Leita í fréttum mbl.is

Bæta aðgengi, jafnræði í samgöngum

Best að undirstríka  að Samtök um bíllausan lífsstíl hafa sem markmið að auka jafnræði í samgöngum, og gera það að enn vænlegri  kostur en nú er að lífa bíllausan lífsstíl ( stumdum er talað um bíltempraðan lífsstíl ).  Hér er texti af  www.billaus.is :

Samtök um bíllausan lífsstíl er hópur fólks sem hefur að sameiginlegu áhugamáli að vinna að því að gera bíllausan lífsstíl á höfuðborgarsvæðinu að vænlegri kosti en nú er

Tilgangurinn er margþættur, allt frá því að hafa jákvæð áhrif á nærumhverfið og draga úr útblástursmengun og yfir það að skapa líflegra og mannvænna borgarumhverfi.

Í hópnum er fólk sem bæði lifir bíllausum lífsstíl og þeir sem gjarnan vildu gera það, ef aðstæður til þess væru betri.

Hópurinn er þverpólitískur, og leggur því meiri áherslu á að berjast fyrir réttindum þeirra er kjósa sér bíllausan lífsstíl fremur en sértækum og hugsanlega umdeilanlegum lausnum.

Hópurinn mun því berjast fyrir eftirfarandi atriðum: 

  • að borin sé virðing fyrir almannarými á borð við gangstéttir og torg, og að sektir fyrir ólöglega lögðum faratækjum séu sambærilegar á við það sem gerist í nágrannaborgum og að sektað sé allan tíma sólarhringsins,
  • að gætt þess verði að stofnæðar trufli sem minnst nærliggjandi byggð,
  • að draga úr niðurgreiðslum til handa bílandi á formi gjaldfrjálsra bílastæða við stofnanir, verslanir og fyrirtæki, óbeinnar gjaldtöku af umferðarmannvirkjum og hverju því sem dregur úr samkeppnishæfni annarra valkosta við einkabílinn,
  • að hvetja til þess að lagðir séu göngustígar og hjólabrautir með sambærilegum metnaði og götur fyrir bíla,
  • að umferðaræðar verði skipulagðar sem breiðstræti ekki síður en hraðbrautir þar sem við á,
  • að almenningssamgöngur fái sérakreinar á stofnæðum þar sem hætta er á biðraðamyndun og töfum,
  • að lögð verði enn meiri áhersla á skjólmyndun með trjágróðri en nú er.

Hópurinn mun einnig kynna kosti þess að lifa bíllausum lífsstíl fyrir þá sem ekki gera það í dag, hvaða áhrif það hefur á líf þess og nærumhverfi og hvetja fólk til að breyta um lífsstíl eftir fremsta megni.

 


mbl.is Hvernig líta göturnar út án bíla?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 20. júní 2010

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband