30.6.2009 | 12:35
Umhverfisráðherra til fyrirmyndar ! Hjálmar ofmetnir
Um daginn var frétt í mörgum fjölmiðlum og mikið bloggað um að Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefði verið að hjóla til að komast á milli Alþingis og ráðuneytisins og fengið kúlu á höfuðið.
Þetta með "slysið" telst nú varla mjög fréttnæmt mundi ég segja. Aðalmálið finnst mér vera að ráðherrann hjólar til samgangna og ætlar að halda þessu áfram. Flott hjá Svandísi að ganga fyrir með góðu fordæmi og vera umhverfisvænn og stunda heilbrigðar, skilvirkar og huggulegar samgöngur.
Hefðu fleiri þjóðþekktir menn og aðrir í áhrifastöðum hjólað þá hefði það sennilega breytt viðhorfið til hjólreiða. Breytt viðhorf hefði þýtt að fleiri mundu hjóla og að aðgengi til hjólreiða mundi batna. Eins og ég hef margoft rakið áður með tilvitnanir í vísindaskýrslum og tölum frá Alþjóða heilbrigðismálastofnunina, svo dæmi séu tekin þá væri það mikill framför, og þá sérstaklega í umferðar-, heilbrigðis-, umhverfis- og fjarhagsmálum.
Meiðslin sem Svandís hlaut voru nú ekki stórvægileg að manni skilst. Daglega eða oftar er sennilega einhver bílstjóri, gangandi eða skokkandi ( hjólandi þess vegna ) á landinu sem fær svipað "alvarleg" meiðsl.
En dagblöðin og fjölmiðlar almennt eru að færa sér í átt að Séð og heyrt. Það er fræga fólkið og það er það sem er skondið eða helst sem hentar til að hneykslast yfir sem er fjallað um. Umfjöllun byggða á þekkingu um umferðarmál sést varla. Það er ekki skrýtið þótt Svandís hafi ákveðið að héðan í frá ætli hún að vera með hjálm, en ákvörðunin byggir klárlega á röngum forsendum.
Það er búið að troða þessu með hjálmana svo mikið fram að varla komist annað að þegar talað er um hjólreiðar og öryggi. En auðvitað er hið fyrsta sem beri að huga að, það að læra tækni til að koma í veg fyrir slysin. Þvínæst verða enn betri í að beita þekkinguna. Það kemur meðal annars þegar maður öðlast reynslu. Erlendar rannsóknir benda til þess að reynslan sé mjög mikilvægur þáttur í öryggi hjólreiðamanna. En hægt er að læra frá reyndari hjólreiðamönnum, og jafnvel setja í kerfi. Á Íslandi er núna hægt að læra Hjólafærni, af hjólafærnileiðbeinendum sem hafa tekið þátt í fimm daga námskeið sem var haldið í fyrra vor með Breskum kennara.
Í frétt Vísis.is sem er ögn ítarlegra kemur fram :
Ég tók of skarpt í handbremsuna og steyptist á hausinn," segir Svandís sem var að beygja af Lindargötu niður í Skuggasundið til fundar við manneskju úti í umhverfisráðuneytinu.
Sem sagt það var orsök fyrir litla slysinu, og betra stilling á bremsuna og / eða betra færni hefði getað komið í veg fyrir að hún datt.
Svo má nefna að umhverfið sem maður hjólar í bjóði stundum slysin heim. Skurðir og kantar. Bílstjórar og gangandi sem ekki taka tillit eða ekki eru vakandi. ( Já, það getur vel átt við um hjólreiðamenn líka ). Sumir stígar og gangstéttir ( sem sumir kjósa að hjóla á ) eru illa við haldnir. Þarna er möl, skurðir, vinnutæki og það eru blindhorn og allt of þröngt til að mætast og fleira í þeim dúr.
Að hamra stöðugt á hjálmanotkun en ekki tala um annað, gerir það að verki að hin atriðin fá allt of litla athygli. Eins og þetta sé ekki nóg, þá bendir mjög margt til þess að hjálmar séu verulega ofmetnir. Virkni þeirra er mun minni en okkur er látið halda.
Þeir sem hafa virkilega krufið málið, segja að hjálmar hafa hvergi sannað sér í rannsókn á stærri hópa hjólreiðamana. Ekki einu sinni í löndum þar sem hjálmanotkun hafi aukist hratt. Jú, hjálmar geta komið í veg fyrir skráma. En nei, það er ekki líklegt að nútíma hjólahjálmar hafa bjargað marga frá dauða eða örkuml. Þeir eru vitlaust hannaðir, og vitlaust prófaðir, miðað við höfuðkúpuna og heilann og hvernig slysin eru. Hönnunin gerir ekki ráð fyrir að verstu höfuðmeiðslin í umferðinni koma til vegna högg sem sem eru margfalt meiri en það sem svoleiðis hjálm geti þolað. Enda eru hjálmar bara prófaðar með því að mæla hröðun á gervihöfuð úr stáli þegar höggið kemur beint ofan á hjálminum. Og bara við uþb 20 km hraða. Þetta samsvarar falli af minna en tveggja metra hæð. En höggin í raunveruleikanum koma mjög oft á hliðunum. Og höfuðið er ekki stíft eins of stállíkanið, heldur sveiganegri og tekur þannig upp höggið. Fleiri skýrslur benda þar að auki til þess að snúningskraftar á heilann séu þeir hættulegustu, ekki höggin. Nútíma hjálmur getur sennilega aukið á snúningskraftinum við árekstra, miðað við bert höfuð. Hjálmurinn gerir höfuðið stærra, og getur "grípið" í yfirborð, sérstaklega ef yfirborðið hjálmsins sé ekki hart og slétt.
Ef hjálmurinn væri rétt stilltur hefði hann komið í veg fyrir kúluna hjá Svandísi, gefið að kúlan kom á stað sem hjálmurinn þekur. En - ekki er visst að áverkar á heilann, sem að manni skilst hafi verið engar eða afar litlar, hefðu verið minna með hjálm samt. Hver veit í alvöru ? Kannski hefði komið til lítilsháttar heilahristing ? Hjálmurinn hefði gert höfuðið stærri og þyngri og kannski meinað höfuðkúpuna um að nota sína vörn. Akkúrat varðandi hugsanlega slæm áhrif af hjálmum í svona minniháttar slysum, get ég ekki beitt fyrir mér vísindaskýrslur, en varðandi hve lítill virkni þeirra sé, tölfræðilega, jafnvel í minniháttar slysum liggja fyrir töluvert af gögnum, sem ekki syngja lof hjálmana.
Frauðplastið er hannað til að standast staðla sem nota stálhöfuð til að meta hvernig frauðplastið kremjist og dragi úr hröðun. Til að geta virkað sem best gegn höfuðmeiðslum hefði frauðplast þurft að vera mun mýkri en það sem nú tíðkast, því höfuðkúpan er mýkri en stál-höfuð. En staðlar sem miða við stállíkön krefjast harðari frauðplasts. Fræðingar sem skoðuðu hjálma eftir slys sáu nánast engin dæmi um að frauðplastið hefði kramist saman eins og tilgátan segi að það ætti að gera. Sérfræðingar um hönnun hjálma segja ennfremur að ef hjálmur brotni, þá er það merki um að hjálmurinn hafi ekki sinnt hlutverki sínu. Reiðhjólahjálmar eru hannaðir til að draga úr vægum höggum með því að frauðplastið krumpist. Þegar frauðplastið brotnar, þá er hjálmurinn ekki að draga neitt sérstaklega úr högginu.
Ég get vitnað í skýrslur í virtum vísindatímaritum, í skýrslur Evrópusambandsins, í nýlegri samantekt íhaldssama norskra sérfræðinga á vísindaniðurstöðum, til þess að styðja mál mitt um að hjálmar séu yfirleitt ofmetnir. Úttekt á skýrslunni frá Seattle 1989 sem heldur fram 85% virkni í að draga úr höfuðmeiðslum, sýnir að þessar rannsóknir voru meingallaðar. Höfundar skrifuðu nýja skýrslu þar sem sumt var leiðrétt og talan fyrir virkni lækkuð, en nánast aldrei vitna hjálmaáróðursmenn í þeirri skýrslu. Hærri talan sem var dregin tilbaka er "skemmtilegri" fyrir hjálmaáróðursmenn. ( Og svo ber að nefna að nýrri skýrslan "haldi enn í" mörgum af göllunum, til dæmis með að bera saman epli og banana )
Bresk, norsk og frönsk yfirvöld og fleiri hafa hafnað tillögur um að setja hjálmaskylda á hjólreiðamenn, með þeim rökum meðal annars að vandinn sé ekki það mikill, ekki einu sinni miðað við hlutdeild hjólreiða í umferðinni, og að jákvæð heilsuáhrif hjólreiða og frelsi hjólreiðamanna vegi talsvert þyngra en höfuðmeiðslin. Hvað íslenskum yfirvöldum gekk til þegar tillagan um hjálmaskyldu á fullorðnum var hafnað, er erfitt að vita, en visst er að þeir fengu rök með stuðningi í vísindaskýrslum viða að frá Landssamtökum hjólreiðamanna og fengju að tala við okkur. Og ónefnd opinber stofnun gaf álít (hálf óopinbert ) um að hjálmaskylda ekki væri rétta skrefið. Yfirferð á vísindagögnum hefði ekki sannfært um ágæti og nauðsýn hjálmanna. En málsmeðferðin í kring um ákvörðunartöku var hulin í þoku. Gaman væri að vita hvort vinnubrögðin sé gegnsærra undir núverandi ráðherra. ( Ef maður glöggvar í gögnin sem Alþingið hafði þegar ráðherra var gefinn leyfi til að setja reglur um skyldunotkun á hlífðarhjálma, sér maður að þetta var mjög einhliða og ansi rýrt. )
Aðrir aðilar hafa meir að segja varað við áróðri fyrir hjálma. Fyrir nokkrum árum var birt skýrslu frá European Conference of Transport Ministers (ECMT). Hún fjallar meðal annars um að varlega beri að fara í aðgerðum í umferðaröryggismálum sem kunna að draga úr hjólreiðum og göngu. Aðgerðir sem gera það að verki að meira mál verði að ganga eða hjóla, svo sem að þurfa að fara upp í loftið eða undir jörðu eða taka á sér krók til að þvera götu, eru dæmi um hindranir sem eru lagðar í vegi gangandi og hjólandi. Til dæmis í stað þess að lækka hraða bíla. Í þessari skýrslu ECMT segir að opinberir aðilar ættu ekki einu sinni að reka áróður fyrir reiðhjólahjálma. Það er meir en nóg að leyfa búðirnar sem selja þau að stunda svoleiðis.
Ég er ekki mælast til þess að fólk sem vill nota hjálm sleppi því. En að hafa ofurtrú á hjálmana gerir það að verki hjá mörgum að þau taka meiri áhættu en ella. Svo kölluð "risk compensation" hefur verið staðfest af vísindamönnum. Og ofurtrúi á hjálmana í umferðaröryggisvinnunni, gerir það að verki að annað sem er miklu mikilvægari, svo sem færni hjólreiðamanna og hraða bíla gleymist.
Það slæma með hjálma, sérstaklega í ljósi þess að virkni þeirra sé svo lélegur, er annars vegar misskilningurinn um að hjálmar séu lang-lang mikilvægasti málið í umferðaröryggi hjólreiðamanna. Hins vegar er gefið fölsk skilaboð um að hjólreiðar séu sérstaklega hættuleg samgöngumáta. En hversu margir hafa dáið í umferðinni undanfarin tíu ár á Íslandi , samkvæmt tölur Umferðarstofu ? Hátt í tvö hundruð í bílum. Um tuttugu gangandi. Enginn á reiðhjóli.
Umhverfisráðherra hlaut höfuðhögg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Heilbrigðismál, Samgöngur, Umhverfismál | Facebook
Færsluflokkar
- Bílar og akstur
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Hjólreiðatengt
- Íþróttir
- Kjaramál
- Lýðheilsa
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjálfbærni og umhverfismál
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Útvarp
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Eldri færslur
- Maí 2015
- Júlí 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
Bloggvinir
- arnid
- kari-hardarson
- vilberg
- mberg
- hrannsa
- dofri
- ursula
- volcanogirl
- loftslag
- laugardalur
- siggi-hrellir
- svanurmd
- lhm
- larahanna
- ragnar73
- hjolina
- hlynurh
- arnith
- neytendatalsmadur
- bergursig
- ingibjorgelsa
- vefritid
- sylviam
- landvernd
- thuridur
- agustolafur
- vest1
- fsfi
- morgunbladid
- soley
- hlini
- photo
- magnolie
- arnthorhelgason
- hildigunnurr
- herdis
- skidagongufelagid
- gbo
- arnthorla
- malacai
- charliekart
- kerfi
- jevbmaack
- raftanna
- stjornuskodun
- apalsson
- birgitta
- gp
- hordurhalldorsson
- hoskibui
- ingolfurasgeirjohannesson
- roggur
- siggimaggi
- klarak
- svatli
Tenglar
Þetta og hitt
Tenglar sem ekki henta annarsstaðar.
- Sosha Srinivasan aka Sosa Mammen Kona á Indlandi, sem ég kyntist í Tanzaníu
Nokkrar athugasemdir frá mér
Tenglar í athugasemdir við blogg
- Salvör spyr Hvar er andspyrnuhreyfingin ?
- Jeppaeigendur og áhættuhegðun (að meðaltali) Rætt um rannsóknir og "áhættuhliðrun"
- Trú og trúleysi (ateismi,húmanismi) Spáð í hvernig trúleysi er annað en trú
Mögulega þetta
Krækjur
- Lýðræðis-Wiki
- Hjólað í vinnuna maí 2008. Líka fyrir þá sem labba.
Tónlistarspilari
RSS-straumar
Fréttir
Gagnist etv að birta fréttir hér
WorldStreets / NewMobility
- Augnablik - sæki gögn...
Bike-sharing blog
- Augnablik - sæki gögn...
Copenhagenize
- Augnablik - sæki gögn...
BikeBiz
- Augnablik - sæki gögn...
Blogg Landssamtaka hjólreiðamanna
- Augnablik - sæki gögn...
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Áhugaverð færsla hjá þér. Engin spurning að það er allt of mikið einblínt á hjálmanotkun í staðinn fyrir að ræða hvað er hægt að gera til að auka öryggi hjólreiðafólks. Ég hef lent í nákvæmlega eins slysi og umhverfisráðherra. Þurfti að nauðhemla og steyptist fram fyrir mig (fór eiginlega kollhnís). Við þær aðstæður heldur maður fast í stýrið og lendir oftast á hausnum, nema maður nái að fara góðan hring og lendi á bakinu. Ég var með hjálm sem brotnaði og rispaðist, hausinn slapp en handleggurinn brotnaði. Kannski hefði ég ekki höfuðkúpubrotnað við fallið, erfitt að staðhæfa eftirá, en ég hefði pottþétt rispast illa ef ég hefði ekki verið með hjálminn.
Ástæðan hjá mér var sú að ég notaði mest bremsurnar að aftan og bremsupúðinn þar var orðinn lélegur, á meðan bremsupúðinn að framan negldi alveg fastur. Ég hef alltaf passað mig á eftir þetta slys að hafa bremsupúðann að framan örlítið lausari og reynt að nota báðar bremsurnar álíka mikið til að slitið verði jafnt. Hef ekki lent í sams konar slysi aftur, þó að ég sé pínu hjólaglanni og detti merkilega oft
Ég er svolítið hissa á að það skuli vera notaðir stálhausar við hjálmaprófanir. Það á að vera hægt að búa til líkön sem herma nokkuð vel eftir mannshöfðinu. Ætli það séu aldrei notuð lík við árekstrarprófanir? Það þykir kannski ekki við hæfi. Nema náttúrulega fólk gefi líkama sinn til ákveðinna stofnana sem sjá um svoleiðis prófanir. Ég myndi gjarnan vilja að minn aumi skrokkur kæmi að einhverjum notum þegar ég er öll, hvort hann er í heilu lagi eður ei þegar hann fer inn í brennsluofninn skiptir mig engu máli.
Hjóla-Hrönn, 1.7.2009 kl. 11:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.