Leita í fréttum mbl.is

Óbama galvaskur og vinnur gegn spillingu !

Vá, þetta er mikið fagnaðarefni  !

Úr fréttinni :

 

„Á meðan við erum gæslumenn trausts almennings megum við aldrei gleyma því, að við erum hér til að þjóna almenningi og almannaþjónusta er sérréttindi," sagði Obama áður en nýir starfsmenn Hvíta hússins sóru hollustueið. 

Hann sagði, að starfsfólkið mætti ekki reyna að vinna að eigin sérhagsmunum, sérhagsmunum vina sinna eða fyrirtækja sem það tengdust.  Þá snérist starf fólksins ekki um að vinna að framgangi hugmyndafræði eða sérhagsmunum samtaka.

Þess vegna hefðu í dag verið settar strangari reglur um störf svonefnda lobbýista í Hvíta húsinu en áður hefðu þekkst. Einnig hefði verið lagt bann við því að þiggja gjafir frá slíkum aðilum.  

 


mbl.is Obama setur þrýstihópum stólinn fyrir dyrnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Ég ætla nú að bíða aðeins með fagnaðarlætin. Held því miður að það sé ekki mikil innistæða fyrir þessum væntingum, á ennþá eftir að sjá að Obama sé ekki strengjabrúða alþjóðegu bankamannana í innsta hring Elítunnar.

Geir Hilmar Haarde og reyndar íslendingar allir þurfa að horfa á þessa mynd, "The Money Masters", afar vönduð heymildarmynd frá 1996 sem skýrir mjög vel afhverju það er kreppa og fyrri kreppur sem og hengingartak það sem klíka alþjóðlegra bankaskúrka hefur á öllum þjóðum, hvernig þeir náðu undir sig Bandaríkjunum(endanlega 1913), hvernig Aljóðlegi Gjaldeyrissjóðurinn kemur inn í dæmið seinna meir, hvernig það er hagur þessarar klíku að halda öllum þjóðum í skuld með skipulögðum kreppum og stríðum/styrjöldum. 

Það reynist mörgum erfitt að horfast í augu við slíkan hráskinnaleik og hvernig þjóðir heimsins eru hafðar að leiksoppar öld eftir öld, öllum er þó hollt að horfast allavegana smástund í augu við óvininn og skilja hvernig hann hugsar, nú eru ekki tímarnir fyrir sjálfsblekkingu því að nú fara hlutirnir að gerast hratt og þessi þjóð þarf einhvernveginn að losna úr klóm þeirra afla sem gera okkur að skuldaþrælum kynslóð eftir kynslóð. Í lok myndarinnar (sem segir fyrir 9 árum fyrir um hrunið mikla sem nú er í gangi, þó að höfundurinn hafi sennilega reiknað með því að Peningameistararnir myndu láta til skarar skríða nokkuð fyrr er raunin varð) er líka talað um lausnir og hvernig hægt sé á raunhæfann hátt að brjótast undan þessum óskapnaði. Hér á landi sem annars staðar er vissulega fyrsta verk að losa sig við spilltustu stjórmálamennina og koma heiðarlegu fólki að stjórn. Sækja ræningja til saka síðan þegar búið er að koma varðhundum þeirra frá og endurheimta sem mest af þýfinu.

En í alls bænum horfið á hana og skiljið hvað hún upplýsir og augljóst samhengið við klípuna sem búið er að ginna íslensku í. Hverrar mínútu virði þó löng sé, afar augnaopnandi.

Georg P Sveinbjörnsson, 23.1.2009 kl. 01:28

2 Smámynd: Morten Lange

Takk fyrir áhugaverða og ítarlega athugasemd, Georg !

Sammála þér um að það sé frekar hæpið að Obama nái að breyta 10% af því sem hann virðist ætla sér.  Mótöflin eru mjög, mjög sterk.  Og sumt af því sem kemur frá honum, og líka ef horft er til útnefningar,  er ansi mótsagnakennt. 

Reyni að kíkja á efnið sem þú bendir á seinna. Tek vissan fyrirvara, því mig grunar að sumir ( og kannski ég ) vilja nota samsæringarstimpillinn  á þessu.

Morten Lange, 23.1.2009 kl. 01:38

3 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Takk sömuleiðis.

Við skulum samt gefa honum séns, maður veit aldrei

Lítið um kenningar í þessari mynd, fyrst og fremst farið yfir misvel þekktar sögulegar staðreyndir og vitnisburði og sett í rétt samhengi öfgalaust. Held að fátt sé hrekjanlegt þarna og jafnvel þó hægt væri að hrekja eitthver atriði stendur restin styrkum fótum.

Georg P Sveinbjörnsson, 23.1.2009 kl. 01:50

4 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Obama er allavega stórt skref upp á við miðað við Bush. En það er  varla hægt að vera verri en síðasti forsetinn.

Úrsúla Jünemann, 23.1.2009 kl. 10:27

5 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Varlega myndi ég treysta á það Úrsúla að það sé varla hægt, ég treysti illa miklum fagurgölum.

Georg P Sveinbjörnsson, 23.1.2009 kl. 13:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband