Leita í fréttum mbl.is

Samráð Umhverfissviðs en ekki borgarinnar

Tók virkan þátt í þetta samráð ( ítrekað, á mörgum vettvöngum ) og sumt af því (sem ég og  margir fleiri bentu á) skilaði sér í stefnunni Reykjavík í mótun ( nýtt  nafn á Staðardagsskrá 21 hjá borginni).  Eitt  dæmi eru orðin  varðandi mengun af umferð og að gera skuli ganga  og hjólreiðar hærra undir höfði. 
Hins vegar skorti miklu varðandi gegnsæí í fullt af þessum samráðsferlum, og maður getur ekki séð að efsti stjórnvöld borgarinnar taki mikið mark af þessu núna. Nýlega var til dæmis tilkynnt að verulegur niðurskurður verði hjá Umhverfissviði Reykjavíkurborgar.

 ( 2007-03-25 12:57 : Lagfært ritvillur + lagt til útskýringar. )

mbl.is Samráð í umhverfismálum vekur athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guttormur

Já þessi frétt kemur sannarlega á óvart, ekki beint það sem maður kannast við.

Guttormur, 24.3.2007 kl. 22:14

2 Smámynd: Þuríður Ósk Gunnarsdóttir

Það er frábært að Umhverfissvið skuli hafa metnað í að hafa samband við svo marga aðila þegar verið er að gera umhverfisstefnu borgarinnar. Og gaman þegar góð vinna fréttist út fyrir landssteinana. Enda kemur það skýrt fram í stefnunni að hjólreiðar eru eitthvað sem borgarbúar vilja hafa sem samgöngumáta. En með umhverfisstefnunni var gerð verkefnaáætlun til þess að ná fram þeim markmiðum sem komu fram í stefnunni. Borgarráð samþykkti hinsvegar ekki þá áætlun og ekkert hefur verið hægt að ná út úr þeim neinum svörum um hvernig eigi þá að ná fram þeim markmiðum sem sett voru fram um hjólasamgöngum.

Svo það þýðir lítið að hrósa mönnum fyrir góða stefnu þegar ekki er útlit fyrir að borgarráðið sé neitt að fara eftir þessari margfrægu stefnu. Hver er þá tilgangurinn að vera að láta fullt af fólki eyða tíma sínum í að gera góða hluti en síðan ekki á ekkert að fara eftir því. Það er greinilegt að borgarráð er allavega ekki að fara eftir vilja borgarbúa í þessum efnum.

Þuríður Ósk Gunnarsdóttir, 25.3.2007 kl. 19:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband