Leita í fréttum mbl.is

Raunveruleg vilji til að efla hjólreiðar ?

Ef raunverulegur  vilji væri í ríkisstjórn  og í samgönguráðuneyti fyrir því að efla hjólreiðar, þá hefðu menn fyrir löngu sett niður nefdn til að skoða málin, á svipuðum nótum og Kolbrún Haldórsdóttir og meðflutningsmenn úr öllum flokkum hafa lagt til á Alþingi undanfarin ár.  Ef undanfari hennar þingsálýktunartillögu er talin með, hefur þetta legið fyrir samgöngunefnd í amk 5 ár, en  aldrei fengið neina meðhöndlun í samgöngunefnd.  Þetta er í raun hneyksli. 

En vegna þess að stjórnmálin virka eins og þau gera, er fagnaðarefni að  XD taki  þetta upp sjálfir. Þá fær málið kannski meðhöndlun.  En seint, alltof seint gengur þetta.  Þegar Sturla Böðvarsson svarar tölvupósti frá mér ( sem er framför) og segir að ekki var hægt að setja neina peninga strax í neitt, ekki einusinni fræðsla eða nefnd eða neitt tengd  hjólreiðum, þá get ég ekki trúað að það sé rétt.  Ekki ef vilji sé í raun til  að  gera eitthvað.  

Og óháð  stöðunni varðandi lagalegir rammar ofl,  þá hefði átt að hafa samband við  okkur hjá Landsamtökum hjólreiðamanna, sem hagsmunaaðilar, áður en málið var sent úr ráðuneytinu.  Við sendum inn mjög itarlega athugasemdir við samgönguáætlun, og erum sennilega þeir sem komast næst því að vera alhliða fagaðilar á þessu sviði á landinu.  ( Mótrök vel þegin) 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þuríður Ósk Gunnarsdóttir

Er það einhver stefnubreyting hjá XD þótt þeir setji þetta fram. Þeir hafa haft tækifæri til að samþykkja tillögu Kolbrúnar og fleiri núna árum saman en ekki gert það. Svo það þýðir ekkert að tala um stefnubreytingu innan flokkanna fyrr en maður sér framkvæmdir. Hvar eru þær?

Til hvers er verið að tala um hjólreiðar í stefnumótun landsmanna þegar ekki er á planinu að setja neinn pening í málið? Sýndarmennska vegna þess að raddir eru farnar að verða háværari sem sjá hjólreiðar sem hluta af lausn á vanda umferðarinnar og fá atkvæði þeirra sem láta þagga niður í sér með því? Eða hvað? Þegar ég set mér markmið um að laga planið fyrir utan húsið hjá mér þá veit ég að það kostar pening. Ég er ekkert að setja áætlun um viðgerð á planinu inn í verkefnaáætlunina nema eiga fyrir því eða sjá fram á að geta aflað peninga. Hversvegna gerir samgönguráðuneytið það?

Og til hvers er borgin að samþykkja markmið um ákveðna þætti til að efla hjólreiðar ef það eru síðan ekki samþykktar neinar leiðir til þess? Hver er tilgangurinn með því?  Kveðja, Þurý

Þuríður Ósk Gunnarsdóttir, 25.4.2007 kl. 18:33

2 Smámynd: Guttormur

Heldurðu að það verði hægt að hjóla á Höfðatorg?

Guttormur, 27.4.2007 kl. 10:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband