Leita í fréttum mbl.is

Margt fleira gerðist tengt H-deginum

Margt fleira gerðist þarna og í þjóðmenningarhúsinu sem ætti að vera fréttnæmt.

Stuttlega má nefna : 

  • Kartan Magnússon hættir sem formaður umferðarráðs
  • Karl V. Matthíasson, ( séra, alþingismaður )  tekur við
  • Gullmerki umferðarráðs veitt tveimur konum (Margrét Hrefna Sæmundsdóttir og Guðný María Finnsdóttir -  Heimild fyrir nöfnin : Visir.is ) sem hafa starfað ötullega fyrir umferðaröryggi barna, bæði varðandi öryggi þeirra sem farþega í bílum og við fræðslu til barna um umferðina.  ( Þær hafa unnið þetta af mjög góðum hug og óeigingjarnt, en að mínu mati með áherslum sem eru barn síns tíma, eins og svo margt í umferðaröryggismálum. Þar var verið að binda fólk niður frekar en að lækka hraða bíla og bæta meðal annars þannig aðgengi heilbrigðra samgangna )
  • Auk tveimur bílstjórum og háttseta farþega,  tóku bifhjól og reiðhjól þátt í sviðsetninguna á skiptingu yfir á hægri umferð.  Samgönguráðherra mundi eftir því að þegar hann var  fjórtán ára í 1968 á Siglufirði að honum var sagt  að hjóla framvegis á hægri hlið göturnar.  Sem sagt þetta snérist ekki bara um bíla.  Eitt af stóru málunum var að breyta strætó-um.
  • Fram kom að ekkert áfengi og ekki einu sinni kaffi var veitt í H-dags nefndina á sínum tíma, og að hámarkshraði var lækkuð eftir að hægri  umferð var tekin upp.  Kannski hefur þetta tvennt haft sín áhrif á slysatölum.  Dauðsföll hafa aldrei verið færri í umferðinni en 1968.  (Aldrei fyrr eða seinna eftir að bílaöldin var kominn á fullt skrið ) 
  • Ný vefsíða Umferðarráðs opnuð  (umferdarrad.is)  Þar er meðal annars hlekkur inn á bicyclesafe.com ("How not to get hit by cars" sem LHM  benti á)   Umferðarstofa er greinilega ekki að standa sér í ritskoðuninni... 

Eitt komst  ekki að, en væri vel þess virði að minnast á :  Það gildir líka hægriregla á stígunum, og þá einkum fyrir reiðhjól, en mjög margir virðist ekki átta sér á því.

 


mbl.is Sögulegur atburður endurtekinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Morten.

Gaman að heyra af þessum viðburðum.

Þú ert duglegur að skrifa um það sem okkur hjólreiðafólki viðkemur. Haltu þessu áfram. Góð skrif. 

Sá einmitt hjólreiðamann taka þátt í þessum viðburði.

Hægri reglan á að gilda á stígum líka, sammála þér í því.

Magnús Bergs hefur einnig skrifað um þetta nýverið.

Er sammála Magnúsi, að sleppa þessum aðskilnaðarlínum á göngustígum, sem marka svæði fyrir hjólafólk. Þessi hjólasvæði eru ónothæf, í versta falli hættuleg hjólreiðafólki.

Best að hafa mjög skýrar reglur hvað umferð gangandi og hjólandi á göngustígum varðar. 

þetta er allt í mótun, og fer að vissu leyti batnandi með hverju ári. Enda fer hjólreiðafólki fjölgandi, svo ekki er vanþörf á betri aðstöðu fyrir þann hóp vegfaernda.

Kveðja,

 Heimir H. Karlsson.

Heimir H. Karlsson (IP-tala skráð) 26.5.2008 kl. 16:55

2 Smámynd: B Ewing

Gaman að sjá kallana rifja upp daginn.  Reglur á stígum hafa verið nokkuð í umræðunni að undanförnu og því miður,  það eru engar reglur um t.d. forgang á hjólastígum á íslandi.  Stígurinn frá Ægissíðu og í Elliðaárdal var á sínum tíma málaður eftir endilöngu og hjólum gert að vera örðum megin og gangandi hinum megin.  Það gengur hins vegar ekki upp.  nóg er að nefna tengingar fyrir gangandi "hjólamegin" og tengingar hjólreiðamanna "gangandi megin" mætingarreglur hjólamanna og margt fleira.

B Ewing, 26.5.2008 kl. 17:04

3 Smámynd: Morten Lange

Maggi Bergs hefur skrifaå , meðal annars í Mogga, um hægriregluna á stígunum og ymis konar rugl sem er þar í gangi :

http://mberg.blog.is/blog/mberg/entry/551540/ 

Morten Lange, 26.5.2008 kl. 21:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband