Leita í fréttum mbl.is

Miklu sterkari rök fyrir hjólavæðingu og þess háttar

 Það er sýnd að sjá hvernig áherslurnar eru skakkar.  Það kom fram í skýrslu umhverfisráðuneytisins sumar að rafbílavæðing er meðal dýrustu leiða til að draga úr útblæstri þegar til skamms tíma er lítið. Aukningu hjólreiða var hinsvegar metið að vera meðal hagkvæmustu kostunum, og myndu spara samfélaginu mikið, bæði til skamms og til langs tíma.  Og þá var ekki búið að reikna in þann mikla sparnað á vinnustöðum, í heilbrigðiskerfinu og á heimilum sem má reikna með vegna batnandi lýðheilsutengd hjólreiðum. 

Búinn að skrifa um þetta oft áður :-)   En það víst er ekki sannleikurinn og rökstuðningurinn sem skiptir máli heldur einhver tíðarandi sem er í raun á eftir sinni samtíð.

http://mortenl.blog.is/blog/mortenl/entry/971250/ 


mbl.is Stefnt á rafbílavæðingu Reykjavíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Borg og sveitarfélög ættu að styðja jaðaríþróttir betur

Margir sem stunda jaðaríþróttir komast að því að lítil virðing er borinn fyrir þá sem stunda íþróttir án þess að það krefjist meiriháttar dýr mannvirki. Þeim er lítið hornauga, í staðinn fyrir að gildi þess að ungt fólk gerir eitthvað jákvætt er metið að verðleikum.  BMX strákum er oft meint að nota bílastæðahús á kvöldin og þeir sem nota stökkhjól og byggja brautir fyrir engin pening upplífa að verktakar koma og rífa án þess að gera minnsta tilraun til að ná í notendur.

Jaðaríþróttir eru kannski sérstaklega vinsælar  meðal þess aldursflokks þar sem brottfall úr skipulögðum íþróttum er hvað mest.  Og brottfallið virðist oft vera tengt því að ekki sé komið til móts við unglinga sem eru að breytast likamlega og félagslega / andlega.  Og auk þess er eins og krafan um árangur í keppnum og um að allir leggja sér 110% fram sé sífellt að aukast eftir sem krakkarnir eldast.  Góð uppskrift að brottfalli. 

 ( 2009-10-29 : Reynt að fara að ráðum um stafsetningu eftirveikum mætti :-) 


mbl.is Í loftköstum á götum úti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rafbílar eru ekki nema 10% lausnarinnar

Það er fagnaðarefni að Reykjavík vill stefna að því að fjölga rafbílum í borginni ( og enn og aftur verða best í heimi ? ) 

En rökin fyrir því að leggja jafn mikla peninga og tíma stjórnsýslunnar í að bæta réttindi og aðgengi hjólreiðamanna  er miklu sterkari.   

Og enn og aftur mun rafbílavæðingin sem er síðri kostur yfirskyggja betri kosturinn, sem eru þrenningin A) meiri hjólreiðar og göngu, B) betri skipulag ( þar á meðal að bílstjórar borga það sem notkun bíla kosta fyrir samfélaginu ) og C) betri almenningssamgöngur. 

Hér er fréttatilkynningin.  

http://www.rvk.is/desktopdefault.aspx/tabid-259/1198_read-17319/ 

 En rök okkar sem hafa séð ljósið ( sjálfsháð :-) þykir sennilega ekki einusinni svaraverð... 

 

 


Bloggfærslur 27. október 2009

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband