Leita í fréttum mbl.is

Hvernig var spurt og i hvaða samhengi ?

Kannski er þetta í samræmi við það sem fólk finnst raunverulega. Kannski ekki.

Þegar niðurstöður eru að breytast svona mikið ( er það ekki annars ),  þá vakna spurningar um aðferðarfræði þegar spurningin var lögð fyrir.

 

 


mbl.is 64% Reykvíkinga vilja flug í Vatnsmýri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Svavarsson

Er þá ekki einnig spurning hvernig spurt var í fyrra skiptið, allstaðar þar sem ég er í hópi fólks að ræða um tilvist og tilgang flugvallarins í Vatnsmýrinni þá eru 3 af 4 meðmæltir því að hafa hann þar áfram og þessi fjórði skiptir oft einnig um skoðun, þegar rökin eru lögð á borðið. 

Jón Svavarsson, 10.11.2008 kl. 17:43

2 Smámynd: Morten Lange

Takk fyrir spurninguna, Jón.

Ég er alveg sammála því að það skipti jafn miklu máli hvernig var spurt í fyrra skiptin. 

Svo má vera að rökin   með færslu hafi fengið meira rými í fjölmiðlum og svo framvegis í fyrra skiptið, en ekki þegar var spurt núna nýlega. 

Kreppan  hefur sennilega haft áhrif þótt Flugstoðir sem pöntuðu könnunina  segja óbeint að kreppan hafi einmitt ekki haft áhrif. Flestir hugsandi menn hafa séð að erfiðir tímar voru í aðsigi, bara ekki alveg svona svakalegir. Nú er um að eyða í mannaflsfrekum aðgerðum, en tiltölulega lítið er eytt af fjarmagni. Held ekki að byggingu flugvallar falli undir þeim hatti.

Þú segir að flestir sannfærast um þína sýn þegar rökin eru lögð á borðið. Er ekki líkur á að eitthvert hlutfall þeirra mundu snúast hugur ef rökin í hina áttina yrðu borin á borð af  einstaklingum sem kunni að sannfæra ?

Til þess að geta tekið afstaða í flóknum málum held ég að nauðsýnlegt sé að stilla öll helstu rökin upp hlið við hlið og líka mótrökin við hvert punkt.  Ég vil meina að maður ætti að leita uppi mótrökin ef maður vill hafa besta mögulegan grundvöll fyrir ákvörðunartöku. 

Að tveir aðilar fara í slag þar sem hafa skal það sem fyndnast reynist er því miður aðferðin sem allt of oft er notuð. Menn fara í slag með það í huga að "vinna" umræðuna,   í stað þess að ræða málin til að finna besta lausnin.

Ef þú getur bent á texta (helst á netinu) þar sem rök með flugvöll í Vatnsmýri koma fram á skipulegan máta og helst  líka önnur rök í málinu, sett fram á heiðarlegan máta, mundi ég svo sannarlega hafa áhuga.

Morten Lange, 10.11.2008 kl. 23:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband