Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Frábær og þörf færsla Kára Harðar

Kíkið á hann :

   http://kari-hardarson.blog.is/blog/kari-hardarson/entry/626007/

Það er fjallað um niðingshátt   vegayfirvala gagnavart hjólreiðamönnum.

Búið að banna hjólreiða eftir hluta Reykjanesbrautar og engin önnur leið í sjónmáli.

Og ekki hefur samtök hjólreiðamanna verið sagt  frá !

 

 


Indverskir bændur vinna bílaframleiðanda ! :-)

Mikið er þetta frábært !  Ekki allir Indverjar láta traðka á sér. 

Mér skilst annars að Vandana Shiva,  sem hreif mér einu sinni mjög með fyrirlestri sínum þegar ég vann  við háskólann í Þrándheimi,  hafi verið í forsvari fyrir hópi Indverskra kvenna sem mótmæltu eyðingu skóga, með því að faðma tré.  Þar af leiðandi  orðið "Treehugger"  sem er þekkt meðal umhverfissinna. 

Hér er tengill í langri fyrirlestri með hetjuna á You-Tube.

http://youtube.com/watch?v=Iq6jpkDNxtI

 

og hér er stutt  viðtal :

http://youtube.com/watch?v=p32Iq6akmpo

 

Það hafa annars komið fram vel rökstudd gagnrýni á þá trú að Tata gera umhverfinu greiða. Frekar en að hjálpa til að fækka stórum bílum, munu Tata fjölga tala bíla, og mögulega fækka skellinaðra eitthvað.  Umferðaröngþveitið eykst. Hreyfingarleysið og offitan  eykst. Umferðaröryggið versni (sennilega).  Sóun auðlinda eykst. 

Já vandlifað er á móður jörð ef maður  veðjar á bíl fremur en hjólhest, sem aðalfaratæki einstaklinga í þéttbýli.


mbl.is Hætta framleiðslu á „ódýrasta bíl í heimi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umferð minnkar, hjólreiðaumferð og stætófarþegum fjölgar

Mikið er þetta gleðilegt, þó að þessi breyting kunni að vera erfið fyrir suma.  Þeir eiga sumir samúð skilið, en til lengra timi lítið og í stóra samhenginu,  er betra að hafa eðlilegra verð á bensínið. 

Bensínið var búið að vera fáranlega ódýrt lengi, og ég get ekki séð annað en að eftirspurn, ákveðinn þurrð linda, og svo mengunarbótarreglann mun þvinga verðið talsvert ofar næstu tíu árin.  

Ég biðst annars afsakanir á "bloggleti"  undanfarið.  Eitthvað af tímanum hefur farið í Facebook, og eittvað smá í nýrri heimasíðu Landssamtaka hjólreiðamanna : www.LHM.is

Loks vil ég benda á athugasemd sem ég setti inn tengd  færslu við fréttina :

http://skandalan.blog.is/blog/skandalan/entry/632000/#comment1683602

Þar er meðal annars fjallað um fækkun dauðsfalla í umferðinni, samfara  hærra bensínverði. Einkum skýrt að sjá í Bandaríkjunum að mér skilst.  

Annað er að með minni akstur má búast við að fólk noti likaminn meiri.  Það í sjálfu sér hefur væntanlega sparað enn fleiri mannslíf, og enn fleiri  mann-ár, jafnvel   en fækkun umferðarslysa.  (Þeir sem deyja í umferðarslýsum  eru að meðaltali yngri en þeir sem deyja fyri raldur framm vegnahreyfiungarleysis, en samt vegur hreyfingarleysið væntanlega þyngra, því það séu svo miklu fleiri sem deyja þannig )


mbl.is Enn dregur úr umferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband