Leita í fréttum mbl.is

Betur má ef duga skal í umferðarmálum

Setti inn eftirfarandi á bloggi  Ómars Ragnarssonar

Taka okkur á varðandi umferðina? Já ég held nú það.  Eins og annar bloggari benti á þá er útlit fyrir fjölgun á alvarlegum slösuðum í umferðinni miðað við í fyrra og önnur ár

Auðvitað ber að fanga að færri hafa dáið en í fyrra, enda ekki annað hægt.  En auk aukins eftirlits, held ég að skýringin geti verið  tölfræðilegar sveiflur.  Því miður.  Það þýðir ekkert að slaka á. Ekki síst þegar horft er til fjölda þeirra sem slasast alvarlega í umferðinni, og önnur neikvæð áhrif ofvaxinnar umferðar á heilsu og umhverfi.

Ég held nú að það dugi ekki að hver sé hvattur til að lita í eigin barm

Mín drög að  tillögum gætu verið   ( sumum finnst örugglega nóg um en eftir setu í umferðarráði og í stjórn Landssamtaka hjólreiðamanna í nokkur ár, hef ég haft tækifæri til að ígrunda málið og hef rök fyri þessu) :

  • Mun betri almenningssamgöngur, og mun betri upplýsingagjöf í kringum þá,
  • sömuleiðis varðandi samgöngur gangandi og hjólandi ,
  • farið að rukka fyrir mengun og annað sem stóraukin bílaumferð veldur,
  • hærri sektir fyrir brot,
  • enn skilvirkari punktakerfi,
  • lengri svipting á ökuréttindi, 
  • brotlegir ( með yfirlögðu ráði eður ei)  gert að aðstoða fórnarlamba umferðarslysa,  sagt frá þannig "afplánun í fjölmiðlum,  
  • aðskilnaður akstursstefna ( en ekki 2+2 sem er sóun), 
  • prófið gildi aldrei lengur en 10 ár, og ekki lengur en 5 ár hjá eldra fólki. Allir þurfa að sitja námskeið við endurnýjun skirteinis. Lögin og umhverfið er sífellt að breytast.
  • Hætt að sýna akstursíþróttir í sjónvarpi,
  • Auglýsingar sem ýta undir öðru en nytsamleg notkun á bílum verði skattlagðar vel og peninginn fari til Lýðheilsustöðvar og/ eða til eflingar almenningssamgangna, göngu og hjólreiðar .

Bílslysin eru engin slys segja FIA og WHO.  Verkefnið THE PEP hjá WHO undirstríkar hið breiða samhengi á milli "Transport, health and environment" Það er nefnilega ekki þannig að bíl"slysin" er sviðið þar sem umferðin drepur flesta, heldur er það mengun og hreyfingarleysi sem tekur mesta tollinn.

 


mbl.is 15 létust í umferðarslysum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband