Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Heilbrigðismál

Eina neikvæða hliðin við Hjólað í vinnuna ?

.... gæti verið að þá yrði auðveldari að manna her BNA...

Sem sagt með þeim formerkjum að hernaðarbrölt þeirra sé verulega óhollt, sérstaklega fyrir ópbreytta borgara.


mbl.is Offita ógnar Bandaríkjaher
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Móðir jörð / Gaia ?

Væri svo slæmt að hugsa svolítið á þessum notum , en halda samt ró sinni, skynsemi og gagnrýnni hugsun ?
mbl.is Hafa áhyggjur af fækkun býflugna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bæði og : Hegðun barna og hraðalækkandi aðgerðir

 Áðan var að berast skeyti frá"hjúkkuna" í skólanum :

"Kæru foreldrar
Gangbrautarvörður skólans hefur orðið var við að börn eiga til að tala í síma er þau ganga yfir götu. Þá líta þau hvorki til hægri né vinstri. Skólinn hefur beðið kennara allra vinsamlegast að vekja máls á þessari slysahættu við börnin.
Hér má sjá fróðleiksmola um umferðaröryggi http://www.us.is/id/1000444  "

 

Þetta eru þörf skilaboð. En hinn helmingurinn vantar að mér finnst. 

Áminning um að það séu bílar og bílstjórar sem valda skaðann. Bílstjórar eiga að breyta hraða eftir aðstæðum. Eiga að geta stoppað fyrir börnum sem hlaupa yfir gangbraut eða því sem næst.

Hjúkkan og ekki síður umferðarstofa hefðu mátt  upplýsa um hversu mikilvægur hraðinn er fyrir líkur á ákeyrslum og útfalli af þeim.  Að þeir gera það á öðrum stað finnst mér ekki nóg. Þetta þurfi helst alltaf að fylgja. Því sumum finnst þægilegast að einblína á hvað fórnarlömbin þurfa að gera til að forða sér frá "slysunum".

30 km er eiginlega  of mikill hraði við skóla að mínu mati. Hún ætti frekar að vera 15 eða 20.  30 í öll íbúðahverfi eins og borgarstjórn hefur samþykkt.  Og beri að styðja með  "traffic calming" aðgerðum. Þrenging götumyndar, til dæmis með trjám, blóm eða runna.  Eitt hið einfaldasti er að bara fjarlægja miðlínuna, eins og stefnt  er að á einni götu / vegi í Kópavogi.  Þá breytist gatan í átt að svæði þar sem þarf að taka tillit til aðra, en ekki eins og maður sé á teinum eða kappakstursbraut (þó að kappakstursbrautir hafa ekki miðlínur, ég veit , ég veit.. ) . 

 


Heildræn sýn ?

Það mætti velta fyrir sér hvað sé besta notkunin á peningunum. Og þetta segi ég þó ég hafi gaman af skíðum, og þá sér í lagi skiðagöngu, og tilraunir til að ná tökum á Telemark-svigi.

Setti inn athugasemd hér, sem snýr að miklu leyti um að efla hjólreiðar : 

http://baldvinb.blog.is/blog/baldvinb/entry/1051007/#comment2871839

 


mbl.is Pólitískur áhugi á snjóframleiðslu fyrir sunnan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjólreiðahjálmur orsök dauða barns

Vona að fólk sjái að orsakasamhengið er ólíkt skýrari þegar krakki festist í tré vegna hjálms og kyrkist, en þegar fullyrt sé að einhver hafi "bjargast" vegna þess að hann eða hún var með hjálm þegar ekið var á viðkomandi við hjólreiðar, eða hann eða hún datt.
http://www.aftenposten.no/nyheter/iriks/article3610756.ece
http://laagendalsposten.no/nyheter/sykkelhjelm-arsak-til-dodsulykken-1.5180608

 


Fjölmiðlar og besserwisserar í vanda

Cameron er bersýnilega ekki í hjólavandræðum.  Að hann hjólar er auðvitað jákvætt og skiptir mestu máli, ekki með hvaða hætti eða hvers konar búnaður hann notar. 

Hjólreiðar eru nefnilega jákvæðar : Hjólreiðamenn lífa lengur, eins og margir rannsóknir og sérfræðinganefndir hafa staðfest.  Og hjólreiðamenn skapa minni hætta fyrir aðra, borið saman við bílstjóra, menga minna, lífga upp á umhverfi sínu, spara peninga fyrir sjálfum sér og fyrir samfélaginu. Sumir eru hræddir um að hjólreiðar séu hættulegar, en þá vil ég ítreka að hjólreiðamenn lífa lengur og við meiri heilbrigði  en þeir sem hjóla ekki.  ( Hvað varðar  umferðaröryggi í þröngum , hefðbundnu, m skliningi, þá er  það sambærilegt og fyrir ökumenn, miðað við fjöldi ferða, en lakari miðað við fjöldi kílómetra. En samanburður varðandi ekinna kílómetra gefur skakka mynd af því sem um er fjallað, því meðallengd ferða er mun styttri á reiðhjóli en á bíl  )

Þeir sem kvarta yfir því að fólk hjóli án hjálms þurfa að  kynna sér málin betur.  Og kannski láta skoða hausnum á sér ? (Erfitt að staðast freistinguna til að nota þessu myndmáli ) 

( Ef ítarlegri rök er óskað, er það í hrönnum á www.LHM.is, hér á blogginu, mortenl.blog.is  og viðar.  Wikipedia-greinin Bicycle_helmet hefur fullt af tilvitnunum í rannsóknum.  Á cyclehelmets.org má finna mat sérfræðinga á  fullt af vísindagreinum um virkni hjálma.  Ég get bent á rökræður fremstu sérfræðinga heims - meðal þeirra sem trúa á hjálmaáróðrinum og ekki sem fór fram í gegnum British Medical Journal /BMJ,  rök gegn hjálmaáróðri sem kemur fram í bæklingi frá ESB og svo framvegis  ) 

( 2010-04-11 : Reyndi að betrumbæta textann og setti inn meira efni hvað varðar tilvitnanir / rannsóknir. Sjá líka athugasemd mína undir færslu Vilbergs sem er tengd við sömu frétt mbl.is ) 


mbl.is Cameron enn í hjólavandræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn bætist við ný rök með hjólreiðum

Þetta kemur fram í frétt mbl.is um rannsókn um jákvæða áhrif hreyfingu, þar á meðal hjólreiða á  heilsu ungviðis. Léttara barn, ( innan marka auðvitað)  er síður líklegt til að lenda í heilsufarsvanda síðar á ævinni .

"Konurnar sem hjóluðu eignuðust jafn löng börn og samanburðarhópurinn, en börnin voru að jafnaði rúmlega 140 grömmum léttari en önnur börn."


mbl.is Hreyfing móður hefur jákvæð áhrif á heilsufar barns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umræða um umferðarlögin á skuggaþingi

Ég vona innilega að umræðan um umferðarlögin verði kröftug en markviss og málefnaleg. Ein leið til að  ýta undir að svo verði er ef fólki nýti sér þann möguleika að setja inn rök með og á móti lögunum á Skuggaþingi :

http://skuggathing.is/priorities/379-umferdarlog

Hver sem er sem er getur  skráð sér, og það er einfalt að nota Facebook-aðganginn til skráningar noti maður FB.

Enn betri umræðu mættu skapast ef fólk og ekki síst fólk sem skrifar á vegum eða í samsvari við sýn samtaka og sérfræðinga mundu bæta inn rök við staka greinar, eða eins og núna er gert ráð fyrir við rökstuðning við staka greina. 

http://skuggathing.is/process_documents/show/528-umferdarlog-stjornarfrumvarp

Þá má gefa staka greinar stjörnur eftir hvernig manni líkar við þá. 

Loks má líka kjósa með eða á móti málum á Skuggaþingi, en hvað varðar umferðalögin er hún svo margslungin að þetta missi  marks, nema til að vekja athygli á málinu innan kerfisins á Skuggaþingi.

Ég mundi skjóta á  30% af því sem snúa að hjólreiðum og er breytt er gott, en 60% vont eða helst vanhugsað og illa rökstutt.   Það veldur vonbrigði að svo skuli vera, þrátt fyrir endurtekinna skrifelaga ábendingar Landssamtaka hjólreiðamanna  og ítarleg rökstuðning með tilvitnanir í rannsóknir.  Á yfirborðinu litur samráð ráðuneytisins við "hagsmunaaðila"  vel út, en það eru mörg teikn um að athugasemdir LHM hafa varla verið lesnar.  Samskipti við menn ráðuneytisins á fundi tveggja embættismann og tveggja sem mættu af hálfu LHM bar keim af þessu.  Ráðuneytið hefur ekki einu sinni tekist að leiðrétta nafn samtakanna eftir að LHM bentu á það í tvígangi. Nei, ekki getur maður séð að um samráð sé að ræða, heldur möguleiki á að koma sjónarmiðum á framfæri. Og vissulega hefur eitt og annað breyst til batnaðar sem hluti af ferlinu.  En of snemmt er að segja hvort það mun hafa áhrif í raun.  Þetta eru hlutir eins og

  • að leiðrétta ruglingslegt orðalag hvað varðar aðgangi til þess að taka vinstribeygju á reiðhjóli með öðrum hætti en það sem bílstjórum er gert að gera.
  • að banna ekki reiðhjól á sérreinum, heldur taka það fram í skýringartextanum að viða erlendis deila strætó, leigubílar og reiðhjól sérreinum.  Það kemur í ljós hver reyndin verður í Reykjavík, því hvert sveitarfélag mun fá að ráða þessu fyrir sitt leyti.

 

Neikvæðir hlutir, og sem því miður eru líklegri til að hafa meiri áhrif  eru  breytingar sem

  • Banna hjólreiðar með lögum, með öllu jafnvel barna í fylgd með fullorðinna sem ganga á gangstíg ef sérstakur hjólastigur er til staðar.
  • Banna með öllu hjólreiðamenn að þvera óbrotna línu á stígum sem eru skipt í 1m ræmu merkt hjólreiðamenn og 2 m ræmu merkt gangandi. Þetta er óframkvæmanlegt og ótrúlegt þekkingarleysi
  • Festa bann við hjólreiðum barna án hjálma í sessi.  Og halda leyfi ráðherra til að banna líka fullorðnum að hjóla án hjálms ef honum svo sýnist.  Ef einhvern tímann hefði farið fram umræða um þessa hluti og mótrökin svarað af alvöru væri þetta mun minna þrætuepli, en yfirvöld hafa aldrei viljað rökstyðja mál sitt í samræðum við Landssamtaka hjólreiðamana eða aðra sérfræðinga í þessu máli.  ( Þeir sem hafa komið fram sem sérfræðingar og stutt hjálmaskyldu hafa ekki sýnt sér nafnbótunum verðugir, enda er ekkert sem bendir til þess að þeir  hafa kynnt sér rannsóknirnar ) . Forsendunar sem menn gáfu sér þegar ráðherra var veittur heimild til hjálmaþvingunar, stóðust ekki þá, en síðan hafa rökin á móti eflst til muna, og fjömargur opinberiri aðilar erlendis draga gildi hjálmaskyldu og gildi hræðsluáróðurs til að hvetja til hjálmanotkunar í sterklega í efa.

Það mætti halda áfram um lögin í löngu máli, en hér er í staðinn krækja í frétt á vefsíðu LHM um málið :

http://lhm.is/lhm/skjol/319-drjum-umfer-og-athugasemdir-lhm-viu

 


mbl.is 110 km hraði leyfður á ákveðnum vegum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig er nýtni og ávinningur miðað við rafhlöður, vetni eða reiðhjól ?

Spennandi frétt þetta með framleiðslu metanóls úr koltvísýringi, með því að eyða heilmikið af rafmagni.

Það vantar  að spyrja ýmsa spurning um þetta:

  • Hvaðan á koltvísýringin að koma ?
  • Hvað kostar að fanga koltvísýringin ? 
  • Þarf aðilinn sem framleiðir metanól með þessum hætti að borga eða fær hann borgað fyrir að "endurnýta" kola-frumeindirnar ( tengd losunarkvótum og þess háttar )  ?
  • Hér er ekki um eiginlega bindingu að ræða, þannig að mun grænni væri að taka koltvísýringinn upp í tré, gras, eða láta vera að búa hann til.  Ekki satt ?
  • Eru "hvatar"  nýttir sem þurfi að endurnýja og eru dýrir eða mun verða dýrir eftir sem auðlindir verða óaðgengilegar ?

Hver er nettó raunávinningur  ( i mörgum tilfellum neikvæð),  miðað við til dæmis að

  • nota rafmagnið beint, eins og í lestum eða Trolley-strætó
  • nota rafmagnið fremur í léttum og mun sparneytnari rafhlöðu-farartæki, sem til dæmis rafmagns-reiðhjól
  • Nota rafmagnið og smá koltvísýring til að búa til mat, sem að hluta knýr hjólreiðamenn
  • nota rafmagnið til að búa til vetni ( sennilega betri nýtni þegar búi metanól er búið til ) 
  • nota rafmagnið í mismundandi tegundum af rafhlöðum, hver með mismunandi vigt, endingu, nýtni og sem ganga á  auðlindum jarðar með mismunandi hætti
Við vitum að lestir, rafmagns-strætó með rana ( trolley-) og reiðhjól hafa margs konar sterka kosti fram yfir metan- eða rafhlöðu- drifnum bílum.  Betri skilvirkni heildarkerfisins, færri umferðarslys, betri lýðheilsu, betri plássnýting, huggulegri bæir/borgir stóran sparnað á mörgum sviðum í samfélaginu í heild.

:-)
mbl.is Og það varð ljós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar samþykkt

Frá vef LHM :

Í dag var sagt frá því að Reykjavíkurborg hefur samþykkt að efla hjólreiðar með  margvíslegum aðgerðum á næstu árum sem hluti af grænu skrefunum.

Það er fagnaðarefni að Reykjavíkurborg sýnir frumkvæði í því að efla hjólreiðar og þannig viðurkennir hjólreiðar sem alvöru samgöngumáta, og sannarlega hagkvæm, heilsusamleg og umhverfisvæn.

 

http://lhm.is/content/view/357/125/


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband