Leita í fréttum mbl.is

Og hvað borða kýrnar og nautin ?

Talað er um innflutt nautakjöt, en hvað fáum við að vita um fóður sem hérlendu og erlendu dýrin éta,  ?

Er fóðrið  til dæmis að einhverju leyti genabreytt soja sem er ræktað á landi sem var rutt í regnskógum Amasón ? 


mbl.is Aukin sala á nautakjöti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjóla-Hrönn

Verðum við ekki að drepast úr einhverju Morten   Ekki viljum við lifa að eilífu?  Ég get svo svarið það, ég hélt í haust eftir hrunið að við myndum þurfa að lifa af landsins gögnum og nauðsynjum, hvað er hollara en íslenska sauðkindin og þorskurinn ferskur spriklandi úr sjónum.  Ég var satt að segja orðin pínu spennt að sjá hvort við yrðum ekki gífurlega hraust, hress og sjúkdómafrí eftir að innflutningur myndi lamast og við að lifa algjörlega lífrænu líferni á afurðum úr okkar nánasta umhverfi.  Sé nú samt ekki fram á að það verði að veruleika héðan af.  Þó að maður velji að kaupa lífrænt, þá veit maður aldrei, hvort einhver túristinn hafi ekki skitið úti í móa og skilið eftir sig eitthvað erfðabreytt og ógeðslegt, sem annars hraustu og heilbrigðu lömbin okkar hafa etið.

Hjóla-Hrönn, 13.7.2009 kl. 18:50

2 identicon

Hjóla-Hrönn: Ég held að heimssýn þín sé heldur einfölduð og skrumskæld mynd af raunveruleikanum.

Halldóra (IP-tala skráð) 13.7.2009 kl. 20:19

3 Smámynd: Morten Lange

Takk fyrir innlítið og athugasemdina , Hrönn  :-)

Allir vita það að við deyjum úr einhverju, og ég hef stundum haft uppi svipuð orð og þú, en í aðeins öðru samhengi.    Hinsvegar skiptir það máli hvort maðurinn  ýtir undir kerfisbundið undir óheilsu sína og lífhvólfsins  með gjörðum sínum.   

En ég var reyndar ekki aða tala um heilsu fyrst og fremst í þessari færslu, heldur var ég að spá í sjálfbærni, að vernda því sem er undirstöðu lífs okkar mannanna.

Já,  og hreinlega að stuðla með einhverju litlu móti að fræðslu um hvað við séum í raun að gera, hvernig við stundum landbúnaði og fleira.   Í landbúnaði og matvælaframleiðslu skipta afurður/hráefnin sem eru notuð miklu máli,    fyrir gæði, ímynd, skilvirkni, hagkvæmni til langs tíma og skemmri tíma og fyrir  umhverfinu  ( hagkvæmni til verulega langs tíma ).

Stærsti part færslunnar frá þér er ég í smá vandræðum með að átta mér á, nema sem vangaveltur og létt grin.  Og það er auðvitað í stakasta lagi.  :-D

Held að Halldóra hafi tekið athugasemdina frá þér  aðeins of alvarlega.  Hins vegar er einhver alvara í öllu ( langflestu ) gríni.  Og kanski sérstaklega þegar er verið að grínast með alvarleg mál.

Morten Lange, 13.7.2009 kl. 23:08

4 Smámynd: Morten Lange

Halldóra: Mér fannst athugasemd Hrannar fara í nokkrar áttir, og ekki viss um að hægt sé að álýkta um heimsýn út frá athugasemdina.  Hvað varstu að gagnrýna ? 

Morten Lange, 13.7.2009 kl. 23:33

5 Smámynd: Hjóla-Hrönn

Jú, jú, þetta voru bara vangaveltur og smá grín eftir að hafa lesið fréttina og innslagið frá þér.  Ég er búin að hjóla tæpa 400 km síðustu viku um sveitir landsins, held að vindurinn hafi hreinlega blásið á milli eyrna mér og hreinsað allt út

Hjóla-Hrönn, 14.7.2009 kl. 12:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband