Leita í fréttum mbl.is

Hjólreiðabrautir til samgangna

Núna er tíminn til að setja hjólreiðabrautir í  forgang í vegaframkvæmdum. Það stórvanta greiðar, skilvirkar og aðgengilegar  brautir til samgönguhjólreiða, sérstaklega  á milli hverfa og sveitarfélaga í þéttbýli.

Þó að hjólreiðamenn eiga fullan rétt á öllum akbrautum, þá er mjög óþægilegt að hjóla eftir stofnbrautum í þéttbýli, ekki síst á höfuðborgarsvæðinu.  Menn óttast um líf sitt og langflestir sleppa því frekar að hjóla en að velja greiðfærustu leiðirnar.  Sumir finna krókaleiðir sem nýtast ágætlega til samgangna.  En til að auka hjólreiða hér á landi þarf að fara áleiðis í jafna út samkeppnisforskotið sem bílarnir hafa fengið á fölskum forsendum.  Það mundi spara stórfé og létta á heilbrigðiskerfinu, eins og ég hef margoft ítrekað hér á blogginu, og sjálfur Samgönguráðherra sagði líka við opnun hjólað í vinnuna.   Með niðurskurðinn sem er á leiðinni í heilbrigðiskerfinu kæmi það sér mjög vel að létta á eftirspurnin eftir /þörfin fyrtir þjónustu. 

Erlendir rannsóknir, meðal annars tengd Kjartan Sælensmide, sem var hjá Transportøkonomisk institutt í Noregi hafa bent til þess að hjólreiðabrautir séu með hagkvæmustu framkvæmdir sem má fara í í samgöngumálum.  Og reyndar er sennilegt að enn sé verið að ofmeta þjóðarhag af vegaframkvæmdum og vanmeta þjóðarhag af aukningu í hjólreiðum.  


mbl.is Einkaframkvæmd líkleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Karlsdóttir

heyr, heyr!

Anna Karlsdóttir, 30.6.2009 kl. 16:11

2 identicon

Það er eitt sem gleymist í þessu, það eru sturtur.

Ég hjólaði mikið í vinnuna í fyrra af því að þar var sturta.

Ég bý í hafnarfirði og þetta er 15.5km leið sem ég þarf að hjóla og eftir 37-45mín á hjóli þá er ekki þurr blettur á mér.

þurfum bara að óska eftir svona á nokkrum stöðum :)

http://www.pushbikeparking.com/green-pod

Emil (IP-tala skráð) 1.7.2009 kl. 09:12

3 Smámynd: Árni Davíðsson

Tek undir með þér og Önnu.

Hvort viljum við eyða 15 milljörðum í stokk á Miklubraut eða 10 milljörðum í fullkomið stofnbrautarkerfi fyrir reiðhjól sem nær um allt höfuðborgarsvæðið frá Mosfellsbæ til Hafnarfjarðar og frá Seltjarnarnesi til Norðlingaholts?

Því miður virðist vanta á grunnvinnunna hjá tæknisviðum sveitarfélaganna. Við erum ekki að sjá neina skipulega áætlun, enga flokkun og úttekt á hvernig núverandi mannvirki nýtast fyrir reiðhjól, enga staðla um gerð hjólreiðabrauta né sjá mótaða hugmyndafræði um notkun reiðhjóla. Allt þetta þyrftu sveitarfélögin að hafa á takteinum og  sameinast um við gerð samgönguáætlunar fyrir höfuðborgarsvæðið.

Alltof oft er gefið í skyn að bílstjórar og hjólreiðamenn séu óvinir í umferðinni. Það er alls ekki þannig. Við erum bandamenn. Bestu vinir einkabílsins eru reiðhjólamenn. Fyrir hvern reiðhjólamann er einum bíl færra og þar með verður meira pláss fyrir blikkbeljurnar á götunum. Óvinir einkabílsins nr. 1 eru þeir sem krefjast mislægra gatnamóta sem skila engu nema fleiri bílum á göturnar þegar upp er staðið.
 

Árni Davíðsson, 1.7.2009 kl. 15:25

4 Smámynd: Morten Lange

Rétt er það, Árni, að þessi grunnvinna vanti.   En áhugi hjá verkfræðistofum á hjólreiðum, og þar á meðal að hanna aðalnet hjólreiða á höfuðborgarsvæðinu hefur aukist eftir að opnað var fyrir  því í lögum að ríkið geti veitt fé í "stíga"  fyrir hjólreiðar og göngu.   En ríkið / samgönguyfirvöld hafa ekki einu sinni sett niður nefnd um hvernig skal unnið í þessum málum.

Morten Lange, 1.7.2009 kl. 18:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband