Leita í fréttum mbl.is

Rökræða um kröfur mótmælenda

Það hefur farið allt of lítið fyrir umræður um málinu í fjölmiðlum.

Skil vel að vörubílstjórar séu óánægðir með að ekki hafa aðstöðu meðfram vegunum til að hvíla eins og þeim ber samkvæmt tilskipun ESB.  Svoleiðis afdrep geta auðvitað líka nýst öðrum, og mundu auka öryggið.

Álögur á þungaflutningabíla er hinsvegar sennilega of lágir, frekar en öfugt.  Það mætti frekar lækka skatta á vinnu bílstjóranna en lækka álögur á dísilnum sem þeir nota. Þungaflutningar menga mikið og skapa gríðarlegt álag á vegakerfinu, og auki óöryggi í umferðinni.  Ef erfitt er fyrir flutningamenn að ná upp í kostnað þurfa þeir einfaldlega að hækka gjaldið.  Ef þetta er einhverjum vandkvæðum háð, býst ég við að hægt sé að leysa úr þeim. 

Annars er Dofri með ágætis færsla um þessi mótmæli, þó óþarfi sé að nota orðið asnaleg um þau. 


mbl.is Hávær mótmæli við Arnarhvol
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn Ingi Lýðsson

Vörubílstjórar krefjast hvíldarstaða og vísa til ESB regla um það.  Það hefur hins vegar enginn þeirra getað vísað til þessara regla.  Fyrir því er ofur einföld ástæða.  Þessar reglur eru ekki til. 

Og talandi um hvíldarstaði.  Vissulega mættu vera fleiri sjoppur og bensínstöðvar vera við íslenska þjóðvegi.  Það er akkúrat það sem okkur vantar.  Þær eru hins vegar ekki opnar á nóttunni þegar flutningabílstjórum hentar að flytja vörur.  Sjoppueigendunum hentar ekki að vera með opið nema á daginn - ekki á nóttunni.  

Á þá að þjóðnýta sjoppurnar og láta ríkið reka þær?  Allann sólarhringinn fyrir flutningabílstjóra?

Það er með þetta eins og margt annað sem forsvarsmenn þessara bílstjóra sem flestir eru með eigin rekstur hafa sagt í umræðunni.  Þar hafa þeir farið mjög frjálslega með staðreyndir, sbr. ofangreint, reglur um hvíldartíma svo eitthvað sé nefnt.  Hvíldartímareglurnar eru mjög rúmar og ganga ekki á nokkurn hátt framar almennum reglum um vinnuvernd almennara launamanna.

Svo gasprar populistinn Kristján Möller um að fá undanþágu frá þessum reglum.  Til hvers?  Vill hann fá afslátt af umferðaröryggi okkar hinna?  Hugmyndir hans um þessi mál eru vægt til orða tekið galnar. 

Sveinn Ingi Lýðsson, 3.4.2008 kl. 21:24

2 Smámynd: Morten Lange

Takk fyrir þessar upplýsingar, Sveinn.  Áhugavert væri að heyra meira um þessar reglur og/eða fá hlekk / tilvísun.  Sammála þér varðandi umferðaröryggið. 

Varðandi hvíld þá hélt ég að nóg væri að búa til afdrep meðfram vegunum. Hef séð þetta notað af vörubílstjórum mjög viða í útlöndum.  Og svo getur verið kamar á staðnum, og kannski rammgerðir bekkir og borð,  sem geta nýst þegar vel viðrar, og líka af  ferðamönnum.  

Hvar finnur maður annars kröfur og rök flutningabílstjóranna ? 

Morten Lange, 3.4.2008 kl. 21:51

3 Smámynd: Morten Lange

OK sé að þú útlistir  þessu í athugasemd hér, Sveinn :

 http://sveinni.blog.is/blog/sveinni/entry/487973/ 

Morten Lange, 3.4.2008 kl. 22:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband