Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2006

Frábært umferðarskipulag !

Það  skemmdi ekki fyrir að lítið var um bílastæði nálægt Klambratúni / Miklatúni. 

Frekar þvert á móti.

Það var frábær stemning þar sem allir komu labbandi og hjólandi síðasti spölin að tónleikunum.  Mæli hiklaust  með að endurtaka leikinn við næsta stórtónleika.  Eins og maðurinn sem stóð næst mig benti á, þá er hallin á túninu líka akkúrat mátuleg.  Þarna var búið að loka á því að menn mundi leggja bíla á grasfleti og stíga. Margir hafa etv ekki áttað sig á að þetta umferðarskipulag hafi bætt heildarupplífunina heilmikið.

Óttast var að umferðaröngþveiti mundi verða í tengsl við tónleikana, en svo varð ekki. Skýringin hlýtur að vera að menn voru búnir að heyra það eða átta sig á því að ekkert  bílastaæði væri þarna nálægt.

Að vísu má vera að fólk sem virkilega hafa einhver þörf fyrir að komast vel að í bíl, sem sagt hreyfihamlað fólk, hafi lent í vandæðum.  Ef svo er , treysti ég og vona að þeir segja frá því, og að þeirra mál verði leyst næst. 

 

Sjá líka
http://mortenl.blog.is/album/Reidhjol_vid_tonleka_Sigurrosar/

http://hlf.blog.is/blog/hlf/entry/24373/?t=1154363449#comments

 

 

 


mbl.is Fólki bent á sérstök bílastæði og að samnýta bíla fyrir tónleika Sigur Rósar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skiljanlegt en vanhugsað

Rúnólfur byggir tillögu sinni á nokkrum forsendum, að mér sýnist :

1. Hátt bensínverð ( yfir 100-110 kronur á liter ) er tímabundið ástand
2. Lækkun bensinverðs er meðal besta leiða til að vinna gegn verðbólguna
3. Aðalskostnaður samfélagsins tengda umferð er vegna vegagerðar og viðhaldi á þeim

Ég held að þetta sé allt rangt, og eins Pétur Blöndal hefur sagt, þá væri rangt að  bæta stöðu bensíns í samkeppnina þegar markaðurinn hækkar verði á vöru.  Kínverjar munu halda áfram að auka notkun sína, óróleiki vegna olíu í miðausturlöndum verði áfram.
En flestir landsmenn eiga sem betur fer ákveðið val um að nýta minna bensín.  Ég tel að það ætti að :

1. Reikna heildarkostnað samfélagnsins af auknum akstri  flutningabíla og einkabíla. Mengun og hreyfingarleysi tekur _mjög_ stóran toll, í evrópu og í  norður ameriku, en engin hefur reynt að reikna það út hér. 
2. Breyta útreikningum á neysluvistitöluna og endurskoða verðtruggingafyrrirkomulagið.
3. Finna lausnir til að aðstoða þá sem hafa lítill pening en virkilega þurfa að nota bíl. 
Nota aukna skatt-tekjur af bensíni og dísil þannig. 
4. Reyna að endurlifga strandflutninga....   Þá endast vegirnir betur, og vegir + umferð verða öruggara.
5. Afnema skekkjur í samkepnni bíla og annarra aðferða til að flýtja fólk og vörur.  Til dæmis eru margir sem fá bílastyrk, og eru þannig verðlaunaðir fyrir að vera á bíl.  Ef við höldum í bílastyrkjum ætti að gefa sambærileg styrk fyrir að nota færurnar eða strætó/ rútu.  Starfsmenn Oslóarborgar og fleiri borga fá jafn mikið á kilometer ef farið er á reiðhjól á fund  sem er stutt frá.  Fyrirtæki á Bretlandi fái skattaafslátt ef þeir leiga starfsfólki reiðhjól á mjög vægu verði.



mbl.is Lækkun bensínverðs getur verið hagstjórnartæki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mannfornir í umferðinni

Fyrir hálftíma síðan birtist sjöundi fyrirsögnin á vef mbl.is um umferðarslys í dag, sýnist mér. Og ekki hefur verið fáar fregnir af umferðarslysum um helgina.

Mér þótti fróðlegt að vita hvort umferðarslys fái alltaf jafn mikill forgang, eða hvort mbl.is er að reyna að fá menn til að hugsa sín gang í umferðinni.  Mér finnst nokkuð skýrt að þörfin séu brýn. Bílum  ætti ekki að meðhöndla sem leikföng, eða á neinn hátt meðhöndla eins og auglýsingar hvetja til... nánast.

Hér eru fyrirsagnirnar :

  • Vesturlandsvegur lokaður vegna umferðarslyss
  • Lögreglubíll valt á leið í útkal
  • Ferðamaður missti stjórn á bíl sínum
  • Ungur maður slasaðist í vélhjólaslysi
  • Harður árekstur á Kjalvegi
  • Lýst eftir vitnum að umferðaróhappi
  • Sekt og ökuleyfissvipting fyrir að aka undir áhrifum áfengis á stolinni bifreið

Fyrirsögnin sem ég notaði er stolið úr Speglinum á Rás 1. Þeir voru með umferðarslysin og aðgerðaleysið tengt þeim sem þema laust fyrir jól í fyrra.

Það mætti allveg senda það efni aftur og taka upp þráðinn.


mbl.is Vesturlandsvegur lokaður vegna umferðarslyss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hallærislegt að virða hámarkshraða ?

Nú veit ég ekki fyrir visst um tildrög þessara slysa um síðustu helgi, en sérfræðingar virðist bera saman um að það sé fyrst og fremst hraðinn sem drepur. Beltin bjarga bílstjóra og farþega, en ekki ef hraðinn er mikill. 

Þar að auki hjálpa bílbeltinn lítið ef þú skellir saman við flutningabíl eða  jeppa / stóran pallbíl og hjálpar auðvitað ekki vegfarendur í öðrum bílum, eða þá sem eru ekki á bílum.

Af hverju er þá eins og manni finnst að viðhorfið meðal ökumanna sé að hallærislegt sé að virða hámarkshraða og aka eftir ástæðum sem og að hafa nægt bil á milli bíla ? 

Af hverju liggur mönnum svona mikið á ? Og af hverju taka þeir ekki mið af því að þeir séu að ferðast á tækjum sem drepa tugir manna og slasa miklu, miklu fleiri ár hvert ? 

Af hverju eru menn  í afneitun ?   

Er tími kominn til að sett sé viðvörun frá Landlækni neðst á bílaauglýsingum ?

Hvað getum við gert til að stemma stígum við þessum límlestingum ?
Við virðumst vera á réttri leið varðandi reykingar.  (Og þá væntanlega varðandi dauðsföll vegna reykinga ?).  Er eitthvað að læra þar ?   Það virðist ekki lengur vera álitað eins svalt að reykja. Hvenær verður minna svalt að keyra of hratt og ógætilegt ?


Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband