Leita í fréttum mbl.is

Öflug hjólamenning fer vel saman við hjálmleysi

Ef maður rýnir í myndum frá borgum með öfluga samgönguhjólreiðamenningu, þá er stór hluti þeirra sem hjóla án hjálms. Reyndar virðist vera að hjálmaáherslur og öflug hjólamenning geti farið frekar illa saman. Margar rannsóknir hafa bent til þess að hjálmaskylda dragi gjarnan úr fjölda þeirra sem hjóla til samgangna. Ég vil bæta við að mikill félagslegur þrýstingur gagnvart "hjálmlausum" geti verið ígildi hjálmaskyldu. 

Það að hjálmaskylda og mikill fókus á hjálmum dragi úr aukningu í samgönguhjólreiðum, er aðalástæðu þess að nýleg skýrsla OECD um öryggi hjólreiða mæli ekki með áherslu á hjálmum heldur nefnir tugir annarra þátta til að bæta öryggi. "Umferðaröryggisbíblian" frá Samgönguhagfræðistofnun Noregs, Transportøkonomisk institutt, kemst að sömu niðurstöðu. Umferðaröryggisbíblian er virt rit og byggir á skipulega og vandaðri úttekt á bestu rannsóknirnar sem hafa birst í ritryndum vísindatímaritum.

Nú er viðbúið að einhverjir komi með sína sögu af einhverjum sem var "bjargað" af hjálmi sínum, en eins og sagt er á ensku : "The plural of anectdotes is not data". Ef við skiljum ekki að vísindi trompi reynslusögum þá er illa fyrir okkur komið. (Ekki að vísindinn séu með eilíf svör, né hafið yfir gagnrýni, ég var ekki að segja það.)

Valdar setningar úr OECD skýrslunni, sem fer varlega, enda tekur tíma að snúa stóru skipi :

"Non-infrastructure measures can improve safety, but they should not be the sole focus of policy."

"To be clear -- these studies indicate reduced risk of head injury for a single cyclist in case of a crash. The effects must not be mistaken for the safety effects of mandatory helmet legislation or other measures to enhance helmet usage."

 


mbl.is Hjálmar hjálmlaus á hjólinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Umferðaröryggisbiblían er ekki virt rit. Og að sjálfsögðu dregur aukin notkun á hjálmum úr líkum á höfuðslysum. Það er augljóst.

KIP (IP-tala skráð) 6.5.2015 kl. 10:48

2 Smámynd: Ívar Pálsson

Einföld regla: Aukin reiðhjólanotkun án hjálma veldur fleiri höfuðsköðum. Yfirleitt er um yngri manneskjur að ræða og höfuðskaðar eru oft alvarlegir eða varanlegir. Hvatning til reiðhjólanotkunar sem endar í því að flestir sem bætast við eru hjálmlausir ætti því helst ekki að eiga sér stað út frá lýðheilsusjónarmiðum.

Ívar Pálsson, 6.5.2015 kl. 10:49

3 Smámynd: Morten Lange

Takk fyrir athugasemdina, Ívar.
Ég get ekki séð að rökin þín eiga við. Þær byggja á misskilningum, sem eru algengar og ansi skiljanlegar miðað við áróðrinum sem hefur verið rekin.

Ég vonast til að ná að svara rökunum betur síðar.
Vona líka að þú svari mínum rökstuðningi og helst vitni í heimildum.

Morten Lange, 6.5.2015 kl. 11:35

4 Smámynd: Morten Lange

Það er margt sem eitt sinn þótti augljóst sem svo kemur í ljós að ekki stóðst, KIP. Það myndi lyftta umræðuna á hærra plan ef þú myndir segja frá nokkur dæmi þess :-)

Morten Lange, 6.5.2015 kl. 11:37

5 identicon

Af hverju er Illugi ráðherra á stelpuhjóli?  Ef ég tek mér smá skáldaleyfi og vitni í orð Schwarzeneggers, "don't be a political girlie-man."

Hilmar (IP-tala skráð) 6.5.2015 kl. 11:38

6 identicon

Ef fólk nennir að googla, þá á finna mýmargar kannanir sem sýndu fram á að almennt séð eru hjálmar ekki að  bjarga mannslífum. Eins merkilegt og það er.
Hjálmar eru fyrst og fremst að hjálpa í minniháttar óhöppum þar sem högg er lítið en hefði mögulega geta orðið alvarlegt.

Flestir hjálmar eru bara of mikið drasl, þar sem staðalinn er ekki merkilegur, til að bjarga í þessum háorkuslysum. einnig verja þeir ekki nægilega stóran hluta höfuðsins.

þannig að það má alveg færa rök gegn hjálmaskyldu.
Reyndar man ég að kannanirnar sýndu jafnframt fram á að börn hefðu betra af hjálmanotkun en fullorðnir, þar sem þau lenda í margfallt fleiri af þeim slysum þar sem hjálmar hjálpa. Þau eru líklegri til að falla á hliðina til dæmis þar sem hjálmurinn er að verja höfuðið fyrir hliðarhögginu.
þetta voru nokkuð magnaðar kannanir. mæli með google.

Hallur (IP-tala skráð) 6.5.2015 kl. 12:04

7 identicon

síðan er það nú að  hjálmar eru ekki hannaðir til að þola högg nema dottið sé af reiðhjóli nánast úr kyrrstöðu. Í öðru lagi útheimtir það kunnáttu að detta með hjálm. Hvaða hjólreiðamaður sem hjólar í vinnuna 2-3 mánuði á ári veit t.d. að hann á að hald sér í stýrið og láta höggið koma á hjálminn, í stað þess að bera fyrir sig hendur - þegar dottið er fram fyrir sig. Og sömuleiðis hvaða hjólreiðamaður kann að detta úr hliðarstöðu með því að láta sig falla bak og láta þar með afturhluta hjálms taka höggið? Enginn. Auk þess sem að mörgum hjálmum er tyllt ofan á þykkar húfur og blakta þar eins og strá í vindi.

jon (IP-tala skráð) 6.5.2015 kl. 12:45

8 identicon

...ef við erum áhugasöm um lýðheilsu með því að við viljum fækka höfuðmeiðslum, þá myndum við skylda alla til að vera með hjálm sem hafa fengið sér meira en 4 áfenga drykki. Flest höfuðmeiðsl verða þegar ölvað fólk dettur í götuna - eða veldur samferðafólki sínu höfuðmeiðslum með höggum eða spörkum.

jon (IP-tala skráð) 6.5.2015 kl. 12:49

9 identicon

Þegar fingurinn bendir á tunglið horfir kjáninn á fingurinn.

Það er heilmikið af efni um notkun hjálma á netinu. Engin ástæða að vísa í norska leynibiblíu í umfjöllun um öryggi hjálma. Ég hvet þig sjálfan til að draga umræðuna um notkun hjálma upp úr þeim farvegi sem tískulöggur og áhugamenn um hjálmaleysi hafa komið henni í.

http://en.wikipedia.org/wiki/Bicycle_helmet

http://www.helmets.org/stats.htm

http://www.cps.ca/documents/position/bike-helmets-to-reduce-risk-of-head-injury

KIP (IP-tala skráð) 6.5.2015 kl. 15:15

10 Smámynd: Morten Lange

Einmitt, KIP, og að sjálfsögðu þekki ég öllu þessu sem þú bendir á.
Um Handbook of Raod Safety Measures: OECD visa sem dæmi ítrekað í henni. Og hún er til á frummálinu, ókeypis og til opinni aflestrar hér : http://tsh.toi.no

Morten Lange, 6.5.2015 kl. 15:33

11 Smámynd: Morten Lange

Ívar skrifaði :

Aukin reiðhjólanotkun án hjálma veldur fleiri höfuðsköðum.

Það er að verða viðurkennt byggt á rannsóknum, að þegar fleiri hjóla þá aukist öryggi fyrir hvern þann sem hjóla. Þetta er menningartengt bæði því bílstjórar gera frekar ráð  fyrir og taka tillit til fólks á hjóli, og meirihluti þeirra sem hjóla haga sér með öruggari hætti. Fólkið sem bætist þegar aðstæður til samgönguhjólreiða bætast er oftast ekki "die-hard" týpurnar, heldur varfærnar ömmur og svo framvegis.

Yfirleitt er um yngri manneskjur að ræða og höfuðskaðar eru oft alvarlegir eða varanlegir.

 Tölfræðin um höfuðmeiðsl nær oft yfir hluti sem eru ekki alvarlegir, og getur til dæmis verið skurð á höku eða eyra. það er þegar hjálmskylda á þá yngstu. En umræðan hér tengdist frjálsu og upplýstu vali fullorðinna og reyndra hjólreiðamanna.  

Hvatning til reiðhjólanotkunar sem endar í því að flestir sem bætast við eru hjálmlausir ætti því helst ekki að eiga sér stað út frá lýðheilsusjónarmiðum.

Út frá lýðheilsu er mikill akkur að fleiri byrja að hjóla, svo segja margar rannsóknir, og ekki síst samantektir á bestu rannsóknunum. heatwalkingcycling.org er eitt merki þess. 


Og lengi mætti fram halda ... 

Morten Lange, 6.5.2015 kl. 23:42

12 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Tökum nokkrar staðreyndir.

Hjólreiðar eru ekki hættulegar og eru reyndar það hættulitlar að það getur ekki á nokkurn hátt talist til áhættuhegðunar að hjóla hjálmlaus.

Það fylgri því minni slysahætta að fara frá a til b innanbæjar á hjóli þó maður hjóli hjálmaus heldur en að fara það í bíl.

Það að hjóla þó hjálmlaus sé er meðal hættuminnstu líkamsræktar sem menn stunda. Það eru til dæmis margfalt meiri líkur á alvarlegum meiðslum að spila fótbolta með vinum sínum í klukkutíma heldur en að hjóla í klukkutíma þó hjálmlaus sé.

Heilsufarsávinningurinn af því að hjóla er það mikill og slysahættan það lítil að ávinningurinn af hjólreiðum heilsufarsávinningurinn minnkar líkur á ótómabærum dauðdaga eða heilsutjóni af sjúkdómum þar sem hreyfingarleysi er áhættuþáttur að minnsta kosti tuttugufalt á við hættuna á að verða fyri ótímabærum dúðdaga eða heilsutjóni vegna slysa við hjólreiðar.

Það eru því engin tilefni til að amast við því að menn hjóli hjálmlausir og það er mun begtra út frá  lýðheilsusjónarmiðum, umhverfismálumn og viðskiptajöfnuði þjóðarbúsns að menn fari ferða sinna á hjóli fremur en í bíl.

Sú mikla áhersla sem lögð er á hjálmanotkun fær fólk til að halda að hjólreiðar séu mun hættulegri iðja en þær eru og dregur því úr hjólreiðum. Hún er því skaðleg fyrir lýpheilsu, umhverfismál og viðskoptajöfnuð þjóðabúsins.

Það að hvetja til hjólreiða án þess að leggja á sama tíma áhersslu á hjálmanotkun er því ekki bara í lagi heldur mjög æskilegt. Vissulega er betra að menn hjóli með hjálm en áh hans en aðalatriðið er að fá sem flesta til að hjóla óháð því hvort menn noti hjálm eða ekki.

Sigurður M Grétarsson, 7.5.2015 kl. 08:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband