélknúinna ökutækja færi bifreið sína til bifreiðaskoðunar og sýni fram á að magn mengunarefna séu innan losunarmarka samkvæmt reglum þar að lútandi.

Sigurður Ásbjörnsson, 17.2.2007 kl. 01:31

3 Smámynd: Morten Lange

Þakka ykkur Dofri og Sigurður fyrir ykkar ábendingar/spurningar,  
Dofri : Ég þekki ekki mjög vel til smáagnasíur en fann grein með verði og frásögn um notkun á strætó í San Francisco.
Sigurður : Það er ansi algengt að sjá bíla í lausagangi, með og án bílstjóra.  


Morten Lange, 17.2.2007 kl. 12:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband