Leita í fréttum mbl.is

Hjólaborg mun betri en rafbílaborg

Kaupmannahöfn er nú þegar hjólaborg. Og er það miklu eftirsóknarverðari en að vera rafbílaborg.  Um þriðjung ferða eru farnar á reiðhjóli.  Og áður hafa yfirvöld lýst yfir að þeir vilja auka hlutdeild reiðhjóla enn.  Ekki skrýtið þar sem það spari heilmikla útgjöld í heilbrigðiskerfinu.  ( Sjá eldri færslur þar sem vitnað er í Lars Bo Andersen annarsvegar og "CBA of Cycling" hinsvegar). 

Kostir rafbíla eru færri en reiðhjóla, ekki síst varðandi orkunotkun, heilsu og plássnotkun. En borið saman við sérstaklega dísilbíla er minnkun mengunar jákvæð tíðindi. Og kannski tekst þeim að gæta jafnræðis á milli reiðhjóla- og rafbílaáformum ?  Maður getur alltaf vonað, en peningaöflin á bak við bílaframleiðslu eru miklu mun sterkari, þannig að maður óttast að hjólaborgaáherlsurnar geta orðið undir.


mbl.is Áætlanir uppi um að Kaupmannahöfn verði rafbílaborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlynur Hallsson

Sammála þessu Morten, hjól eru mun betri en bílar. Hinsvegar koma hjól því miður ekki alveg í stað bíla og þá er eins og þú segir vissulega skárra að það séu rafmagnsbílar en ekki einhverjir díselsvelgir. Gerum Reykjavík að hjólreiðaborg! Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 29.10.2007 kl. 14:05

2 Smámynd: Morten Lange

Takk fyrir athugasemdir, Hlynur og Jón Arnar.

En þetta sem þú segir, Jón Arnar, um að Kaupmannahafnarbúar séu að leggja hjólin passar ekki með síðasti matið á þróunin sem ég heyrði.  Ég held að það var í vor sem sagt var að hlutdeild hjólreiða fara minnkandi í Danmörku, nema í Kaupmannahöfn og Óðinsvéum. 

Þeir eru einmitt borgirnir sem maður hefur heyrt að gera eitthvað ti lað efla hjólreiðar.  Kaupmannahafnarborg spyr til dæmis íbúa um viðhaldið á hjólareinum, þeir eru með ókeypis borgarhjól, og eru með áætlun um að standa sér betur í kannanir meðal hjólreiðamanna.  

Í Óðinsvéum jukust hjólreiðar um 20% yfir þau fjögur ár sem borgin var með titlinum "hjólaborg Danmerkur" (Cykelby.dk). Umferðarslysum fækkuðu um 20% og 35 miljónir danskar spöruðust í heilbrigðiskerfinu. Aðgerðir voru til dæmis að búa til grænar bylgjur fyrir hjólreiðamenn, að seta upp sýnileg talning á hjólreiðamönnum, setja upp loftdælur fyrir reiðhjól  viða um borgina, bæta hjóloaskyli við  og vera með mikið af jákvæðu "auglýsingum" og skemmtilegar keppnir og happtdrætti fyrir hjólreiðamenn. 

Morten Lange, 29.10.2007 kl. 22:27

3 Smámynd: Morten Lange

Takk aftur fyrir svar, Jón Arnar.

Ég efast ekki um að bílum hafa fjölgað, en mér skilst að það sé almen þróun að umferð ( mobility ) eykst allsstaðar.  Og alls ekki visst að hlutdeild hjólreiða hafi minnkað þó að fjöldi bíla hafi vaxið.  Hefði ekki verið fyrir aukning í hjólreiðum og opnun metró, þá hefði líklega ástandið verið ennþá verr fyrir fólk sem virkilega þurfa á bíl að halda eins og þú virðist gera. 

Varðandi ókeypis hjólin, þá var það kannski ekki gott dæmi.  Þeir eru sennilega með mun betra kerfi í París.  Þar verða eftir skamman tíma 20.000 hjól sem má nota ókeypis hálftíma í senn, og hafa verið mjög vinsæl frá því að kerfið var komið á 15.júli.  Mig minnir að stöðvar séu hátt í þúsund talsins og að til standi að víkka  þessu  út í hverfin.

Morten Lange, 30.10.2007 kl. 01:22

4 Smámynd: Morten Lange

Ég hef reyndar enga ástæða til að efast um að minnkun hjólreiða kann að hafa orðið í sumum hverfum Kaupmannahafnar.  Það þarf ekki nauðsýnlega að stangast á við að aukning annaðhvort í fjölda eða jafnvel sem hlutdeild hafi orðið í Kaupmannahöfn sem heild  :-)

En mín athugasemd var reyndar meira á þá leið að ég vonast til þess að Kaupmannahöfn slaki hvergi á stuðning sína við hjólreiða, né að hjólreiða fái minna vægi í augum borgarbúa þegar Kaupmannahöfn vil gerast rafbílaborg. Það væri ógæfuspor. Rökin fyrir því að stjórnvöld hvetji til hjólreiða (og almenningssamgangna), jafnvel með hagstjórnun eru að verða sterkara dag frá degi :

Orkumál, hreyfingarlesyi (offita), vaxandi útgjöld í heilbrigðisgeiranum, fjarvera úr vinnu vegna veikinda, umferðarteppur, umferðarslys, losun gróðurhúsalofttegunda, útgjöld heimila, landnotkun, frelsi og aðgegi unglinga og efnaminna fólks til að ferðast á eigin vegum, borgarbragur ofl.

Morten Lange, 30.10.2007 kl. 09:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Morten Lange
Morten Lange
Please excuse my meager Icelandic...

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband