Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2008

Ég dreg dár að trúarkenninga ( 3 mnd fangelsi takk)

Mig langar ekkert sérstaklega að draga dár að trúarkenningum og enn síður smána guðsdýrkun, en þessi lög eru fáránleg.    Enda eru þau ekki virk.  Annars væri búið að draga ýmsa fyrir rétti, til dæmis bloggarar.   Svo hvers vegna ekki fella þessu úr gildi ?  Hver eru rökin á móti ?  Almenn lög um meiðyrði og þess háttar ættu að duga er það ekki ? 

Nú ætla ég að segja nokkur orð sem mætti dæma mog fyrir.   Ég og nýt mér  sumt  sem mér finnst pínu fyndið í orðfæri þeirra sem standa í því að gera grín að trúarkenningum :

    Kristnin segir okkur og er mjög ötull í því (meðal annars í útvarpi og dagblöðum daglega), að það að eiga  "ósýnilegan vin á himnum",  sé það besta sem til er, já hann er eini sanni vinurinn sem þú getur átt.  Helgi Hóseasson talar um "himnadrauginn".   Enda trúa mjög fáir hér á landi öllu því sem fólk samt játar öðruhvoru í trúarjátningunni. Og sumir tala um náttverðina sem mannætustælar. Islam og Gyðingdóm eru álíka fáranlegi  með sínum kennisetningum. Já þetta eru náttúrulega ekkert nema afleitt og afleidd og úr sér gengin þjóðtrú araba og gyðinga. 

Fór  ég ekki þarna yfir mörkin og ætti ekki að ákæra mig ?  

Ef ekki, hvar liggja mörkin ?

Til hvers eru þessi lög, og hvers vegna vernda trúarbrögð eitthvað frekar en aðrar lífsskoðanir eða atferli ?  Má sem sagt gera grín að nánast öllu nema trúarbrögð ?  Mér finnst nú að stundum hafi verið gengið langt í að gera grín ívafið hatur og fyrirlitningu gegn fleiri hópum sem ég á stundum samleið með, en að setja fólk í allt að þriggja mánaða fangelsi er of langt gengið. Jafnvel þótt þetta grín skaði velferð þjóðar með því að skerða samkeppnishæfni góðra lausna og frjálsri hugsun. 

Svo af hverju vernda trúarbrögð sérstaklega ?  

Ef eitthvað er varið í þessum guðum, geta þeir ekki sinnt sínum málum sjálfir ?

Nei, þetta hlýtur að vera tæki til skoðanakúgunar, og  óbeint til þess að koma í veg fyrir útbreiðslu frjálsri hugsunar á tilteknu sviði.  Sem samt smitar út frá sér og setur okkur í fjötrum.  Kirkjan hefur verið gagnleg stjórnvöldum til að stjórna lýðnum. Ég skal ekki segja hvort sá tími sé að fullu liðinn. 

Ekki snýst þessi lagagrein eiginlega um velsæmd, því velsæmd má tryggja með almennari lög.  Sömuleiðis er erfitt að sjá að lagagreinin snúist um það að  ganga ekki viðkvæmum sálum of nærri. Nú, nema þá að kirkjunnar menn eða heittrúaðir menn sé sérstaklega viðkvæmir og eiga erfitt með að þola það sem fólk með öðrum lífsskoðunum og sannfæringum mundu þola ?  Er eitthvað sambærilegt með rasisma og háð gegn trúarkenningum ?  Varla.   Ef það er einhver lífsskoðunarhópur sem ætti að vernda með þessu hætti, væri það frekar hópar sem eru í minnihluta, og veikir

 

 Hér er laga greinin úr hegningarlögunum :

125. grein.  Hver, sem opinberlega dregur dár að eða smánar trúarkenningar eða guðsdýrkun löglegs trúarbragðafélags, sem er hér á landi, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 3 mánuðum. Mál skal ekki höfða, nema að fyrirlagi saksóknara.


mbl.is Bannað að sýna Life of Brian
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilberg skrifar um frakklandshjólreiðarnar

Það er sannarlega fagnaðarefni að fjallað sé um hjólreiðakeppnir jafnt sem samgönguhjólreiðar á mbl.is

Vilberg bloggvinur minn bloggar ítarlega um þær fyrir þá sem vilja vita meira og fylgjast með.

Í sjónvarpi má athuga sendinga Eurosport  

http://www.cyclingweekly.co.uk/tourdefrance/Tour_de_France_2008_TV_listings_article_262490.html

 


mbl.is Keppni hafin í Frakklandshjólreiðunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vá, fjallað um hjólreiðakeppni !

Ég hef mestan áhuga á almenningsíþróttina samgönguhjólreiðar, en fagna ákaft því að nú sé fjallað um Tour de France að einhverju marki  .-)

 Ekki er verra að landi minn hafi unnið í dag, og það á lokasprettinum  :-D

"Thor de France" vann í nokkrum íslenskum fjölmiðlum í dag.


mbl.is Norðmaður fyrstur í mark í öðrum áfanga Frakklandshjólreiðanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband