Leita í fréttum mbl.is

Það má hjóla á allar götur, því reiðhjólið er ökutæki

Þetta kemur skýrt fram í annarri grein umferðarlaga :

  • "Reiðhjól: a. Ökutæki, sem knúið er áfram með stig- eða sveifarbúnaði og eigi er eingöngu ætlað til leiks. ....  Ökutæki:Tæki á hjólum, beltum, völtum, meiðum eða öðru, sem ætlað er til aksturs á landi og eigi rennur á spori"

Eftirfarandi úr sjötta grein staðfestir / minnir á (með öðrum greinum) staða reiðhjóls sem ökutæki  :

  • "Eigi má leggja ökutækjum nema á sérstaklega merktum stæðum. Ákvæði þetta gildir eigi um reiðhjól."

Ennfremur, úr 13.grein : 

  • "Ökumaður skal nota akbraut. Bannað er að aka eftir gangstétt eða gangstíg."

Sama skylda til að vera til hægri gildir um öll ökutæki :

  • "Ökumaður skal vera með ökutæki sitt eins langt til hægri og unnt er með tilliti til annarrar umferðar og aðstæðna að öðru leyti."  

Hér má þó benda á að öryggissjónarmið trompi öllu, og það hefur sýnt sér að fyrir bifhjólamenn og reiðhjólamenn dregur úr sýnileiki, sérstaklega fyrir gatnamótum og í gatnamótum að vera staðsettur í hægri jaðri akreinar.   Bifhjólamenn læra að taka ríkjandi stöðu (eigna sér akreinina  á þessum kafla) á gatnamótum, og í Hjólafærninni eru hjólreiðamönnum kennt að gera það líka.  

Og svo úr sérreglum fyrir reiðhjólum í 39.grein:

  • "Hjólreiðamaður skal hjóla hægra megin á akrein þeirri, sem lengst er til hægri. Akreinina við hlið hennar má þó nota til framúraksturs, ef eigi er unnt að fara fram úr hægra megin."
  • "Heimilt er að hjóla á gangstétt og gangstíg, enda valdi það ekki gangandi vegfarendum hættu eða óþægindum. Hjólreiðamaður á gangstétt eða gangstíg skal víkja fyrir gangandi vegfarendum."

 

Það er nógu slæmt að blaðamaður sem skrifar um umferðarmál og hefur talað við Umferðarstofu geti haldið fram hluti sem brjóti í baga við lög, verr er ef lögfræðingur Umferðarstofu komi með fullyrðinga, vísi í lögin og segir rangt til um innihaldi laga.


mbl.is Vespan skal flokkast sem reiðhjól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 15. júlí 2010

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband