Leita í fréttum mbl.is

Lélegt aðgengi komi niður á hreyfingu fátækra barna

Í frétt mbl.is undir fyrirsögninni "Fátækustu börnin hreyfa sig minna en önnur börn"  segir m.a. 

" Börn sem búa við fátækt á Íslandi hreyfa sig minna en önnur börn, borða sjaldnar hollan mat og eru líklegri til að vera of þung og feit samkvæmt niðurstöðum sem fengist hafa úr hluta rannsóknarinnar Heilsa og lífskjör skólanema. Rannsóknin er hluti fjölþjóðlegrar samanburðarrannsóknar 40 landa.  "

Flestir hugsa þá eflaust um að hluti af skýringunni kunni að vera að það kosti of mikið að taka þátt í íþróttastarfi, og svo bendir Lýðheilsustöð á aukin hreyfing í skólanum sem leið til úrbótar. 

Þetta er bæði gott og gilt.  En það sem virðist gleymast er tækifæri til þess að nota samgöngur sem tækifæri til hreyfings.   Þá getur verið að krafan um skutl í íþróttir sé hemlandi fyrir þáttöku. 

Umferðin svo þung á liðnum 10 - 20 árum og mikill áherslu lögð á að umferð bíla sé sem greiðast.  Það sjónarmið er tekið fram yfir greiðfærni fyrir gangandi og hjólandi. Nýleg dæmi eru gangbrautarljós við Suðurlandsbraut sem núna virðast tengdar grænni bylgju fyrir bíla. Áður fyrr gátu menn þryst á hnapp og fengu grænt ljós, til dæmis við hotel Nordica, nánast strax. Undantekningin var ef það var nýlega búið að gefa grænt fyrir gangandi ( og hjólandi etfir atvikum).

Míslægu gatnamótin og breikkun hraðbrauta í þettbyli greiða fyrir samgöngur bíla ( þangað til stíflast aftur), en hamlar för þeirra sem velja eða þurfa að treysta á sjálfbærri samgöngumáta.

Bretinn  Harry Rutter hefur skrifað skýrslur fyrir WHO og fjallar meðal annars um hvernig aukin bílaumferð og lélegt aðgengi til að ganga eða hjóla frá A til B  kemur meiri niður á fátæku börnin, meðal annars út frá búsetu í "ódýr" hverfi með mikla og þunga umferð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband