Leita í fréttum mbl.is

Olíusjóðurinn norski hefur siðferðisstaðla sem skipta sköpum

 

Frá RÚV :


Norska fjármálaráðuneytið tilkynnti í dag að norski olíusjóðurinn gæti ekki lengur fjárfest í alþjóðafyrirtækinu Rio Tinto vegna umhverfisskaða sem fyrirtækið ylli í Indónesíu.

Rio Tinto er alþjóðlegt námuvinnslu- og álframleiðslufyrirtæki, sem á meðal annars Alcan, sem rekur álverið í Straumsvík. Ástæðan fyrir ákvörðun Norðmanna er gífurleg mengun frá námu sem Rio Tinto á aðild að í Indónesíu. Þar er hundruð þúsunda tonna af mengandi úrgangi veitt óhreinsuðum út ár og vötn.

 

Kristin Halvorsen, fjármálaráðherra Norðmanna, skýrði frá því að þar sem fyrirtækið hefði ekki svarað fyrirspurnum siðferðisráðs sjóðsins væri ljóst að það myndi ekki láta af athæfinu. Þvert á móti hyggðist fyrirtækið halda starfsemi sinni óbreyttri til ársins 2014.

Norðmenn áttu sem svaraði tæplega 77 milljörðum íslenskra króna í Rio Tinto og skyldum félögum. Olíusjóðurinn fjárfestir ekki í fyrirtækjum sem ekki uppfylla siðferðisstaðla sjóðsins.

 ~~~~~~~

Þetta gerir mér pínu ánægður og stoltur af upprunaland mitt  :-) 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Viktor Úlfarsson

Er einhver sem vill kaupa þessi bréf af þeim?

Sigurður Viktor Úlfarsson, 10.9.2008 kl. 01:32

2 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Já, mér finnst ósköp sorglegt að slíkt skítafyrirtæki eins og Rio Tinto er búið að nema land hér. Við gerum vist ekki miklar kröfur.

Úrsúla Jünemann, 10.9.2008 kl. 12:42

3 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Ég vildi óska að Íslendingar hugsuðu svona!

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 11.9.2008 kl. 09:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband