Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2010

Gott mál ! Umhverfisvænn bílafloti ómögulegt

Mjög gott mál að skipta bílaflota yfir á metan. Dregur úr mengun á hvern kílómetra ekinn, bæði staðbundið og  í stærra samhengi. Segir sér nánast sjálft, ekki satt ?  Og mér finnst í raun nánast eins sjálfsagt að bílafloti geti samt aldrei orðið umhverfisvænn.  Vegna þess að lausnir eru til í samgöngumálum sem menga minna, útheimta minni notkun á auðlindum á margan hátt. 

Það hlýtur að vera hægt að sjá að eitthvað sé framför án þess að fara alla leið og segja að markmiðið sé náð.  

Í dæminu um bílar sem menga minna, þá minnir mig að samkeppnisráð hafi bannað innflýtjendur að auglýsa umhverfisvæna bíla. En það má kalla þá umhverfishæfa, ef ég man rétt. 

 


mbl.is Umhverfisvænn bílafloti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott, við þurfum ekki "tvöföldun"

Það væri nóg að breikka vegöxla, setja upp vegrið á milli akstursstefna og hafa möguleika á að taka fram úr upp brekkur og þannig.
mbl.is Mótmælir vegtollum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig öryggi hjólreiðamanna er bætt skiptir sköpum

Ég rakst á frétt á vef Samgönguráðuneytis um að þörf sé á að bæta öryggi hjólreiðamanna, sem og annarra "óvarða".  Það sem vantar í  fréttinni eru grunnupplýsingar um samhengi hlutanna, og að til sé mismunandi aðferðir við að bæta öryggi "óvarða" vegfarenda.

Mæli með Road Danger Reduction  (RDF) aðferðafræðinni, frekar en "Road Safey" aðferðafræðinni. RDF á samleið með lýðheilsu, umhverfi, sparnað, skilvikni og manneskjulegri samfélag.  Hinn hefðbundni bílamiðaði aðferðafræði mun síður. RDF snýr að því að lækka hraða, og bæta aðgengi hjólandi og gangandi, frekar en að hólfa niður og girða af heilbrigðar samgöngur, og um leið gera þá á margan hátt ábyrga fyrir limlestingar og dauða sem bílar valda. (Victim blaming)

 

48 - 2010 Ráðherraráðið leggur áherslu á vernd óvarðra vegfarenda

7.12.2010

Ráðherraráð ESB telur að brýn þörf sé á að vernda óvarða vegfarendur, þ.e. unga og gamla vegfarendur, reiðhjólafólk, gangandi fólk, fólk á mótorhjólum og fatlað fólk, og að unnin verði áætlun í þá veru.

Ráðherraráðið telur að hjólreiðafólk sé sá hópur sem mest þarf á úrbótum að halda. Þetta kemur fram í niðurstöðu ráðherraráðsins frá 2. desember 2010. Þessi niðurstaða ráðsins er í samræmi við umferðaröryggisáætlun framkvæmdastjórnarinnar fyrir árin 2010-2020 frá 20. júlí 2010 en þar er áréttað markmið fyrri áætlunar framkvæmdastjórnarinnar um að fækka dauðsföllum í umferðinni um helming á tímabilinu.

Þetta má lesa í 4097-hefir Europolitics.

 

Af vef Samgönguráðuneytis  ( http://www.samgonguraduneyti.is/frettir/nr/3340 )

 

 

 


Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband