Leita í fréttum mbl.is

Miklu sterkari rök fyrir hjólavæðingu og þess háttar

 Það er sýnd að sjá hvernig áherslurnar eru skakkar.  Það kom fram í skýrslu umhverfisráðuneytisins sumar að rafbílavæðing er meðal dýrustu leiða til að draga úr útblæstri þegar til skamms tíma er lítið. Aukningu hjólreiða var hinsvegar metið að vera meðal hagkvæmustu kostunum, og myndu spara samfélaginu mikið, bæði til skamms og til langs tíma.  Og þá var ekki búið að reikna in þann mikla sparnað á vinnustöðum, í heilbrigðiskerfinu og á heimilum sem má reikna með vegna batnandi lýðheilsutengd hjólreiðum. 

Búinn að skrifa um þetta oft áður :-)   En það víst er ekki sannleikurinn og rökstuðningurinn sem skiptir máli heldur einhver tíðarandi sem er í raun á eftir sinni samtíð.

http://mortenl.blog.is/blog/mortenl/entry/971250/ 


mbl.is Stefnt á rafbílavæðingu Reykjavíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott hjá þér, Morten.  Þú ert frábær talsmaður og alltaf tilbúinn að stökkva til og benda fólki á hjólreiðaleiðina.

Hvað finnst þér að Borgin ætti að laga fyrir hjólreiðamenn? Prívat og persónulega finnst mér þessi grindverk sem þeir setja um allt á stígana (svo bílar geti ekki ekið inn á þá) stórhættuleg þar sem maður þarf að hafa góðan balans til að geta hjólað á milli.  Er annars ekki stígakerfið alveg sæmilegt?

Bragi Þór Valsson (IP-tala skráð) 27.10.2009 kl. 21:40

2 Smámynd: Hörður Halldórsson

            Sæll Morten.Ég vill sjá meira pláss fyrir hjól í strætisvögnunum.Ég veit að það má vera með hjól í vögnunum en það er mjög óaðlaðandi að burðast með reiðhjól ,manni finnst maður vera fyrir.Man eftir gömlu Volvo vögnunum með smá auðu plássi aftast.Það munar öllu að geta samnýtt strætó og hjól,það víkkar svo út radíusinn sem maður getur ferðast um á hjólinu.Vil sjá endurbætur á vögnunum í þessa átt.Fólk fær miklu meiri kjark að hjóla lengri vegalengdir ef tekst að gera þetta meira aðlaðandi.

Hörður Halldórsson, 27.10.2009 kl. 21:56

3 Smámynd: Morten Lange

@Hörður : tek undir með þér heilshugar. Lausn sem er til og með sína kosti er að vera með grind framan á strætó. Mikið notað í norður-Ameríku. Hef leitað til Strætó með "boðskort" um að taka þátt í þróunarverkefni um svona lausn fjarmagnað að hluta af ESB. Jákvæð viðbrögð fyrst,  en svo gerðist ekkert.

Takk fyrir hlý orð í mín garð, Bragi. Þú ert að mér sýnist frábær talsmaður rafbíla :-) 

Var að lesa bloggfærslu þína, tengd sömu frétt, og fór að velta fyrir mér hvort þessum mikla kostnaði við "rafbílavæðingu" sem kom fram í skýrslu Umhverfisráðuneytisins í sumar, tengist vitlausum forsendum, eins og það að hleðslustaurar séu algjör nauðsýn.

Hef ekki mikið lent í þessum grindverkum, sjálfur, enda hjóla ég að mestu á götu, í hverfum þar sem svoleiðis grindverk eru helst  að finna. Já,  og svo er jafnvægið á reiðhjólin ágætt hjá mér :-)  

En grindverkin "fyrir" gangandi á Kri-Mi gatnamótunum og sífellt fleirum, tengd stígakerfinu, eru til ansi mikilla trafala og hjólreiðamenn sem ég þekki til kvarta mikið yfir þeim.  Á veturna koma þeir oft í veg fyrir alminnilegan snjóruðning. 

Stígakerfið er ekki hannað til hjólreiða, (nema spotta hér og þar eftir Ægissíðu og nú í Fossvog og sem lítill reynsla er á enn sem komið er) en hentar ágætlega á köflum, sérstaklega þegar langt er á milli þveranir, umferð gangandi litill, og ekki blindbeygjur.  Og eða ef maður fer hægt yfir og er til í að stoppa eða hæga verulega á sér þegar þess þarf.  

Verð að þjóta bráðum, en hér eru nokkur atriði sem hjólreiðasamtökin leggja áherslu á:

http://lhm.is/index.php?option=com_content&task=view&id=81&Itemid=159 

Auk þess mundi skipta miklu máli að fara að rukka amk kostnaðarverð  fyrir bílastæði til að stefna í átt að jafnræðis samgöngukosta, og amk þangað til það er komið, láta alla opinbera stofnanir setja samgöngustefnu og gera samgöngusamninga við starfsmenn.  Gefa aðra vinnustaði hagræna hvata til að gera hið sama. 

Fyrirmyndir  : 

http://www.fa.is/fjolbrautaskolinn/namskra/samgongustefna/

http://www.mannvit.is/Mannvit/StefnurMannvits/Samgongustefna/ 

Morten Lange, 28.10.2009 kl. 14:35

4 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Þetta eru góð innlegg. Verst er að þeir sem stjórna umhverfisskipulag og almenningssamgöngur hafa flest allir aldrei notað hjól frá því að þeir slitu barnaskóna.

Þegar verður endurnýjun í strætisvagnaflotanum þá eiga að koma hingað til lands tegundir sem hafa meira pláss fyrir hjól. Núna er maður skilinn eftir á stoppistöð ef einhver annar hjólreiðamaður er þegar fyrir í vagninum, plássið er ekki meira en þetta.

Og ekki veit ég hversu oft ég hef bölvað grindurnar þvert yfir stigana í sand og ösku, kostuðu mig oftar en einu sinni marbletti, sérstaklega í Mosfellsbænum. Þetta er stórhættulegt!

Úrsúla Jünemann, 28.10.2009 kl. 15:47

5 Smámynd: Morten Lange

Tek undir með ykkur, Úrsúla og Bragi um gridverkin.  Misskildi þessu við fyrstu lestur. Sorrí Bragi.  Sums staðar eru notaðar stóru steinar til að hindra bílana, sem er enn verr, amk ekki eins sýnileg í myrkri.

Og "auðveldara" að færa. 

Það þyrfti bara að herða eftirlit og hækka viðurlög, í stað þess að hafa svoleiðis hindarnir.   Ásamt leyfa myndir frá almenningi sem sönnun .  Kannski frá tveimummismunandi aðilum etc.  

Morten Lange, 29.10.2009 kl. 01:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband