Leita í fréttum mbl.is

Loksins ! Morgunblaðið viðurkennir ábyrgð

Mér þykir það mikið fagnaðarefni að Morgunblaðið vilja fjalla svolítið kerfisbundið um loftslagsbreytinga og hvað við getum gert.

Hingað til finnst manni að fjölmiðlar hafa almennt ýtt undir aukna bílavæðingu, og tortryggja  vísindi Lofslagsverkefnis þúsunda vísindamanna á vegum Sameinuðu þjóðirnar.  

Vonandi  verður vinkillinn ekki þannig að engu þurfa að breyta nema etv að flokka sorpið betur og skipta  í sparperur og etv bíll sem mengar 10% minna.  Munu stjórnmálamenn sleppa 100% ?

 

P.S.

Fagni  líka Nóbelsverðlaunin til handa IPCC og Al Gore, en voni að næst tengist verðlaunin frið með beinni hætti.  


mbl.is Hvað eruð þið að hugsa?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Leifur Þorsteinsson

Morten Lange! Seigðu mér hvaða jeppa ók Íngólfur Arnarson sem orsakaði

hlýjindin á landnámsöld. Að ímynda sér að 38 til 40 10þúsundustu hluta

þéttleiki CO2 í andrúmsloftinu hafi afgerandi áhrif á hitastig loftsins er

fáheyrð heimska eins og allar heimsendaspár. En þrátt fyrir það er nauðsyn að

ganga vel um umhverfið, einig það sem er huglægt.

Leifur Þorsteinsson, 12.10.2007 kl. 16:34

2 Smámynd: Mofi

Ég hef mínar efasemdir um að loftslagshlínun er af manna völdum en samt full þörf á að ganga vel um umhverfið.  Bandaríkjamenn gætu byrjað á því að hækka verð á bensíni svo dæmi sé tekið. Vinkona mín er frá Bandaríkjunum og hún hafði aldrei séð jafn litla bíla og eru hér á landi. Það einhvern veginn segir helling um hvernig þjóðin hegðar sér í þessum málum.  Ég sé síðan ekki beint eins og fjölmiðlar hafi verið að efast um að loftslagshlýnun sé af völdum manna. Hef einmitt ekki séð nein rök á móti því í fjölmiðlum enda eru þeir því miður hræðileg uppspretta upplýsinga þar sem allt minnir frekar á heilaþvott en fræðslu.  Eins og fréttin sjálf er sett upp þá er það bara gefið að enginn efast um þetta og síðan haldið áfram frá því svo það stefnir ekkert í að fjölmiðlar fjalli um þetta mál á málefnilegann hátt.  Málefnaleg umræða myndi vera að fjalla um rökin með þessu og síðan þau sem eru á móti þessu en ekki koma bara með fullyrðingar.

Mofi, 12.10.2007 kl. 16:50

3 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

loftlag er að hlýna, hverjum það svo sem er um að kenna.  Jöklar á báðum pólum bráðna hraðar en áður hefur sést síðan mælingar hófust. 

Og ef við getum eitthvað gert til að hægja á því er það ekkert nema sjálfsagt.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 12.10.2007 kl. 16:56

4 Smámynd: Morten Lange

Já, Leifur,  málið er að ganga vel um umhverfið, og ef við gerum það, þá mundum við líka minnka áhrif okkar á þéttleiki koltvísýrings ofl.  í lofthjúpnum.  Sem sagt : Það er hægt að fara í aðgerðir  sem geta af sér samvirkni, og ekki einblína á útstreymi koltvísýrings einungis.  Orkusparnaður og að jafna samkeppnina á milli hjólreiða, göngu og almenningssamgangna annars vegar og bílana hins vegar,  eru nokkur dæmi þar sem margföld ávinningur og samvirkni náist.

Kúrvan varðandi aukningu koltvísýrings er mun brattari en áður hefur sést. Það er aðalmunurinn.  Og við stefnum í miklu hærri innihald koltvísýrings  en nokkurn tímann áður  á meðan homo sapiens hefur verið til.   Vissulega  höfum við ekki 100% sönnun á samhengi né fullkomna spá um framhaldið, en áhættan er svo mikill, og aðgerðirnar sem heimsbyggðin mundi byrja á,  kosta fremur lítið og mundu gefa ávinning á öðrum sviðum, eins og ég gat um. 

IPCC kemur ekki með heimsendaspá :  Auðvitað lífa náttúran sem slík og manninn af þessum breytingum.  En það getur orðið mjög svo strembið tímabíl. Það er ábyrgðarlaust hvernig fjölmiðlar hafa verið að skoppa á milli þess að taka undir með vísindamönnum sem eru í pínulitlum minnihluta og stundum fjármögnuð af olíufyrirtæki og þess að mála skrattann á veginn og ekki eins og allt sé að fara til helvítis og ekkert sé hægt að gera. 

Þess vegna vonar maður að Moggin standi undir væntingum með þessu  framtaki sínu.

Til að útkýra þetta  með að taka ábyrgð, þá á ég við að fjölmiðlar hafa ábyrgð um að upplýsa okkur, ekki bara fjalla um það sem selur, er skemmtilegt eða sem laðar að auglýsendur.  Fjölmiðlar eru fjórða valdið  og ein meginuppsprettan fyrir fræðslu eftir að fólk hættir í barna- og unglingaskóla.   Oft er talað um hversu mikilvægt sé að börnin fái umhverfisvitund í skólunum, en ég vil meina að það sé til lítils ef ekki sé verið að fræða foreldrana og samfélagið  í heild um leið.   Við getum að sjálfsögðu ekki lagt það á herðar börn okkar og kennarar þeirra að breyta til betri vegar.  Fjölmiðlar leika lykilhlutverk í fræðslu, en virðist ekki hafa neina stefnu í þeim efnum. Vonandi er þetta að breytast. 

Morten Lange, 12.10.2007 kl. 21:08

5 Smámynd: Leifur Þorsteinsson

Þetta með að taka ábyrg gerða sinna hefur ekkert að gera með þann

áróður sem hafður er í frammi af náttúru politíkusum og fanatíkurum

sem hafa það eitt af leiðarljósi að stjórna heiminum og öðrum með-

bræðrum sínum, einnig er þarna um að ræða valdagræðgi á háu stigi,

sem ekkert hefur með vísindi eða þekkingu að gera. Að lokum vænti ég

þess að þú svarir eða gefir vel grundað svar við Spurningunni hvað var

það í hegðun mannsins sem orsakað hefur fyrrri hita og kuldaskeið.

Einnig skaltu vita að það er lítið að marka mælingar á breytileika CO2

í andrúmslofti, það mældist staðbundið um 90% CO2 hér á skerinu

árið 1947, sem íslenskir fjárbændur urðu illa varir við

Leifur Þorsteinsson, 12.10.2007 kl. 22:26

6 Smámynd: Morten Lange

Leifur, það er ljóst fyrir alla að maðurinn hafi varla haft áhrif á loftslagssveiflum lagt aftur í öldum eða lengur aftur í tímann. 

Morten Lange, 12.10.2007 kl. 22:40

7 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Leifur, pólitíkusarnir sem snúa blinda auganu að hafa náttúrlega ekkert með valdagræðgi að gera...

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 12.10.2007 kl. 23:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband