Leita í fréttum mbl.is

Lýðheilsugildi í gjaldahækkunum

Eftirfarandi  hefur stórvantað í umræðunni : lýðheilsugildi gjaldahækkana við hækkun skatts á áfengi, tóbak, bensín og bílagjöldum. Ætti að vinna gegn marga sjúkdóma, minnka kyrrsetu, minnka mengun, bæta umferðaröryggi. Munum líka að kyrrseta veldur meiri heilsutap og fjárútlát heilbrigðiskerfisins ofl. en reykingar. 

Þannig er þesi aðgerð líka leið til þess að spara í heilbrigðiskerfinu, í fyritækjum og á öðrum vinnustöðum.

Ég mun sennilega bæta inn heimildir og frekari rök seinna hér. En margt af því hefur áður komið fram hérna bloggi mínu, og til dæmis frá Lýðheilsustöð. 

Annað er að hækkun bensíns, tóbaks og áfengi ætti ekki að hækka húsnæðislánin.  Af hverju ekki frekar tengja við visitölu fasteignaverðs, þangað til verðtrygging verði (etv) afnuminn ? 


mbl.is Bensínlítrinn í 181 krónu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjóla-Hrönn

Já, ég skal viðurkenna að ég er ekkert ósátt við þessar hækkanir.  Ég nota áfengi og olíu í hófi, löngu hætt að reykja, aldrei að vita nema ég leggi bílnum alfarið, hann er hvort eð er alltaf rafmangslaus vegna hreyfingarleysis, það þarf víst að ræsa þessar elskur vikulega eða svo til að maður geti gengið að þeim vísum og keyrsluhæfum. 

Ég er eiginlega farin að hjóla allra minna ferða í dag.  Ef strætó væri ekki svona andskoti leiðinlegur og leiðarkerfið gjörsamlega óskiljanlegt, þá myndi ég freistast til að selja bílinn.  En nei, það geri ég ekki á meðan almenningsamgöngur eru á svipuðu plani og í þróunarlöndunum.

Hjóla-Hrönn, 29.5.2009 kl. 11:06

2 identicon

Sammála ykkur, það á að leggja skatta og gjöld á allt sem er óhollt. Legg líka til að það verði lagður sérstakur skattur á yfirþyngd. Allir sem eru umfram BMI 24 greiði 100.000 kr. á ári fyrir hvert stig fram yfir það. Bara svona til að mæta þeim aukakostnaði, sem of þungt fólk veldur í heilbrigðiskerfinu. Svo mætti líka hætta að niðurgreiða mjólk, smjör og vegalambaket, frekar ætti að skattleggja það sérstaklega.

Drullusokkur (IP-tala skráð) 29.5.2009 kl. 11:47

3 Smámynd: Morten Lange

Mér skilst að almenningssamgöngur séu betri í mörgum borgum þróunarlanda :-)   Til dæmis hefur ódýr og skilvirk lausn verið þróað í Bogotá,  Kólombíu  Brasíliu eftir dæmi frá annarri borg.  Það eru "allir" að tala um Bus Rapid Transit í dag.  Forgangsakreinar, sem svipa til léttlestaleiða, miðinn keyptur fyrirfram, og tiðar ferðir.

Morten Lange, 29.5.2009 kl. 11:51

4 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Sökum þess að vörur eru ekki bornar í búðir á múlösnum þá fer bensínverðshækkun beint út í verðlag.

Ásgrímur Hartmannsson, 29.5.2009 kl. 12:40

5 Smámynd: Morten Lange

Herra/Frú Drullusokkur: Þetta er bæði fyndið og málefnalegt hjá þér :-)

Ásgrímur : Það er auðvitað rétt að bensínverð hafi áhrif á verðlag á öðreum vörum. Spurning hversu sterk tengingin sé samt. Kannski er tengingin á milli lægra  bensín-, áfengis-, tóbaks- og bílagjöld við aukin útgjöld í heilbrigðiskerfinu  enn sterkara.   Og inn í þessu bætast aukin útgjöld vegna heilsuleysis  fyrir einstaklinga og vinnustaði.  Aukin útgjöld á þessum sviðum skilar sér líka út í verðlaginu. Mögulega enn meiri, þó að tengingin sé ekki jafn bein, heldur í gegnum skatta, og þörf á aukna innkomu fyrirtækja.

En takið eftir að ég var fyrst og fremst hér að benda á rök sem mér fannst vanta í umræðuna um hækkandi verð á þessum vörum.  Í færslunni var ég í sjálfu sér ekki að taka afstöðu með eða á móti hækkanir.   Til að taka afstöðu þarf maður að skoða heildaráhrifin, og mér fannst lýðheilsuþáttinn vanta tilfinningalega.

Morten Lange, 29.5.2009 kl. 14:42

6 Smámynd: Margrét Elín Arnarsdóttir

Þessar hækkanir hækka lán okkar allra og það er nú það lang versta, en það er væntanlega liður í þessu hjá þeim þar sem ríkið á jú náttúrlega bankana...en með þessari leið reyna þeir að láta þetta líta út fyrir að það sé bara verið að skattlegja það sem að er "slæmt" enda vita þau hvað er gott fyrir okkur!!!

Margrét Elín Arnarsdóttir, 29.5.2009 kl. 17:48

7 Smámynd: Morten Lange

Tek að sjálfsögðu undir að mjög slæmt sé að hækkun verði á húsnæðislánum okkar.  Skil ekki hvers vegna sé ekki fyrir langa löngu búið að aftengja þróun llanda frá verði á hlutum eins og bensíni, bíla, tóbak og áfengi.  Frekar tengja við verð visitölu húsnæðis ef eitthvað.  Eða taka upp sömu kerfi og viðgengist í flestum öðrum löndum.

Morten Lange, 29.5.2009 kl. 18:44

8 Smámynd: Sólveig Þóra Jónsdóttir

Það að þessi hækkun á þessum "lúxusvörum" hækki lán okkar er auðvitað það alversta í þessu máli öllu. Skil vel að þú hugsir þetta út frá lýðheilsusjónarmiði. Þ.e. að fólk hætti einfaldlega að kaupa þessar vörur eða allavega minnki neysluna. En það er ekki það sem ríkisstjórnin hefur í huga, þeir ætla að græða á þessu og reikna með sömu neyslu áfram.

Sólveig Þóra Jónsdóttir, 29.5.2009 kl. 20:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband